Verktækni - 01.03.2001, Page 14

Verktækni - 01.03.2001, Page 14
M e n « f a »i 3 I Tækniskóladagurinn Tækniskóli íslands ásamt Hollvinafélagi TÍ stóð fyrir fjöl- breyttri dagskrá sunnudaginn 4.mars til kynningar á náms- framboði skólans og tengslum hans við íslenskt atvinnulíf. Tæknifræðingafélag Islands kynnti starfsemi sína þennan dag. Mikill áhugi var hjá nemendum og sendu 17 aðilar inn umsókn sem ungfélagar. Talið er að gestafjöldi hafi verið á milli 800 og 1000. Nemendur einstakra deilda voru í forsvari kynninga eigin námsbrauta en alls er hægt að ljúka námi frá TI með 15 mismunandi lokaprófum frá 7 deildum. Gestum stóðu til boða 11 fyrirlestrar um sérhæfð við- fangsefni. Fyrrum nemendur greindu frá lokaverkefnum sínum frá TI og má þar nefna verkefni um lagningu járn- hrautar til Keflavíkur, ílutning Reykjavíkurflugvallar, fyr- irtækið X-18, hreyfilhitara og snurvoðarvindu. Þá komu einnig fyrirlesarar úr atvinnulífinu og fjölluðu um tengsl Tækniskólans við fyrirtæki, neðanjarðarlestarkerfi í Reykjavík, nýjustu tækni í læknisfræðilegri myndgreiningu, TETRA fjarskiptatæknina og um TI sem lifandi skóla í breytilegu umhverfi. Oli Jón Ilertervig. Engjateigur 7 og kaupin á hlut Lífeyrissjóðs verkfræðinga í Engjateigi 9 Engjateigur 7 eflir félagsstarfið! Á aðalfundi VFÍ 1999 var samþykkt „að fela stjórn félagsins að kanna möguleika á nýtingu lóðarinnar að Engjateigi 7 með þeim ha;tti sem best samræmist langtíma-hagsmunum félagsins“ eins og segir m.a. í samþykktinni. I framhaldi af samþykktinni skipaði stjórn VFI sér- stakan starfshóp sein samdi útboðsgögn. I framhaldi af því leitaði starfshópurinn til tveggja verktakafyrirtækja, Islenskra aðalverktaka hí'. og Istaks hf. um tilboð í byggingu skrifstofuhúsnæðis. I útboðsgögnum var gert ráð fyrir nokkrum valkostuin sem ekki verður gerð grein fyrir hér. Niðurstaða starfs- hópsins var að tilboð aðila væru svo lík að ekki væri ha;gt að gera upp á milli þeirra en stjórn VFI taldi að ef aukin nýting fengist á lóðina umfram 0,51 væri tilboð Istaks liagstæðara. Því var gengið til samninga við Istak um bygg- ingu skrifstofuhúsnæðis þar sem hlutur VFI yrði 11% eignarinnar og ga;ti VFI valið sér stað í húsinu þegar teikningar lægju fyrir. Nú eru framkvæmdir hafnar við bygg- ingu sem er 2519,0 m2 og er nýtingar- hlutfall lóðarinnar 0,60 eða um 15% meira en áætlað var. Auk þess er 1093,6 nr bílageymsla í húsinu. Stjórn félagsins ákvað á sama tíma og samningar voru gerðir og í samræmi við yfirlýsingu á aukaaðalfundi að tekjur af eignarhluta VFI í Engjateigi 7 rynnu til félagssjóðs. Þessar tekjur eru áa;llaðar á þessu ári um 4.0 milljónir en leigu- greiðslur vegiia húsnæðisins hófust 1. september 2000. Kaup á hlut Lífeyrissjóð verkfræð- inga í Engjateigi 9 - góð fjárfesting! A tveimur aukaaðalfundum 1999 var samþykkt að VFI nýtti sér forkaupsrétt á eignarhluta Lífeyrissjóðs verkfræðinga í Engjateigi 9 (30,98%). Kaupverðið var 60.675.000 kr. og fjármagnað þannig að Lífeyrissjóður verkfra;ðinga lánaði 42.955.000 kr. til 20 ára og greiddi þriggja ára húsaleigu fyrirfram aí’ vest- urhluta I. hæðar og geymslum í kjall- ara. Útborgun var 10.000.000 kr. greiddar úr hússjóði og félagssjóði. Rök sem lögð voru fram fyrir kaup- unum á sínuin tíma eru í fullu gildi. Fasteignamat lielur hækkað um 34% frá því kaupin voru gerð og tekju- og greiðsluáætlunin sem lögð var fyrir aukaaðalfund í september stenst að öðru leyti en því að á sl. ári reyndist óhjákvæmilegt að ráðast í viðhald á þaki hússins og stigagangi. Vitað var að ráðast þyrfti í þessar framkvæmdir en vonast hafði verið til að ekki þyrfti að ráðast í þær eins íljótt og raun varð ó. Fyrir liggur að koma lyftu í húsið uin leið og fjárhagsstaða hússjóðs leyf- ir. Eignin Engjateigur 9 gefur okkur tækifæri til að bæta enn þjónustuna við félagsmenn, eí'la ímynd VFÍ og treysta t(;ngsl og eí'la samstarf við önnur félagasamtök. A næstu vikum hyggst stjórn VFI leggja fram hugmyndir um framtíðar- notkun Engjateigs 9. Logi Kristjánsson,framkv.stj. VFI. 14

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.