Prentarinn - 01.04.2005, Page 10
Ólafur Sigurjónsson hjá
Guðjóni Ó.
Atvinnumálanefndin hefur unnið
að byggðamálum. Menntanefnd
sér um menntamálin (MFA) og
velferðarnefnd hefur fundað
m.a. að verðskrá lyfjamála. Með
þátttöku okkar í lífeyrisnefnd
eigum við nú fulltrúa í þeirri
nefnd er vinnur að endurskoðun
lífeyriskerfisins ásamt Samtökum
atvinnulífsins og einnig nefnd er
endurskoðar slysatryggingar.
Þá verður að geta þess að í
síðustu kjarasamningum fengum
við ómetanlega aðstoð frá
Stefáni Úlfarssyni hagfræðingi
ASÍ en aðstoð hans skipti okkur
miklu máli í endurskoðun
á vaktavinnukafla okkar
kjarasamnings.
Þorkell Sigurðsson hjá Gutenberg
10 ■ PRENTARINN
SJÚKRASJÓÐUR BÓKAGERÐARMANNA
REKSTRARREIKNINGUR ÁRSINS 2004
Skýr. 2004 2003
Rekstrartekjur:
Iðgjöld 27.689.574 26.264.100
Rekstrartekjur samtals 27.689.574 26.264.100
Rekstrargjöld :
Sjúkradagpeningar og styrkir 20.604.109 14.279.928
Skrifstofukostnaður 4 8.836.458 7.967.259
Húsnæðiskostnaður Afskriftir 1.268.942 1.736.878 48.257
Rekstrargjöld samtals 30.709.509 24.032.322
Rekstrarhagnaður (-tap) (3.019.935) 2.231.778
Fjármunatekjur (og fjármagnsgjöld) :
Vaxtatekjur og verðbætur Vaxtagjöld og verðbætur 3 11.007.987 8.351.828 (1.070)
Fjármunatekjur (og fjármagnsgjöld) 11.007.987 8.350.758
Hagnaður ársins 7.988.052 10.582.536
Á ársþingi ASÍ 2004 varð
Félag bókagerðarmanna
formlega eitt af aðildarfélögum
ASÍ. Fulltrúar FBM á þinginu
voru þau Sæmundur Árnason,
Georg Páll Skúlason, Bragi
Guðmundsson, Hrafnhildur
Ólafsdóttir og Stefán Ólafsson.
Á þinginu kom fram áskorun um
að FBM tæki sæti í miðstjórn
og samþykktu okkar fulltrúar
að Georg Páll færi í framboð,
niðurstaðan varð sú að Georg
Egill Pétursson hjá Guðjóni Ó.
Páll náði kjöri sem varamaður
í miðstjórn. Því á nú FBM
varafuiltrúa í miðstjórn en
áratugir eru síðan okkar félag
hefur átt fulltrúa í miðstjórn ASÍ.
Stjórn og trúnaðarráð
FBM hefur skipað eftirtalda
til setu í nefndir innan ASI:
Atvinnumálanefnd: aðalmaður
Bragi Guðmundsson, til vara
Sæmundur Árnason. Mennta-
og útbreiðslunefnd: varamaður
Stefán Ólafsson. Lífeyrisnefnd:
Georg Páll Skúlason, til
vara Bragi Guðmundsson.
Velferðarnefnd: Pétur Ágústsson,
til vara Stefán Ólafsson.
Skipulags- og starfsháttanefnd:
Sæmundur Árnason, til vara
Georg Páll Skúlason.
Lífeyrisnefnd ASI
FBM hefur átt fulltrúa í
nefnd ASÍ um lífeyrismál þar
sem fjallað hefur verið um
lífeyriskerfið og endurskoðun
samnings ASI og SA í ljósi
gerðra kjarasamninga á
almennum vinnumarkaði
sem flestir gerðu ráð fyrir
1% aukningu á framlagi
atvinnurekenda þann I. janúar
2005 og aftur 1% aukningu
þann 1. janúar 2007. Vinna
nefndarinnar hefur að mestu
snúist um að meta stöðu
lífeyriskerfisins og fara yfir
hvernig réttindi sjóðfélaga verði
tryggð.
I upphafi var gert ráð fyrir að
8% framlag atvinnurekenda á
móti 4% framlagi starfsmanns
yrði til þess að auka réttindi
og jafna bilið milli starfsfólks
á almennum vinnumarkaði og
opinberra starfsmanna. I ljós
hefur komið að með auknum
lífaldri þjóðarinnar og þyngri
byrði vegna örorkubóta hjá
lífeyrissjóðum er ljóst að hluti
af þessari viðbót fer í að verja
þau réttindi sem fyrir eru og t.d.
11% lífeyrisiðgjald sem kom
til framkvæmdar 1. janúars.l.
hjá sjóðfélögum Sameinaða
lifeyrissjóðsins veitir sömu
réttindi og 10% gerðu áður. Ef
aukningin hefði ekki kornið til
hefði þurft að skerða réttindi og
réttindaöflun.
í viðræðum ASÍ og SA um
endurskoðun á kjarasamningum
um lífeyrismál hefur komið
fram að mikilvæg rök hníga í
þá átt að taka upp aldurstengda
réttindaávinnslu. Kom þetta
m.a. fram í samkomulagi aðila
um framkvæmd á hækkun