Verktækni - 01.03.2001, Side 14
M e n « f a »i 3 I
Tækniskóladagurinn
Tækniskóli íslands ásamt Hollvinafélagi TÍ stóð fyrir fjöl-
breyttri dagskrá sunnudaginn 4.mars til kynningar á náms-
framboði skólans og tengslum hans við íslenskt atvinnulíf.
Tæknifræðingafélag Islands kynnti starfsemi sína þennan
dag. Mikill áhugi var hjá nemendum og sendu 17 aðilar inn
umsókn sem ungfélagar. Talið er að gestafjöldi hafi verið á
milli 800 og 1000.
Nemendur einstakra deilda voru í forsvari kynninga eigin
námsbrauta en alls er hægt að ljúka námi frá TI með 15
mismunandi lokaprófum frá 7 deildum.
Gestum stóðu til boða 11 fyrirlestrar um sérhæfð við-
fangsefni. Fyrrum nemendur greindu frá lokaverkefnum
sínum frá TI og má þar nefna verkefni um lagningu járn-
hrautar til Keflavíkur, ílutning Reykjavíkurflugvallar, fyr-
irtækið X-18, hreyfilhitara og snurvoðarvindu. Þá komu
einnig fyrirlesarar úr atvinnulífinu og fjölluðu um tengsl
Tækniskólans við fyrirtæki, neðanjarðarlestarkerfi í
Reykjavík, nýjustu tækni í læknisfræðilegri myndgreiningu,
TETRA fjarskiptatæknina og um TI sem lifandi skóla í
breytilegu umhverfi.
Oli Jón Ilertervig.
Engjateigur 7 og kaupin á hlut Lífeyrissjóðs verkfræðinga í Engjateigi 9
Engjateigur 7 eflir félagsstarfið!
Á aðalfundi VFÍ 1999 var samþykkt „að
fela stjórn félagsins að kanna möguleika
á nýtingu lóðarinnar að Engjateigi 7
með þeim ha;tti sem best samræmist
langtíma-hagsmunum félagsins“ eins og
segir m.a. í samþykktinni. I framhaldi
af samþykktinni skipaði stjórn VFI sér-
stakan starfshóp sein samdi útboðsgögn.
I framhaldi af því leitaði starfshópurinn
til tveggja verktakafyrirtækja, Islenskra
aðalverktaka hí'. og Istaks hf. um tilboð
í byggingu skrifstofuhúsnæðis.
I útboðsgögnum var gert ráð fyrir
nokkrum valkostuin sem ekki verður
gerð grein fyrir hér. Niðurstaða starfs-
hópsins var að tilboð aðila væru svo lík
að ekki væri ha;gt að gera upp á milli
þeirra en stjórn VFI taldi að ef aukin
nýting fengist á lóðina umfram 0,51
væri tilboð Istaks liagstæðara. Því var
gengið til samninga við Istak um bygg-
ingu skrifstofuhúsnæðis þar sem hlutur
VFI yrði 11% eignarinnar og ga;ti VFI
valið sér stað í húsinu þegar teikningar
lægju fyrir.
Nú eru framkvæmdir hafnar við bygg-
ingu sem er 2519,0 m2 og er nýtingar-
hlutfall lóðarinnar 0,60 eða um 15%
meira en áætlað var. Auk þess er 1093,6
nr bílageymsla í húsinu.
Stjórn félagsins ákvað á sama tíma og
samningar voru gerðir og í samræmi við
yfirlýsingu á aukaaðalfundi að tekjur af
eignarhluta VFI í Engjateigi 7 rynnu til
félagssjóðs. Þessar tekjur eru áa;llaðar á
þessu ári um 4.0 milljónir en leigu-
greiðslur vegiia húsnæðisins hófust 1.
september 2000.
Kaup á hlut Lífeyrissjóð verkfræð-
inga í Engjateigi 9 - góð fjárfesting!
A tveimur aukaaðalfundum 1999 var
samþykkt að VFI nýtti sér forkaupsrétt
á eignarhluta Lífeyrissjóðs verkfræðinga
í Engjateigi 9 (30,98%). Kaupverðið var
60.675.000 kr. og fjármagnað þannig að
Lífeyrissjóður verkfra;ðinga lánaði
42.955.000 kr. til 20 ára og greiddi
þriggja ára húsaleigu fyrirfram aí’ vest-
urhluta I. hæðar og geymslum í kjall-
ara. Útborgun var 10.000.000 kr.
greiddar úr hússjóði og félagssjóði.
Rök sem lögð voru fram fyrir kaup-
unum á sínuin tíma eru í fullu gildi.
Fasteignamat lielur hækkað um 34%
frá því kaupin voru gerð og tekju- og
greiðsluáætlunin sem lögð var fyrir
aukaaðalfund í september stenst að
öðru leyti en því að á sl. ári reyndist
óhjákvæmilegt að ráðast í viðhald á
þaki hússins og stigagangi. Vitað var
að ráðast þyrfti í þessar framkvæmdir
en vonast hafði verið til að ekki þyrfti
að ráðast í þær eins íljótt og raun varð
ó. Fyrir liggur að koma lyftu í húsið
uin leið og fjárhagsstaða hússjóðs leyf-
ir.
Eignin Engjateigur 9 gefur okkur
tækifæri til að bæta enn þjónustuna
við félagsmenn, eí'la ímynd VFÍ og
treysta t(;ngsl og eí'la samstarf við
önnur félagasamtök.
A næstu vikum hyggst stjórn VFI
leggja fram hugmyndir um framtíðar-
notkun Engjateigs 9.
Logi Kristjánsson,framkv.stj. VFI.
14