Prentarinn - 01.11.2005, Qupperneq 15
F.v. Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, Helga Jónsdóttir, Stefania
Magnúsdóttir, Anna Karen Hauksdóttir, Sœmundur Árnason og Georg
Páll Skúlason. A myndina vantar Þór Ottesen.
efnahagslega, félagslega og al-
menna heilsuvernd launafólks.
Ein alþjóðasamtök
Núverandi skipulag alþjóðavæð-
ingarinnar þarf að breytast til að
tryggja rétt verkafólks. Þetta kom
fram í ræðu Guy Ryder, sem
talaði f.h. ICFTU, sem eru sam-
tök alþjóðaverkalýðssamtaka.
Hann skýrði frá því að unnið
væri að því að koma saman ein-
um heimssamtökum alþjóðasam-
taka en þau eru tvenn í dag
ICFTU og WCL.
Verkalýðsfélög gegna
lykilstöðu í að hjálpa
konum á vinnumarkaði
Hillary Clinton þingmaður
ávarpaði þingið á myndbands-
upptöku og sagði að verkalýðs-
félög gegndu lykilstöðu við að
auka hlutverk kvenna á vinnu-
markaði. „Við getum ekki van-
metið mikilvægi verkalýðsfélaga
í að vekja athygli á málefiium
sem skipta konur og fjölskyldur
þeirra mestu máli; aðgengi að
menntun, heilsugæslu, vinnu og
viðurkenningu."
2. Heimsráðstefna kvenna í UNI
sem haldin var skömmu íyrir þing-
ið kallaði eftir nýjum leiðum til að
vinna gegn launamun kynjanna og
jafna möguleika þeirra og enda
alla mismunum milli þeirra á
vinnumarkaði. Mannsæmandi
vinna er aðalatriði til að draga úr
fátækt og byggja upp félagslega
sanngimi. Þetta var niðurstaða
þeirra 528 þátttakenda sem komu
frá 217 verkalýðsfélögum í 77
löndum.
Ungt fólk þarf líka
mannsæmandi vinnu
A ungliðaráðstefnunni sem
haldin var í Chicago á undan
UNI þinginu var ákveðið að
styðja fundarskrána um mann-
sæmandi vinnu (Decent Work
Agenda). 40 ungir menn og kon-
ur frá 23 löndum kröfðust mann-
sæmandi vinnu og lögðu áherslu
á það hve mikið atvinnuleysi er
hjá ungu fólki um allan heim. Á
ráðstefhunni var biðlað til ungs
fólks að taka þátt i að marka
stefnu og koma henni í fram-
kvæmd um allan heim og hafa
frumkvæði að því að grunnfor-
senda fyrir viðunandi vinnu yrði
háð hæfni einstaklinga.
UNI viðurkenndi Ungliða-
hreyfinguna sem miðdepil ung-
liðabaráttunnar á ráðstefhunni.
„Við heyrum oft að unga fólkið
sé framtíðin en við erum einnig
nútíðin," sagði Silvio Woolands,
forseti ungliða UNI. Hann minnti
þingið á að ungu verkafólki væri
stöðugt mismunað á vinnumarkað-
inum, látið eftir ótrygg störf eða
atvinnuleysi. Dimitra Makri forseti
ungliða UNI í Evrópu krafðist
þess að UNI og aðildarfélög þess
nýti þann auð sem felst í ungu
fólki í félögunum til að bæta líf
þess og vinnuaðstæður og láta
heyrast í ungu fólki.
Betri heimur
Auk þess að taka upp ffam-
kvæmdaáætlun um mannsæm-
andi vinnu var komið af stað
áætlun um það að vinna með
ýmsum alheimssamtökum að því
að styrkja alþjóðafrið, lýðræði og
öryggi. Þátttakendur á ráðstefn-
unni höfnuðu öllum formum
kynþáttafordóma og UNI ætlar að
tryggja það að innflutt vinnuafl
verði ekki misnotað.
Á ráðstefnunni var áhersla lögð
á það að stéttarfélög hafa mikil-
vægu hlutverki að gegna við það
að koma í veg fyrir útbreiðslu
HIV/AIDS og krafa var gerð um
að samningar yrðu gerðir við
vinnuveitendur og ríkisstjómir
gagnvart HIV/AIDS og einnig
betri atvinnu-, heilbrigðis- og
öryggisáætlanir til þess að upp-
lýsa og vemda vinnuafl. Mynda-
sýningin Inside AIDS var til
sýnis, styrkt af alheimssamtökum
UNI, UNI-SATU, SETCa-FGTB
og stuðningssamtökum.
Tsunami: Viðbrögð
heimsins við svæðis-
bundnum vandræðum
Nauðsyn fyrir hröð viðbrögð og
hjálp eftir hörmungarnar sem
gengu yfir Asíu í lok síðasta árs
var mætt með góðum viðbrögð-
um ffá aðildarfélögum UNI.
377.000 svissneskir ffankar söfn-
uðust eða andvirði 17,5 milljóna
íslenskra króna í alþjóðlegan
samstöðusjóð UNI vegna flóð-
anna. FBM veitti 500.000 kr.
styrk í söfhunina.
Joe De Bmyn forseti SDA í
Ástralíu notaði tækifærið á
heimsþinginu og þakkaði fyrir
hönd allra á svæðinu. Framlög
eru nú notuð í fjölda verkefna og
þátttakendur heyrðu ffá tveim
fulltrúum af svæðinu.
ASPEK (Indónesíu) hefur sett
upp verkalýðs-hjálparmiðstöð í
Aceh héraði sem varð illa úti og
Koswara, fulltrúi þeirra, skýrði
hvernig þessi miðstöð hefði að-
stoðað félaga við að byggja upp
að nýju. Kannaka Hewage Sunil
frá UPTO hefur stýrt sambæri-
legri starfsemi á Sri Lanka, einu
landanna sem einnig urðu fyrir
hörmungunum.
Þátttakendur krefjast
aðgerða gegn fátækt
I einu hádegishléinu tóku þátttak-
endur sig til, komu saman og
kröfðust þess að fátækt um allan
heim yrði útrýmt. Þeir báru hvít
bönd gegn fátækt og sungu, fögn-
uðu og studdu kröfur um það að
ríkisstjórnir gerðu meira til þess
að útrýma fátækt. Kumi Naidoo,
baráttumaður gegn fátækt og tals-
maður Global Call for Action
Against Poverty, sagði þátttak-
endum það að sl. sumar „hefði
fólkið öskrað og G8 hvíslað“ því
engar sérstakar breytingar urðu á
efnahagslíkaninu sem kom út af
fundi G8 í Gleneagles i Skot-
landi.
Á samkomunni í hádegishléinu
söfnuðu þátttakendur á þinginu
meira en 5,000 dölum eða rúm-
lega 300.000 íslenskra króna fyrir
Heartland Alliance for Human
Needs and Human Rights.
Þú munt aldrei vinna einn
(You will never work
alone) - Vöxtur verkalýðs-
hreyfingarinnar á alþjóða-
vísu
Alþjóðasamtökin UNI eru að
skipuleggja sig til að takast á við
fjölþjóðafyrirtæki í kjölfar sam-
þykktar þingsins á „Aðgerðaáætl-
un fyrir vöxt verkalýðshreyfing-
arinnar á alþjóðavísu". Lykilatriði
er að byggja upp bandalag milli
verkalýðsfélaga, mynda nefndir
og gera alþjóðasamninga. UNI
mun stýra alheimsverkefnum i
skipulagningu.
Á fréttamannafundi i Chicago
kynnti UNI áætlun gagnvart
fyrirtækjum í umsjón fasteigna til
að hjálpa ræstingarfólki í
Hollandi og öryggisvörðum sem
ráðnir eru af fjölþjóðafyrirtækj-
um í Indlandi, Þýskalandi, Suður-
Afriku og Póllandi. „Fjölþjóða-
fyrirtæki þýðir að krafa er um
fjölþjóða skipulagningu og fjöl-
þjóðaverkalýðsfélög".
Þingið vakti athygli á hinni
alræmdu stefhu fjölþjóðafyrir-
tækisins Wal-Mart gegn verka-
lýðsfélögum. UNI er að hefja við-
ræður við fyrirtækið. Alla vikuna
sem þingið stóð var stöðug fjöl-
miðlaumfjöllun um aðgerðir UNI
gegn fjölþjóðafyrirtækjum sem
ekki vilja gera heildarsamninga
sem virða rétt verkafólks. I lok
vikunnar skýrði Wal-Mart ffá því í
fjölmiðlum að fyrirtækið hygðist
taka upp viðræður við UNI.
Philip Jennings aðalritari UNI
sagðist hlakka til viðræðna við
PRENTARINN ■ 15 I