Verktækni - 01.03.2001, Page 10
P mjíJj1 iW
KTFÍ
Skipan manna í embætti
A fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar
skiptu stjórnarmenn með sér verkum:
Oli Jón Hertervig var skipaður varafor-
maður, Bjarni Bentsson ritari, Harald-
ur Sigursteinsson gjaldkeri og aðrir
stjórnarmenn meðstjórnendur. Mikael
Jóhann Traustason var skipaður fjöl-
miðlafulltrúi.
Samningar við sveitafélög
Góður skriður er kominn á samninga
við sveitarfélög og er búist við að hægt
verði að ljúka þeim í marsmánuði.
Samningar við ríki
Nýr kjarasamningur var undirritaður
við ríki 28. febrúar s.l. Kynningarfund-
ur var haldinn að Engjateigi 9 miðviku-
daginn 14. mars. Á fundinn mættu
u.þ.b. tuttugu og fimm manns fyrir utan
samninganefnd sem kynnti samninginn.
Atkvæðagreiðsla
um samninga við ríki
Samninganefnd félagsins við ríki
áltvað að fara eftir ályktun aðalfund-
ar að allsherjaratkvæðagreiðsla fari
fram um samninginn samkvæmt grein
18.1 í lögum félagsins. Samninga-
nefndin fól stjórn KTFÍ að skipa
kjörnenfnd og voru eftirtaldir aðilar
skipaðir í kjörnefnd: Bergþór Þor-
móðsson formaður kjörnefndar, Ingv-
ar Baldursson og Haraldur Baldurs-
son. Nefndin hefur tekið til starfa og
stefnir að því að ijúka störfum í
mars mánuði.
Fjölskyldu- og styrktarsjóður
Skipað hefur verið í stjórn Fjöl-
skyldu- og styrktarsjóðs sem samið
var um á síðasta ári. I stjórnina hafa
eftirtaldir verið skipaðir: Oli Jón
Hertervig, Bjarni Bentsson og Þór
Sigurþórsson. Stjórnin mun setja sér
starfsreglur og semja úthlutunarregl-
ur sem verða kynntar síðar í Verk-
tækni.
Orlofsmál hjá OBHM
Á síðasta ári sóttu 46 félagar um or-
lofshús og eða íbúðir á vegum OBHM
en eins og allir ættu að vita þá er
KTFI meðlimur í samtökunum. Aðeins
fjórum var hafnað um úthlutun á síð-
asta ári. Þetta er mun betri útkoma
en árið á undan og hvetur stjórn
KTFI þá félaga sem rétt hafa að sækja
um. Uthlutunin var auglýst í frétta-
hréfi OBHM.
Kjarabók
Stjórn félagsins hefur hafið undirbún-
ing að nýrri Kjarabók. Um er að ræða
handbók þar sem allir samningar fé-
lagsins verða, svo og ýmsar aðrar upp-
lýsingar um kjaramál. Um er að ræða
viðamikið verkefni sem taka mun
nokkurn tíma. Umsjónarmaður Kjara-
bókar verður Haraldur Baldursson. 1
Kjarahókinni munu einnig verða margs
konar hagnýtar upplýsingar um kjara-
mál og málefni sem varða alla félags-
menn. Ætlunin er að allir tæknifræð-
ingar félagar í KTFI fái Kjarahókina
senda heim.
Vísinda- og
starfsmenntunarsjóður
Félagsmenn eru minntir á réttindi sín í
Vísinda- og starfsmenntunarsjóðnum en
aðild að honum eiga félagsmenn TFI
sem starfa hjá ríki og Reykjavíkurborg
eða fyrirtækjum sem hafa gerst aðilar að
sjóðnum. Á síðasta ári var úthlutað 90
styrkjum sem skiptast í inegin atriðum í
51 styrk til námskeiða, ráðstefnu- og
kynnisferða og 39 styrki til kaupa á
tölvubúnaði. Afgreiðslufrestur er jafnan
innan við 14 dagar en hámarksupphæð
styrks er kr. 300.000,- Umsóknareyðu-
blað er að finna á heimasíðu TFI og
nánari upplýsingar fást á skrifstol'u fé-
lagsins.
Stjórn KTFÍ.
Grænumýri 5, 270 Mosfellsbæ • Sími 566 6606
Fax 566 6619 • tmmos@islandia.is
>terk og hagkvæm lausn.
Vegna mikils styrkleika og lítillar
rngdar, hentar KERTO límtré vel við
krefjandi endurbætur.
KERTO límtré
10