Prentarinn - 01.11.2005, Qupperneq 24

Prentarinn - 01.11.2005, Qupperneq 24
gríðarlegt og óhætt að segja að það hafa tapast miklir ijármunir vegna þessa á síðustu árum. Alls kyns viðbætur og viðgerðir á forritunum og stýrikerfunum hafa verið gerðar og letrinu sjálfu breytt - allt til þess að okkar heittelskuðu þýð komi fram. Við getum farið að anda léttar. Er þetta vesen þá ekki alveg að verða búið? Letrið, eins og við sjáum það, komið á pappír eða tölvuskjá, er í öllum meginatriðum byggt á sömu forsendum og fyrr á tímum. Það er að segja leturformin, stafagerðin. Tæknilega séð er allt annað upp á teningnum. Mikill munur er frá útskornum stöfum eða steyptum í blý yfir í letrið eins og við notum það í dag. Letrið sem við setjum á tölvurnar er tölvuforskrift, nokkurs konar forritsbútur, sem forrit sækja til þess að mynda leturformin. Forskriftin segir til um lögun letursins, staðsetningu tiltekinna punkta í hnitateikningu, stafabil og því um líkt. Þótt ekki sé í grundvallaratriðum flókið að teikna letur eru að baki býsna margar reglur sem þarf að fylgja til að letur standist allar kröfur sem kunna að verða gerðar til þess í vinnsluferli prentverka. Svo dæmi sé tekið er útlínuteikn- ing leturs andsælis, það er frá hægri til vinstri og í stöfum eins og O er þá innri hringurinn í hina áttina til þess að mynda flöt með gati í gegn. Þetta er samkvæmt PostScript-staðli. Við myndum sjá alveg eins O þótt teikningunni væri alveg snúið við. En einstaka útkeyrslutæki gera ekki ráð fyrir því og gefa villuboð við þetta. Ýmiskonar pyttir af þessum toga hafa myndast og munu gera áfram ef ekki er vandað til verka. Annað dæmi eru nöfn á letri. Við sjáum nöfnin á letrinu bæði á tölvunni og í valseðli. En inni i letrinu sjálfu eru fleiri uppsetning- ar af nafhinu og strangar reglur um hvernig þau eru framsett. Ekki gildir það sama fyrir makka og pc. Windows stýrikerfið leyfir til dæmis aðeins að notað sé Regular, Italic, Bold og Boldltalic sem stílanöfn á letri og því getur staðið í bæði tölvum og útkeyrslutækjum þegar notuð eru stílanöfn eins og Light eða þá skrifað upp á íslensku, eins og til dæmis Feitt sem ég hef séð. Það er því í mörg horn að líta þegar búið er til letur. Þegar svo við bætist að nýir leturstaðlar bætast við eins og OpenType, með enn fleiri staðla, þyngist enn róðurinn hjá þeim sem vinna við hönnun leturs. Eitt er að teikna leturformin sjálf og annað að gæta þess að letrið upp- fylli alla nauðsynlega staðla. Þetta er farið að sliga marga leturhönn- uði verulega, hönnuði sem ætluðu bara að búa til letur en ekki fást um eitthvert tæknimaus. Fljá stærstu útgefendum leturs er þetta þannig að letur kemur ffá letur- hönnuðum en tæknimenn hjá þeim eiga að tryggja að stöðlum sé fylgt. Smærri aðilar og einstak- lingar sem gefa út letur þurfa að verða sér úti um þessa þekkingu sjálfir eða leita til sérífæðinga. OpenType-sniðið, sem nú ryður sér mjög til rúms þessa dagana, er annars ffábær viðbót við leturflóruna. Það býður upp á ýmsa nýja möguleika sem aðeins voru til í villtustu draumum fyrir nokkrum árum. Hvert letur getur innihaldið alls kyns aukatákn sem áður þurfti að nálgast í auka- útgáfúm af letrinu, til dæmis í OldStyle-pakka eða þá Small- Caps. Núna er hægt að setja þetta allt inn í sama letrið og hægt að bjóða upp á aukaútgáfur af hverj- um staf. Þannig má gera skriftar- letur eðlilegra ef notaðar eru mis- munandi gerðir af stöfum sem koma mörgum sinnum fyrir í texta. Hefðbundið letur, TrueType og Typel hafa aðeins leyft að 256 stafir séu í hverju letri en OpenType getur innihaldið allt að 65.000 tákn. Það þýðir að nánast öll ritmál heimsins komast fyrir í einu og sama letrinu. Af ffamansögðu er ljóst að víða getur brugðið út af í beinum tengslum við letrið sjálft og er hér þó fátt eitt nefnt. Ég er þó alls ekki að reyna að hræða neinn upp úr skónum. Stöðugt er unnið að því að gera okkur lífið með letr- inu einfaldara þótt á sama tíma virðist stundum sem bakgrunn- urinn sé sífellt að verða flóknari. Ýmis góð forrit eru ffamleidd til þess að koma betra skipulagi á leturstýringu á tölvunum og önnur til þess að reyna að gera hönnun á letri öruggari tæknilega. Himinninn er því ffekar bjartur þótt eitt og eitt ský renni sér yfir hann og sturti regni yfir okkur. Höfundur er hönnuður og sér um fimmtíu og sjö tölvur á Islensku auglýsingastofunni. Hann heldur úti vefsetrinu www.font.is þar sem hann fjallar um leturmál og ýmis önnur tölvutengd mál. ðlfusborgir 40 ára Orlofsbyggðin í Ölfusborgum fagnar um þessar mundir 40 ára afmæli sínu. Byggðin sem er fyrsta orlofshúsabyggð verka- lýðshreyfingarinnar hefur veitt ómældum fjölda félagsmanna í FBM og öðrum verkalýðsfélög- um ánægjustundir í gegnum árin. Það var um 1960 sem Alþýðusamband íslands undir forystu Hannibals Valdimars- sonar hóf undirbúning að orlofs- húsabyggð fyrir aðildarfélögin. Undirbúningur og bygging tók u.þ.b. 5 ár en húsin voru tekin í notkun vorið 1965. Húsið okkar nr. 13 sem Bók- bindarafélag íslands lét reisa á sínum tíma er eitt 36 húsa sem eru á svæðinu og hefur verið vinsælt á flestum tímum. Eins og gefur að skilja hefur húsið þurfi á endurnýjun að halda og frá 1992 þegar húsið var bæði stækkað og endumýjað hefur aðsókn verið afar góð, sérstaklega hefur að- sókn verið góð að vetri eftir að bætt var heitum potti við húsið en það var gert árið 2000. Orlofshús FBM í Ölfusborgum. Fyrirkomulag í Ölfusborgum vegna leigu á húsum er með þeim hætti að eignaraðilar geta nýtt hús hver frá öðrum ef svo ber undir. T.d. ef húsið okkar er laust má leigja það félagsmönn- um innan annarra félaga sem aðild eiga að rekstrarfélaginu og eins geta mögulega fleiri bókagerðarmenn verið með hús en við eigum sjálf, ef eitthvað er laust af húsum hjá öðmm og eftirspum er mikil. Þannig næst allt að 100% nýting á húsin sem er afar mikilvægt. Einnig er hús sem ætlað er hreyfihömluðum félagsmönnum og er það leigt öllum aðildarfélögum. 24 ■ PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/952

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.