Prentarinn - 01.11.2005, Síða 20
Arsfundur
Nordísk
Grafisk Union
Sæmundur Árnason
Ársfundur NGU 2005 var haldinn
á Marstand við Gautaborg dagana
13. - 15. júní.
Fulltrúar FBM voru þeir
Sæmundur Ámason og Pétur
Ágústsson. Túlkur var Magnús
Einar Sigurðsson.
Ársfúndurinn var settur
skömmu eftir hádegi 13. júní af
Jan Österlind, formanni sænska
félagsins, er bauð þingfulltrúa
velkomna til fúndarins. Pertti
Raitoharju, formaður NGU, tók
síðan við fúndarstjórn og fór
nokkrum orðum um þær breyt-
ingar sem hefðu orðið og væru
fyrirsjáanlegar meðal aðildar-
félaga NGU. Norska félagið væri
gengið til samstarfs við Fælles-
forbundet, Finnland og Svíþjóð
stæðu frammi fyrir miklum
breytingum og Danir hefðu kosið
sér framtíð innan HK og SID. Þá
hefur finnska félagið ákveðið að
hefla viðræður við Industri um
samstarf eða samruna í nýtt
félag. Þá ræddi hann nokkuð
kosningarnar um stjómarskrá
Evrópusambandsins og taldi að
það sem hefði vegið þyngst í
Neiinu hefði verið spurningin um
félagsleg réttindi. Taldi að fólkið
vildi félagsleg réttindi. Því næst
bauð hann velkomna tvo gesti
fúndarins, þá Bo Rönngren frá
Sænska LO og Michel Muller
formann UNI - Grafiska.
Pertti fór því næst yfir dagskrá
þingsins.
Þá var tekið til við dagskrá
fundarins. Tvær breytingar urðu á
hópi þátttakenda, þ.e. tveir
fulltrúar Dana forfölluðust og því
voru þingfúlltrúar 21 í stað 23.
• Kosin var uppstillingarnefnd
og var Pétur fúlltrúi FBM í
henni.
• Ársskýrsla stjórnar fyrir árið
2004 var samþykkt.
• Reikningar samþykktir með
halla upp á 412.533 sænskar
krónur.
• Tvær ráðstefnur voru sam-
þykktar fyrir næsta starfsár, þ.e
framtíð NGU og ráðstefna um
vinnuumhverfi.
• Félagsgjaldið ákveðið óbreytt,
16 kr. sænskar á hvern starf-
andi félagsmann.
Kosið í stjórn og nefndir:
• Stjórn NGU til 2008:
Formaður Pertti Raitoharju,
varamaður Irene Hamalainen
(Finnland).
Varaformaður Bjarne Nielsen,
varamaður Peter Andersen
(Danmörk).
Meðstjómandi Anders Skatt-
kjær, varamaður Björn Harald
Kristiansen (Noregur).
Meðstjórnandi Jan Österlind,
varamaður Tommy Anderson
(Svíþjóð).
• Fulltrúar NGU í UNI: Bjarne
Nielsen og Jan Österlind.
Varamenn Peter Andersen,
Tommy Andersen, Anders
Skattkjær og Sæmundur Áma-
son.
• Fulltrúar NGU í UNI - Grap-
hical: Jan Österlind, varamaður
Anders Skattkjær.
■ Fulltrúar NGU í UNI - Grap-
hical Europa: Pertti Raitoharju,
varamaður Irene Hamelanien.
• Fulltrúar NGU í fastanefnd
UNI:
Bjarni Nielsen aðalmaður,
Anders Skattkjær og Peter
Andersen varamenn.
Jan Österlind aðalmaður, Pertti
Raitoharju og Sæmundur
Árnason varamenn.
Erindi: Bo Rönngren frá sænska
LO ræddi um innrás verkamanna
ffá Austur-Evrópu inn á sænskan
vinnumarkað sem er orðin stórt
vandamál, bæði vegna undirboða
í launum og á félagslegum rétt-
indum. Þarna er um ágreining að
ræða, þ.e. innri markað, frjálsa
for fjármagns, vinnuafls, vöru og
þjónustu.
Eiga starfsmenn að hafa þau
kjör sem tíðkast í gistilandinu
eða eru það kjör heimalandsins
sem gilda? Þá gat hann þess að
verkefni sem Lettar tóku að sér í
byggingariðnaði í Svíþjóð hefði
verið stöðvað af verkalýðshreyf-
ingunni, en atvinnurekendur
hefðu kært það til Evrópudóm-
stólsins.
Það er ljóst að atvinnurekendur
margbrjóta lögin um fijálst flæði
vinnuafls, þvi það er réttur vinnu-
landsins sem gildir, ekki réttur
heimalandsins. Ef Svíar tapa mál-
inu er allt í uppnámi vegna undir-
boða frá Austur-Evrópu.
Því er brýn nauðsyn að standa
vörð um félagsleg réttindi.
Michael Muller, formaður UNI
- Graphical Europa, og formaður
franska félagsins, hóf mál sitt á
því að þakka norrænu félögunum
fyrir þeirra framlag til alþjóða-
samstarfsins. Ræddi um stofnun
alþjóðlegs verkalýðssambands
sem áformað er að stofna eftir
alþjóðaráðstefnu UNI í Chicago i
ágúst. Taldi orsökina fyrir því að
stjórnarskrá Evrópusambandsins
var felld vera of mikið bil á milli
stjórnvalda og fólksins, það
vantaði félagsleg grundvallarrétt-
indi og tryggingar inn í pakkann.
Þá taldi hann að það þyrfti meira
samstarf á milli grafísks iðnaðar
og upplýsingaiðnaðar. Ljóst er að
atvinnurekendur víðs vegar um
heim og ekki síst í Evrópu hafa
tekið sig saman og keyra mark-
visst á félagsleg réttindi og krefj-
ast í auknum mæli aukins og
sveigjanlegs vinnutíma.
Skýrslur landanna
Danmörk - mikill samdráttur
vegna samkeppni frá Austur-
Evrópu, en mikil samstaða um að
verjast láglaunafólki og halda
uppi launum samkvæmt kjara-
samningum. Krafa frá atvinnu-
rekendum um aukinn sveigjan-
leika og aukinn vinnutíma. Eru
að setja upp námskeið fyrir
prentara og bókbindara, vice
versa, til að auka breidd í starfi.
Þá er mikill samdráttur í fram-
leiðslu á bylgjupappa vegna sam-
keppni frá erlendum auðhringum
(smurfitt) sem þýðir fækkun
starfa og fýrirtæki flytja úr landi.
Finnland: Þar er verkfall í papp-
írsiðnaði og hefúr staðið í fjórar
vikur, krafa atvinnurekenda er að
unnið sé á jólum og Jónsmessu
án launahækkunar. Vilja hætta að
greiða tvo fyrstu veikindadaga.
Sögðu einnig frá áætlun um sam-
runa við Industri.
Noregur: Þar er hætt að greiða
fyrsta dag í veikindum. Mikið um
uppsagnir vegna samruna fyrir-
tækja og prentverk fer úr landi.
Sviþjóð: Þar eru miklar deilur
vegna innrásar erlendra verka-
manna og hvaða samningar eiga
að gilda. Þá voru sett lög þar sem
skipt var á öðrum í hvítasunnu
fyrir frí á þjóðhátíðardegi. Eru í
viðræðum við Metal, matvæla-
iðnaðinn og SIF. Stefna að því að
leggja tillögur fyrir ársþing 2006.
Einnig flutti ég skýrslu um
stöðuna á Islandi og sagði meðal
annars frá launakönnuninni og
launamun kynjanna.
Næsti ársfundur NGU verður í
Færeyjum i júní 2006.
20 ■ PRENTARINN