Prentarinn - 01.11.2005, Síða 5
Odda til Þýskalands og hann setti
saman smá pistil fyrir mig og fer
hann hér á eftir.
„Þann 15. sept. fór ég til
Druckerei Carl Ziegler sem er
prentsmiðja í litlu þorpi, Neckar
Bischofsheim, sem er skammt frá
Heidelberg. Þangað fór ég í
mánuð sem skiptiprentari sem
þýðir að prentari ffá Ziegler kom
í Odda í mánuð. Þessi hugmynd
fór af stað á fullu fyrr á árinu,
aðallega fyrir tilstuðlan Þorsteins
Torfasonar framleiðslustjóra,
Ragnars Kristjánssonar deildar-
stjóra og Emu Arnardóttur starfs-
mannastjóra. Stjóm Odda tók vel
í þessa hugmynd og var Þorsteini
falið að finna fyrirtæki í Þýska-
landi sem væri til í þetta. Prent-
tækni- og Fræðslusjóður veitti
styrk til að mæta kostnaði sem
óhjákvæmilega fylgir svona verk-
efni. Ziegler var fyrsta fyrirtækið
sem var boðið þetta af þýska
„bókagerðarfélaginu" og slógu
þeir strax til. Þetta hafa verið
mjög fróðlegar og skemmtilegar
vikur og margt öðmvísi en ég á
að venjast. Hér eru 2 prentvélar,
hvor tveggja Heidelberg
Speedmaster CD með vatnslakk-
junimm, önnur 4 lita en hin 6
lita. Þessi prentsmiðja er mikið í
miðaprentun allskonar og oft er
um mikla stönsun, rifgötun eða
fellingu að ræða sem þeir ffarn-
kvæma „inline“ eða um leið og
prentað er. Þá má lýsa þessu í
stuttu máli þannig að í stað
blankets er sett plastplata sem
millimetrafólía er fest á eftirá.
Stansinn eða rifgötunaijárn hafa
verið staðsett og límd á fólíuna
með hliðsjón af prentörk. A
pressucylinder eru límdir jakkar
til verndar cylindrunum. Það sem
ég sá af þessu kom mjög vel út,
þó stundum hafi verið um stór
upplög að ræða. Einnig voru þeir
að prufa sig áffam í dripp-off
lakkaðferð sem er þannig að
prentað er með dual-effekt olíu-
lakki það sem ekki á að vatns-
lakkast, því þegar vatnslakkið
prentast ofan á olíulakkið festist
það ekki við og getur þetta komið
mjög vel út. Þarna er einnig bók-
band með brotvélum, heftivélum,
fræsara ofl. en stærstu verkefni
bókbandsins eru þó skafmiðar
ýmiskonar. Þar eru miðamir
númeraðir og silfur skaf-fólía
limd yfir. Meðal þeirra stærstu
viðskiptavina í þessu er Nin-
tendo.
Meðan á dvöl minni stóð gisti
ég hjá forstjóra prentsmiðjunnar,
Joakim Bloss, konu hans Angelu
og börnum, Mattus, Jana og
Linus. Þetta var alveg hreint
yndislegt fólk sem var að sýna
mér allt það helsta hér í kring og
get ég seint þakkað þeim fyrir
gestrisnina og þann vinskap sem
þau sýndu mér.“
Matthias hreifst rnjög af íslensbi náttúru.
er að prenta eitt verk þá bíður
næsta verk og jafnvel tvö og
menn eru famir að ganga frá
pappír í verkin löngu áður. Það er
ekki verið að skera af ríspakkn-
ingum rétt áður en það á að
prenta. Það er gengið frá papp-
írnum, stokkað og lagt til í tíma
til þess að stoppa aldrei prentvél-
ina. Hér er dálítið öðmvísi
mórall. I Þýskalandi er mórallinn
þannig á vinnustaðnum að vinna
er vinna og snafs er snafs og við
höldum þessu aðskildu. íslend-
ingar virðist mér mjög símaglað-
ir. Hér tala menn mikið í sima í
vinnunni og svo eru þeir með
headphone á hausnum sem geta
virkað truflandi en á móti kemur
að Islendingar eru mjög ffamar-
lega í tæknimálum og hér er
tölvulæsi mikið sem er ekki í
Þýskalandi. Þýskur yfirmaður
sem labbaði í gegn um svona
fyrirtæki, hann myndi ömgglega
taka eftir þessu. Munurinn á
svona gömlu iðnaðarsamfélagi
eins og er i Þýskalandi og svo hér
er sá að í Þýskalandi hafa menn
lagt mikið uppúr því að stytta
vinnudaginn og menn eru ein-
beittir i vinnunni svo það geti
gengið eftir.
Hvað finnst þér wn svona
skipti?
- Þetta opnar augun fyrir öðru-
vísi vinnufyrirkomulagi og það er
alveg ógleymanlegt að koma
hingað. Mitt áhugamál er útivera
og ég er búinn að fara víða og
langar mikið að koma hingað
aftur með fjölskylduna.
Ingjaldur t.h. með þýskum kollega.
Ég búinn að fara á Snæfells-
nes, Jökulsárlón, gullna þríhyrn-
inginn og í Þórsmörk, þetta er
búið að vera alveg æðislegt. Ég
er ekki mikið fyrir að fara á bari.
Barir em alls staðar eins í öllum
löndum. Það er margt miklu
merkilegra á íslandi en barir.
Eitthvað sem þú vilt segja að
lokum?
- Mig langar bara að þakka
öllum hér í Odda fyrir þetta
tækifæri, að fá að koma hingað.
Þetta er búið að vera mjög fint.
Ingjaldur skiptir
yfir til Ziegler
Eins og fram kom áður fór
Ingjaldur Valdimarsson prentari í
PRENTARINN ■ 5