Prentarinn - 01.11.2005, Page 8
Bœkurnar ofan frá. Takið eftir hvernigfilman liður i gegn um allar Hópurinn í París ogfyrir framan EJfeilturninn, nema hvað!
bœkurnar.
hvers? Pabbi Kjartans hljóm-
borðsleikara í Sigur Rós er búinn
að vera á námskeiði hér og mjög
áhugasamur og hann hefur verið
að binda heima og strákurinn
sjálfsagt ekki komist hjá því að
taka eftir hvað pabbi hans væri
að gera. Mjög líklegt að þaðan sé
hugmyndin komin. Einn daginn
datt hann Jónsi hérna inn á gólf
og vildi fá Ragnar til að binda
þetta en það var allt of stuttur
tími og ómögulegt fyrir einn
mann að gera þetta. Hann var að
leita að öðru vísi efnum en Oddi
hafði boðið honum uppá.
J: Var þetta umslag unnið
héma heima?
G: Ég er ekki viss um það. Það
em engar upplýsingar á disknum
en þetta er alveg heil bók og
mjög flott. En þetta er ekki allt.
Álafosskórinn, sem við erum í
ásamt foður Kjartans, var fenginn
til að syngja inn á eitt lagið á
plötunni, Emilíana Torrini er líka
með mjög fallega hönnun á
sínum diski. Fólk sem er í
útgáfustarfsemi á að kynna sér
alla möguleika á því sem bók-
band býður uppá.
25 ára afmæli
Þann 2. nóvember s.l. voru 25 ár síðan Félag bókagerðarmanna
var stofnað og var af því tilefni efnt til afmælisveislu í
félagsheimilinu á Hverfisgötu 21. Jón Atli Jónasson rithöfúndur
og leikritaskáld las úr bók sínni í frosti og veitti gestum innsýn í
áhugamál sitt sem er söfnun bóka. Hann giskaði á að safn hans
teldi u.þ.b. 7000 bækur og geri aðrir betur. Formaður félagsins
Sæmundur Árnason flutti stutta tölu um félagið og gat þess að ef
hann ætti að tæpa á öllum helstu atriðum í sögu félagsins dygði
kvöldið ekki til þess og sleppti gestum með ca. 10 mínútna ræðu!
Um músíkina sá Tríó Haraldar en það skipa þeir Jakob Viðar og
Snorri en þeir eru að góðu kunnir fyrir spilamennsku á við-
burðum FBM. M.a. hafa þeir leikið á jólaböllum félagsins.
Veislugestir sem voru um 40 gerðu góðum veitingum og kaffi-
drykkjum góð skil en í tilefni afmælisins gerði KaffiTár afmælis-
kaffidrykk sem nefnist Prentarinn.
Sœmundur Arnason formaður flutti stutta rœðu i tilefni dagsins. Efst
til vinstri eru þeir Snorri og Jakob Viðar sem léku við hvern sinn
fingur.
8 ■ PRENTARINN