Prentarinn - 01.04.2003, Blaðsíða 21
PRENTTÆKNISTOFNUN
ÁRITUN ENDURSKOÐENDA
Við höfum endurskoðað ársreikning Prenttæknistofnunar fyrir árið 2002. Ársreikningurinn hefur að
geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymi og skýringar nr. 1-19.
Endurskoðað var í samræmi við góða endurskoðunarvenju. Samkvæmt því ber okkur að skipuleggja og
haga endurskoðuninni þannig að nægjanleg vissa fáist um að ársreikningurinn sé í aðalatriðum án
annmarka. Endurskoðunin felur í sér athuganir á gögnum með úrtakskönnunum til að sannreyna
fjárhæðir og upplýsingar sem koma fram í ársreikningnum. Endurskoðunin felur einnig í sér athugun á
þeim reikningsskilaaðferðum og matsreglum sem notaðar eru við gerð ársreikningsins og mat á
framsetningu hans í heild.Við teljum að endurskoðunin sé nægjanlega traustur grunnur til að byggja álit
okkar á.
í skýringu nr. 10 í ársreikningnum er vakin athygli á stöðu Margmiðlunarskólans sem er í jafnri eigu
Prenttæknistofnunar og Rafiðnaðarskólans. Prenttæknistofnun hefur þegar greitt rúmlega 20 millj.kr.
vegna skulda Margmiðlunarskólans sem eru gjaldfærðar í rekstrarreikningi. Þar sem lokauppgjör vegna
Margmiðlunarskólans hefur ekki farið fram og ágreiningur er á milli eigenda hans um frágang
uppgjörsmála er Ijóst að ábyrgðir þessara aðila á skuldum skólans geta haft veruleg áhrif á
fjárhagsstöðu Prenttæknistofnunar.
Það er álit okkar, að teknu tilliti til ofangreinds fýrirvara, að ársreikningurinn gefi glögga mynd af rekstri
stofnunarinnar á árinu 2002, efnahag 31. desember 2002 og breytingu á handbæru fé á árinu 2002 í
samræmi við samþykktir og góða reikningsskilavenju.
Reykjavík, 25. mars 2003.
DFK Endurskoðun.
löggiltur endurskoðandi.
ÁRITUN SKOÐUNARMANNA
Við undirritaðir, skoðunarmenn Prenttæknistofnunar, höfum yfirfarið ársreikning stofnunarinnar fyrir
árið 2002. Með hliðsjón af áritun löggilts endurskoðanda samþykkjum við ársreikninginn.
Reykjavík, 25. mars 2003. ( r r
^ÓIafur Emilsson
Sveinn Hannesson
ÁRITUN STJÓRNAR OG FRAMKVÆMDASTJÓRA
Stjórn og framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar staðfesta hér með ársreikning stofnunarinnar fýrir
árið 2002 með undirritun sinni.Varðandi stöðu Margmiðlunarskólans er vísað í athugasemd í áritun
endurskoðanda svo og skýringu nr. 10 í ársreikningnum.
Reykjavík, 25. mars 2003.
Sæmundur Árnason
Stjórn :
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Petersen hjá Prentmet.
kerfi hefur verið tekið upp í námi
í upplýsinga- og fjölmiðlagrein-
um, prentiðngreinunr.
Skipulagið um þessar mundir
er eftirfarandi: Fyrsta eina og
hálfa árið er sameiginlegt fyrir
alla, siðan tekur við ein fagleg
önn. Eftir það tekur við 12 mán-
aða lota í starfsþjálfun hjá prent-
fyrirtæki. Að henni lokinni fer
viðkomandi í sveinspróf.
Starfsgreinaráð upplýsinga- og
fjölmiðlagreina vinnur nú að því
að ganga frá skipulagi starfsnáms
fyrir þetta nýja nám í samvinnu
við menntamálaráðuneyti. Þeim
aðilum sem hafa nema á samn-
ingi um þessar mundir er bent á
að hafa samband við Prenttækni-
stofnun. Engin viðbrögð bárust
vegna þessa bréfs.
í október 2002 lagði ráðuneyt-
ið fram verksamning við starfs-
greinaráð í upplýsinga-og fjöl-
miðlagreinum þar sem lagt var til
að byrjað yrði á 12 mánaða
vinnustaðaþjálfun fyrir 3 greinar,
prentun, prentsmíð og veftækni.
Starfsgreinaráðið fór mjög vel
yfir drögin, sem voru tekin til
umfjöllunar á fundi starfsgreina-
ráðs þann 22. október, en ítrekaði
þá skoðun sína að ekki væri rétt
að slíta verkefnið í sundur og
lagði því til að allar 8 greinarnar
yrðu unnar samhliða. Því féllst
starfsgreinaráðið ekki á fram-
lagðan samning.
I nóvember var eftirfarandi
bréf sent til Harðar Lárussonar,
samkvæmt beiðni hans.
A fundi starfsgreinaráðs upp-
lýsinga- og fjölmiðlagreina þann
22. október 2002 voru tekin til
PRENTARINN ■ 21