Verktækni - 01.03.2001, Page 21

Verktækni - 01.03.2001, Page 21
Hugbónaáur Hugbúnaðarverkfræði kennd við HÍ Skortur á tölvunarfræðingum veldur því að rnargir nemendur fara að vinna í stað þess að ljúka námi. Onn- ur aíleiðing, ekki síður alvarleg, er að sárafáir fara í framhaldsnám. Til dæmis hafa örfáir Islendingar lokið doktorsprófi í tölvunarfræði síðasthð- in tíu ár. Þetta kemur fram í viðtali við Helga Þorbergsson, dósent í tölv- unarfræði en hann er einn þeirra sem hafa unnið að undirbúningi náms í hugbúnaðarverkfræði við Háskóla Is- lands. Síðastliðið haust íluttist tölvunarfræðin úr raunvísindadeild Háskóla Islands yfir í verkfræðideild. Astæðan var sú að tölv- unarfræðin þótti eiga meiri samleið með verkfræðinni og þá skapaðist tækifæri til að koma á fót hugbúnaðarverkfræði í Há- skóla íslands. En hvað er hugbúnaðarverkfræði? - Hugbúnaðarverkfræði sem slík er ekki ný af nálinni. Þessi grein hefur verið til og skilgreind í rúmlega 30 ár. Nýjasta skilgreiningin úr IEEE staðli 612.12 hljóðar eitthvað á þessa leið: „Notkun kerfisbundinna, agaðra og mælanlegra aðferða til að þróa, nota og viðhalda liug- búnaði, Jt.e. notkun verkfræðilegrar að- íerðafræði við hugbúnaðargerð,...“. Það er ]>ví verið að beita verkfra;ðileg- um aðferðum við allt hugbúnaðarferlið, allt frá þarfagreiningu kerfa til viðhalds þeirra. Þetta er nokkuð sem hefur vantað hér á landi, sérstaklega varðandi gæða- þáttinn. Til þess þarf verkfræðilega und- trstöðu að viðbættum nýjum námskeiðum sem tekin verða upp í tölvunarfræðiskor og sérstaklega sniðin að þessari nýju námsgrein. Hafa margir sótt þetta nám erlendis? -Nei, mér er ekki kunnugt um það. Nem- endur, bæði hér heima og eins þeir sem hafa lokið námi í erlendum skólum, hafa lokið framhaldsnámi í tölvuverkfræði þar sem meiri áhersla er á vélbúnaðarþátt- inn. Nemendur sem ætla í þetta nám niunu taka grunn sem er sameiginlegur öllum verkfræðigreinum á fyrsta ári. A öðru misseri færist námið nær hugbúnað- arverkfræðinni sem slíkri og síðan að öllu leyti á öðru og þriðja námsári. Það er algengt að verkfræðinemar taki valgreinar innan tölvunarfræðinnar og markaðurinn liefur áhuga á að við menntum nemendur á þessu sviði. Þeir sem ljúka námi í hugbúnaðarverkfræði eiga að geta þróað áreiðanlegan gæðahug- búnað en á það hefur skort hér á landi sem og annars staðar. Nú er skortur á fólki sem er menntað í verkfræði og tölvunarfræði. Hefur Há- skólinn einhver tök á því að laða til sín fólk í þessar greinar? Það er erfitt að feta sig á þeirri leið. Iláskóli lslands verður að sinna skyld- um sínuin og þær samrýmast ekki alltaf stundarhagsmunum markaðarins. Við viljum tryggja gæði námsins og útskrifa hæft fólk og við teljum okkur gera það enda er eftirspurn eftir okkar nemend- uin mjög mikil. Það er hins vegar stað- reynd að það er einungis ákveðinn fjöldi stúdenta sem getur tekist á við þetta nám. Nýneinar í verkfræði- og raunvísindadeildum Háskóla íslands eru rúmlega 400 á ári hverju, sem er um 10% af árganginum. Miðað við önn- ur lönd er þetta ekki svo slæmt. Ný- nemar í tölvunarfræði eru u.þ.b. 150- 160 og af hverjum árgangi eru um það bil 60 sem ljúka námi. Þetta samsvarar ]>ví að vera 1,5% af árganginum sem er ekki nóg miðað við Jiarfir markaðarins. Til að anna eftirspurn þurfum við að útskrifa 80-100 tölvunarfræðinga á ári. Verðið þið vör við að þessi mikla eftirspurn valdi því að fólk hætti í námi? - Já, og það er afskaplega slæmt. Það er allt of algengt að nemendur snúi ekki til baka úr sumarvinnunni eftir fyrsta árið. Þeir meta stöðuna þannig að þeir fái ekkert fjárhagslega út úr ]>ví að Ijúka námi. Það er reyndar enn meira áhyggjuefni að nemendur fara ekki í framhaldsnám. Til dæmis hafa örfáir lokið doktorsprófi í tölvunarfræði síð- astliðin tíu ár. Það vekur upp þá spurningu liver eigi að kenna ]>essar greinar í Háskóla Islands eftir 15-20 ár? Þegar fólk hefur lokið B.S. náminu er freistandi að hugsa fyrst og fremst um budduna. Staðan er þannig að það er verið að bjóða fólki allt of há laun á þessum markaði, hvort sein það eru ný- skrifaðir tölvunarfræðingar eða þeir sem ekki ljúka námi. Það er vanhugsað hjá fólki að ljúka ekki meistaraprófi því það gefur möguleika á hærri laun- um og áhugaverðari störfum. Við von- um að þeir sem fara í hugbúnaðarverk- fræðina séu líklegir til að fara í fram- haldsnám. Það kemur m.a. til af því að þeir fá þar með rétt til að kalla sig verkfræðinga og starfa sem slíkir að loknu framhaldsnámi. HÁÞRYSTI DÆLUR - fyrir heimilið RAFVER SKEIFUNNI 3E-F • SÍMI 581 2333 ■ FAX 568 0215 rafver@simnet.is 21

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.