Prentarinn - 01.10.2000, Blaðsíða 21
Vinnuverndarvikan
2000
í nýlegri evrópskri könnun kom
fram að þriðji hver starfandi
maður kvartar undan verkjum í
mjóbaki, 17% kvarta undan
verkjum í fótum og handleggjum
en 45% kvarta undan sársauka-
fullum og þreytandi vinnustell-
ingum. Hollenskar rannsóknir
sýna að tíðni bakverkja liggur á
bilinu 12%—41 % eftir starfsgrein-
um en vandann er að finna hjá
starfsmönnum í öllum starfs-
greinum. Óhætt er að fullyrða að
á Islandi er ástandið engu betra.
Evrópuþjóðir hafa áætlað að
kostnaður vegna atvinnusjúk-
dóma geti verið á bilinu 0,5-2%
af heildarþjóðartekjum. Alagsein-
kenni frá vöðvum og liðum eru
talin vera orsök u.þ.b. helmings
þeirra. Vinnuverndarvikan 2000
er heiti átaks Vinnueftirlitsins
gegn atvinnutengdum álagsein-
kennum í vöðvum og liðum og
ber vikan yfirskriftina „Bakverk-
inn burt“. Vikan 23.-27. október
hefur verið helguð þessu átaki á
öllum Norðurlöndunum.
Mikilvægt samstarf starfs-
manna og stjórnenda
I vinnuvemdarlögum er gert
ráð fyrir því að fyrirtæki skuli
BAKVERKiNN
atvinnutengdum
áiagseinkennum í vöðvum
og liðum 1
Vinnuverndarvikan
23. - 27. október
koma á fót heilsuvernd starfs-
manna og er þar átt við forvam-
arstarf innan fyrirtækja sem mið-
ar að því að koma í veg fyrir
heilsutjón vegna aðstæðna á
vinnustað. Forvamarstarf innan
fyrirtækja ætti meðal annarra
þátta að fela í sér áhættugrein-
ingu og mat á vinnuumhverfinu,
þjálfun starfsmanna í góðri
vinnutækni og líkamsbeitingu og
leiðbeiningar um hvemig haga
skuli starfinu til að forðast
óheppilegt álag. Mikilvægt er að
hönnun vinnuumhverfis taki mið
af vinnuvemdarsjónarmiðum. Til
að forvarnarstarf innan fyrirtækja
beri góðan árangur er grundvall-
aratriði að það sé unnið í sam-
starfi starfsmanna og stjómenda
fyrirtækisins.
Algengustu orsakir atvinnu-
tengdra álagseinkenna í vöðvum
og liðum eru meðal annarra tald-
ar vera:
• of þungar byrðar handleiknar
• byrðar handleiknar oft
• skortur á hjálpartækjum
• óheppileg hönnun vinnuum-
hverfisins
• óheppilegar vinnustellingar
• vinnuskipulag
• ófullnægjandi fræðsla
• lélegt líkamlegt ástand; þrek-
og kraftleysi, veikindi
Markviss vinnuvernd
fækkar slysum
Rannsóknir sýna að með mark-
vissu vinnuverndarstarfi innan
fyrirtækja fækkar veikindafjar-
vistum starfsmanna og gæði vinn-
unnar og framleiðni fyrirtækja
eykst. Sem dæmi um slíkt er ár-
angur vinnuverndarstarfs í bresk-
um sjúkrahúsum. Þar fækkaði at-
vinnutengdum meiðslum og
álagseinkennum um 40-50% þeg-
ar gerð var áhættugreining og mat
á hugsanlegum hættum tengdum
því að lyfta sjúklingum, úrbætur
gerðar og vinnureglur settar. Ann-
að gott dæmi er frá breskri osta-
verksmiðju þar sem með mark-
vissum forvamaraðgerðum tókst
að fækka slysum um tæplega
helming og framleiðslan jókst um
25%.
I átaki Vinnueftirlitsins „Bak-
verkinn burt“ eru allir stjómendur
og starfsmenn fyrirtækja hvattir
til að gera átak innan síns fyrir-
tækis í forvömum gegn álagsein-
kennum í vöðvum og liðum.
Nýta reynslu starfsmanna
I vinnuverndarlögunum er
kveðið á um ábyrgð bæði starfs-
manna og stjómenda á að stuðla
að því að starfsskilyrði séu full-
nægjandi að því er varðar aðbún-
að, hollustuhætti og öryggi. í
þessu átaki „Bakverkinn burt“ er
viðeigandi að benda meðal annars
á „reglur um öryggi þegar byrðar
em handleiknar" og „reglur um
skjávinnu". Til að tryggja árang-
ursríkt forvarnarstarf innan fyrir-
tækja er mikilvægt að það sé unn-
ið í sameiningu stjómenda og
starfsmanna frá upphafi. Oft getur
reynsla starfsmanns nýst vel þeg-
ar huga þarf að hönnun nýrra
verkstöðva, aðlögun starfa eða
breytingu skipulags. Þann auð er
mikilvægt að nýta.
Tökum höndum saman, takið
þátt í átakinu. Bætum vinnuum-
hverfið og um leið heilsu og lífs-
gæði starfsmanna.
Vinnuverndarlögin er hægt að
nálgast á vefsíðu Vinnueftirlits-
ins: www.ver.is. Þar er einnig að
finna tengingu við átakið „Bak-
verkinn burt“.
Berglind Helgadóttir
sjúkraþjálfari VER
PRENTARINN ■ 21