Prentarinn - 01.04.2003, Side 25
Veltufjármunir:
6. Útistandandi framlög nema í árslok 6,3 millj.kr. samkvæmt efnahagsreikningi og hefur þá verið lögð
til hliðar I millj.kr. í sérstakan varasjóð til að mæta vafasömum kröfum. Útistandandi framlög eru
færð samkvæmt skilagreinum í árslok. Félag bókagerðarmanna sér um innheimtu gjaldanna fyrir
Prenttæknistofnun.
7. Prenttæknistofnun á kröfu á RTV Menntastofnun ehf. vegna sölu á tölvubúnaði og kennslugögnum í
ársbyrjun 2000 í tengslum við stofnun á Margmiðlunarskólanum. Söluverð þessara eigna var
kr. 7.315.000 og var greitt með víxli á gjalddaga I. október 2001. Þar sem félagið hefur verið tekið
til gjaldþrotaskipta og óvíst er með innheimtu kröfunnar er hún færð til gjalda I ársreikningi
Prenttæknistofnunar en jafnframt tekið tillit til hennar við útreikning á ábyrgðum gagnvart Marg-
miðlunarskólanum sbr. skýringu nr. 10.
Eigið fé:
8. Yfirlit yfir eigið fé:
Eigið fé 1. 1.2002 ...
Tap ársins........
Eigið fé 31.12.2002
Skuidir
9. Heildarskuldir í árslok námu tæplega 1,4 millj.kr. og eru þær óverðtryggðar.
Ábyrgðarskuldbindingar:
10. Prenttæknistofnun er ásamt Rafiðnaðarskólanum í ábyrgðum fyrir skuldum Margmiðlunar-skólans.
Á árinu hafa verið greiddar rúmlega 20 millj.kr. vegna skulda Margmiðlunarskólans og er sú fjárhæð
gjaldfærð í rekstrarreikningi þar sem óljóst er með endurkröfu þeirrar fjárhæðar. Þar sem lokaupp-
gjör vegna Margmiðlunarskólans hefur ekki farið fram og ágreiningur er á milli eigenda hans um
frágang uppgjörsmála er Ijóst að ábyrgðir þessara aðila á skuldum skólans geta haft veruleg áhrif á
fjárhagsstöðu Prenttæknistofnunar.
Önnur mál:
I I. Rekstur Prenttæknistofnunar er fjármagnaður með framlagi sem er 1% af launum allra starfsmanna
með aðild að FBM samkvæmt samningum frá árinu 1991. Framlagið er ekki dregið beint af launum
starfsfólks heldur er launataxti 0,5% lægri en annars væri og atvinnurekendur bæta við 0,5%. Auk
þess hefur stofnunin tekjur af námskeiðum.
41.505.894
( 15.951,211)
25.554.683
slætti á tjaldstæðum. Aðsókn að
tjaldsvæðinu er góð en veður hef-
ur mikil áhrif á aðsókn á hverjum
tíma, en hún nær hámarki um
verslunarmannahelgina þegar
FBM og Miðdalsfélagið halda
sína árlegu barnaskemmtun.
Bjarni Daníelsson er með íbúðar-
húsið í Miðdal á leigu ásamt út-
haga og hefur jafnframt séð um
eftirlit með orlofshúsunum á vetr-
um.
Félag bókagerðarmanna og
safnaðarnefnd Miðdalskirkju
ásamt umsjónarnefnd kirkjugarða
hafa unnið að því að skipuleggja
bæjarhlað og umhverfi kirkju
ásamt bílastæðum. Þeim fram-
kvæmdum lauk formlega á síð-
asta sumri með vígslu bæjarhlaðs
og söguskilti var sett upp á bæjar-
hólnum.
Á árinu 2000 hófst samstarf
milli Félags málmiðnaðarmanna á
Akureyri og FBM um orlofsíbúð í
Reykjavík, félagar okkar af lands-
byggðinni hafa nýtt sér vel þenn-
an möguleika. Miðað við reynslu
síðustu tveggja ára hefur komið i
ljós að þetta fyrirkomulag virðist
ekki fullkomlega anna eftirspurn
eftir orlofsíbúð í Reykjavík og
hafa komið fram ítrekaðar fyrir-
spurnir frá félögum á landsbyggð-
inni, hvort ekki sé tímabært að fé-
lagið eignist orlofsíbúð í Reykja-
vík.
Ibúðimar i Furulundi em alltaf
jafh eftirsóttar og er undantekning
ef þær er ekki í leigu yfir orlofs-
tímabilið. Við höfum verið með
aðra íbúðina í fastri vetrarleigu en
hina fyrir félagsmenn að vetri og
hefur aðsókn verið nokkuð góð.
Þá eru hús í Ölfusborgum og á
Illugastöðum, eitt á hvorum stað,
sem hafa verið mjög vel nýtt yfir
sumartimann. Aðsókn að Ölfus-
borgum er einnig mikil á vetuma.
Húsið á Illugastöðum er allt ný-
standsett og endurbætt og settur
hefur verió heitur pottur við húsið
í Ölfusborgum og nú er unnið að
því að setja glerhýsi við húsið
sem vonandi verður tilbúið fyrir
sumarútleigu. Nokkur síðustu ár
höfum við verið með hús í skipt-
um við önnur félög. Því miður
hefur okkur ekki tekist að hafa
sama hátt á nú í sumar, þannig að
á næsta sumri getum við ekki
boðið upp á þann kost. Þá verða
tjaldvagnar til útleigu í sumar eins
og á síðasta sumri.
Þeir Guðjón Long og Guð-
mundur Guðmundsson komu að
rnáli við stjórn félagsins og buðu
félaginu hús sín til kaups. Stjóm-
in samþykkti að kaupa húsin. Við
sáum okkur hag í því að kaupa
hús Guðmundar við A götu 3 því
þar væri góður kostur að reisa
nýtt oriofsheimili og er nú verið
að teikna nýtt hús á þá lóð. Hug-
mynd félagsins með kaupum á
húsi Guðjóns er að þar er óvenju-
mikill tijágróður sem ber að
vernda og hugmyndin er að sú lóð
Guðmundur Gíslason hjá
Prentmet
verði útivistargarður fyrir félags-
menn.
I öðru tölublaði Prentarans
2002 var gerð ítarleg grein fyrir
því hvernig þjóðlendufrumvarpið
skerðir land okkar í Miðdal.
LÁTNIR FÉLAGAR
Frá síðasta aðalfundi hafa 13
félagsmenn látist. Þau eru: Bald-
vin Helgi Einarsson, Halldór
Magnússon, Jóhanna Þorleifsdótt-
ir, Jóhann Guðmundsson, Jón
Már Þorvaldsson, Jón Matthías
Hauksson, Matthildur Guðmunds-
dóttir, Ólafía Pétursdóttir, Páll
Arnar Guðmundsson, Steingrímur
Thorsteinsson, Steinunn Þorvarð-
ardóttir og Þór Ingólfsson.
Oddgeir Gunnarsson og Bragi
Guðmundsson hjá Prentmet
PRENTARINN ■ 25