Verktækni - 01.03.2001, Side 13
árangurinn; arkitekt í'innst höfundarverki
sínu spillt og brunahönnuður hefði kosið
aðrar og betri lausnir; bæði öruggari og
hagkvæmari.
Stór rými hafa fylgt nýjum straumum í
arkitektúr. Opið skrifstofulandslag, þ.e.
stór, opin rými með aðstöðu fyrir fjölda
starfsmanna, gerir allt starfsumhverfi
opnara og meira lifandi. Heyrnin er hins
vegar kröfuhart skynfæri. Pað þarf eltki
lengi að leita í hiifuðborginni til þess að
finna nýtt skrifstofuhúsnæði þar sem erfið
hljóðvist hefur snúið fyrrnefndum ávinn-
ingi upp í andstöðu sína. I íbúðabygging-
um eru áður óþekkt vandamál að hrúgast
upp. Hér stefnir hka flest að stærri rým-
um en áður. Enn eykur á vandann að
hljóðfræðifega hörð byggingarefni eru í
tísku. Niðurstaðan er stór, björt og falleg
rými með takmarkað notagildi vegna óþol-
andi glymjanda. Það er ekki hægt að tala
saman í þeim. Ekki nóg með það. Sökum
ónógrar ]>ekkingar á eiginleikum hljóðs
Ijölgar stöðugt málaferlum vegna ófull-
na;gjandi hljóðeinangrunar milli fljúða í
fjölbýli. Sárgra^tUegt er að fólk er í góðri
trú að brjóta ákvæði Byggingarreglugerð-
ar með því að standa ekki rétt að verki
við niðurlögn nýrra gólfefna. Hvorki við-
komandi ráðgjafar, sölumenn gólfefnis né
iðnaðarmenn virðast vita betur.
Ekki þarf að fara inörgum orðum um
íslenskt veðurfar; um tíða storma, slag-
veður, skafrenning, langa birtudaga hluta
úr ári og ör skipti miUi frosts og þíðu.
Araun á mannvirki er um margt óvenju-
mikil hér á landi. Mikfll hluti veður-
tengdra vandamála í mannvirkjum stafar
af ófullnægjandi frágangi og lausnum;
röngu efnisvali og rangri uppsetningu
byggingarhluta. Stöðugt koma fram ný
efni og aðferðir í hyggingariðnaði. Það
þarf sérfræðikunnáltu til að leysa þau eðl-
is- og efnisfræðilegu vandamál sem upp
koma þegar glíml er við íslenskt veðurfar.
Yið verðum að læra af reynslunni. Oþai fi
er að endurtaka mistök eða villur sem
gerðar hafa verið vegna vanþekkingar eða
skorts á upplýsingum. Odýrast er að leysa
vandamálin á hönnunarstigi og því brýnt
að kalla til sérfræðinga þegar kemur að
frágangi þaka, glugga, hurða og útveggja
svo dæmi séu nefnd. Ekki má heldur
gleyma því að sýna göndu handverki,
uppruna og sögu mannvirkja sjálfsagða
virðingu. Þar þurfa sérfræðingar einnig
að koma til skjalanna.
Hér verður okkur, ágætu arkitektar,
verk- og tæknifræðingar, að renna blóðið
til skyldunnar: Komum málum í betra
horf og ræðum stöðuna í alvöru við við-
skiptavini okkar og verkkaupa. Við getum
ekki aðgerðalaus látið almannaheill lönd
og leið. I sainfélagi sem okkar, þar sem
liver og einn verður að eignast sína eigin
íbúð, eru þeir fjölmargir sem tapa stórum
hluta eigna sinna vegna þess að við höfum
ekki komið réttri þekkingu nægilega vel á
framfæri. Hagsmunir fyrirtækja og opin-
berra aðila eru þeir sömu.
/ marsmánuði 2001
Ólafur Hjálmarsson
Hjalti Sigmundsson
Arni Arnason
Arinbjörn Friðriksson
AUir ráðgjafar á verkfrœðistofunni
Línuhönnun hf
ÍSBERG ER ÖRT VAXANDI FYRIRTÆKI SEM ÞJÓNAR
FYRIRTÆKJUM Á HÓTEL OG VEITINGAHÚSAMARKAÐI
pt ti
—•MM
' T
ÍSBERG selur allar vörurfyrir eldhús,
veitingasali, mötuneyti og hráefnisgeymslur.
ÍSBERG veitir viðskiptavinum sínum ráðgjöf
við val á tækjum og fyrirkomulag á eldhúsum.
ISBERG býður einnig uppá húsgögn
fyrir ráðstefnusali, veitingasali, mötuneyti,
skóla, leikskóla og hótelherbergi.
ÍSBERG selur tauþvottvélar, þurrkara, þeytivindur
og strauvélarfyrir stór iðnaðarþvottahús.
* ÍSBERG
HÓTEL- & VEITINGAVÖRUR
Sundaborg 1-104 Reykjavík • sími 5 200 850
Fax 5 200 855 • Netfang: isberg@isberg.is
13