Prentarinn - 01.04.2003, Side 26
YFIRIITSUPPDRATTUR
LJOS,
SKÝRINGAR:
EE3
I - I
CZZI
m
l~CT
CkipuUgimoik
Loðaimðik
B/ggingonoitui
MaHutUfna
GOngubiu yfir laak
Nuv. gðnguatigur
Mitvaaði
loðaittaarð
vagur
• t
Haaðaifjðldi b/ggmgai
Orlofthut i aigu Falagt bokagarðaimanna
Cumarhut l ainkaaign falagtmanna
Einungit tðkkull • huti
Hut tam varða fjailaagð
LANDFORM
GfHJtðfeOBT CP UNt«0 EfTR
1 oftmynd lit lottmyndM h I
Lumiihuialand I UM AHKO ðagt okl IV** I mkv t 4000
SumwlHjtaUnd I flM AHKO mOunodun hu-.gaiOa dag'. agu-.l IVM
niaytmg okl tOBfl. okt IVBV og apnl IWO
ORLOFSSVÆÐIÐ í MIÐDAL
Miðdalurinn er okkar orlofssvæði þar sem við jaíht og
þétt höfum verið að byggja upp orlofsaðstöðu fyrir okkar
félagsmenn, annarsvegar með því að gefa félagsmönnum
kost á því að vera með sín eigin sumarhús á skipulögðum
svæðum og eru nú 76 einkabústaðir í Miðdal. Hinsvegar
með þvi að byggja upp almenna orlofsaðstöðu með orlofs-
húsum og skipulagðri aðstöðu til útivistar, ásamt tjaldmið-
stöð með salemum og baðaðstöðu. Þá hafa verið lagðir
göngustígar vítt og breitt um orlofslandið.
Sú aðstaða sem við höfúm byggt upp hefur orðið til þess
að félagsmenn hafa kynnst Miðdalnum bæði að sumri og
vetri. Margar áhugaverðar gönguleiðir eru í Miðdal og
einnig getum við boðið félagsmönnum okkar upp á veiði i
sinni eigin silungsá.
Til að huga að frekari uppbyggingu orlofsaðstöðu í
Miðdal skipaði trúnaðarráð FBM orlofsnefnd sem hefur
haft með höndum að vinna tillögur. Hefur nefndin hafið
sitt annað starfstímabil en fyrsta verkefni hennar var að
gera tillögur um inntöku hitaveitu í orlofshús 1 og
þjónustumiðstöð á tjaldsvæði.
Nú er lokið við að setja hitaveitu í fyrsta orlofshúsið
ásamt heitum potti og nýrri og stærri verönd og einnig er
komin hitaveita í tjaldmiðstöðina.
Stjóm félagsins réð Landform ehf. til að gera tillögur að
þvj hvernig best yrði staðið að uppbyggingu og endumýjun
eldri orlofshúsa í Miðdal og tillögur að framtíðarskipulagi
orlofssvæðisins. Samkvæmt þeim tillögum sem hér em
kynntar teljum við það góðan kost að setja ný hús í stað
eidri húsa á Torfúna fyrir ofan orlofshús nr.l. Einnig er
tiHaga að því hvernig best væri að staðsetja nýtt hús á
lóðinni A-götu 6.
Besti kosturinn fyrir félagið væri að skipta út eldri hús-
um og setja ný, því nú eru gerðar meiri kröfúr til orlofs-
húsa en áður. Það er hagkvæmara að smíða ný heilsárshús
með heitum pottum en að endurnýja eldri hús sem nú eru
orðin tutmgu ára.
Orlofsnefnd er nú að láta vinna hugmyndir að nýjum
orlofshúsum á Torfunni, einnig er verið að teikna nýtt hús á
lóðina A götu 6.
Ljóst er að uppbygging á nýjum orlofshúsum er fjárfrek
ffamkvæmd og því gerum við ráð fyrir að framkvæmdir
geti tekið nokkur ár.
Stjórn FBM hefur samþykkt að yfirtaka lóðirnar B götu
4 og A götu 6 og varð að samkomulagi við handhafa
lóðanna að félagið keypti sumarhúsin er þar standa. Stjórn-
in samþykkti kaupin á þeim forsendum að það væri hagur
fyrir félagið að yfirtaka lóðina við A götu 6 vegna þess að
þar væri góður kostur að reisa nýtt orlofsheimili. Hugmynd
félagsins með yfirtöku lóðarinnar við B göm 4 er að þar er
óvenjumikill trjágróður sem ber að vernda og ætlunin er að
lóðin verði gerð að útivistargarði fyrir félagsmenn. Núver-
andi hús á B götu 4 og A götu 6 verða fjarlægð.
Hluti af orlofs- og útivistarsvæðinu í Miðdal er golfvöll-
urinn, en árið 1995 hófum við samstarf við golfklúbbinn
Dalbúa um uppbyggingu golfvallar í Miðdal og er þar nú
kominn níu holu golfvöllur og nægt landsvæði er til að
setja upp 18 holu völl.
Sú ákvörðun félagsins að setja upp golfvöll í Miðdal
hefúr mælst vel fyrir og sífellt fleiri félagsmenn nýta sér
aðstöðuna. Frá upphafi hefur FBM styrkt starfsemina á
margan hátt.
Skýrlngarmynd af orlofshusi viö A-gotu 6
Skýrlngarmynd af orlofshúsl vlö Torfuna 3
Greinargerö
Stjórn Félags bókagerðar-
manna óskar eftir samþykki
óverulegra breytinga á gild-
andi skipulagi sumarhúsa-
byggðar við Miðdal í Laugar-
dal í Arnessýslu. Jörðin er í
eigu Félags bókagerðar-
manna. Um er að ræða óveru-
lega breytingu á gildandi
skipulagi, skv. 2.mgr.26.gr
skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997. Gildandi skipu-
lag er unnið af ARKO og
dagsett 26.07.1997. Óskað er
samþykkis á endurbyggingu
og færslu þriggja orlofshúsa,
allt hús sem eru í eigu Félags
bókagerðarmanna. Húsin sem
á að rífa eru í lélegu ásig-
komulagi og hefur verið
ákveðið að byggja ný hús i
þeirra stað. Tvö húsanna eru
á svokallaðri Torfu. Þriðja
húsið er nr. 6 við A-götu. A
meðfylgjandi uppdrætti er
gerð tillaga um lóðarmörk
orlofshúsa er standa á Torf-
unni, en engin lóðarmörk eru
sýnd á eldri skipulagsupp-
dráttum við þessi fjögur hús.
Jafnframt er gerð tillaga um
götuheitið Torfan og húsnúm-
erin 1-7.
Aöstæöur á
byggingarstab:
Hús nr. 6 við A-götu stendur
neðst í gróinni brekku,
umlukt stórum trjám og verð-
ur það selt til flutnings. Ósk-
að er eftir leyfi til að nýtt hús
verði byggt eilítið ofar í
brekkunni, þ.e. norðan við
húsið sem stendur þar í dag.
Húsin á Torfunni standa efst á
bungu og hallar land frá þeim
niður að Nýgræðilæk. Birki
og kjarrgróður er gróskumik-
ill allt í kringum húsin. Óskað
er eftir að byggingarreitur
Torfugötu 4 og 8 flytjist eilít-
ið til suðvesturs og að húsin
verði látin stallast þar sem
hæðarmunur á landinu er
töluverður. Húsin munu með
þessum hætti standa nær Ný-
græðilæknum og njóta sín
betur í landslaginu og að-
koma að þeim verður öll
rýmri en hún er í dag.
26 ■ PRENTARINN
PRENTARINN ■ 27