Verktækni - 01.03.2001, Blaðsíða 26

Verktækni - 01.03.2001, Blaðsíða 26
Workflow Detail: Understand Stakeholder Needs i Mynd 2 : Lýsing verkþáttar í þarfagreiningarvinnuferli RUP Hugmyndafræöi RUP Notkunardæmi(Use Cases) eru forsenda allra vinnuferla í RUP. Það hefur sýnt sig að þau eru góð leið til þess að hafa stjórn á og afmarka þær þarfir sem liggja til grundvallar hugbúnaðinum. A endanum eru notkunardæmi samningur milli hugbúnaðarfyrirtækis og verk- kaupa/fjárfestis um virkni hugbúnaðar- ins. Einn meginkostur notkunardæma er að lýsa afmörkuðum þáttum hugl)únað- ar á auðveldari hátt, en þegar hefð- bundin þarfagreining, í formi samfeUds texta, er notuð. Notkunardæmi eru einnig hentug eining til verkefnastjórn- unar. RUP er ítrað hugbúnaðarferli. Reynslan hefur sýnt að þegar hugbúnað- arverkefni eru leyst með svoköUuðu fossaferli, þar sem fyrst er þarfagreint, síðan hannað, smíðað prófað og gang- sett, gerist j*að oft, að þeir sem taka við hugbúnaðinum segja „ Þetta er gott, en....þetta þarf að vera iiðruvísi“. Þetta leiðir til þess að fara þarf aðra ferð í gegnum fossalíkanið. Þannig kemur fram óvænt ítrun, sem kann að hafa í för með sér kostnað sem verkefnið stendur ekki undir. Með ítruðu hugbúnaðarferli er gert ráð fyrir að forsendur breytist og ein- ungis greint, hannað, smíðað og gang- sett, það sem yfirsýn er yfir á hverjum tíma. Verkefnið er því byggt uj*p ineð ítrunum þar sem fossaferlið er endur- tekið á skilgreindan hátt, með það að markmiði, að eyða þeirri óvissu sem veg- ur þyngst hverju sinni. Ski|)ulag ítrunar er sett fram í ítrunaráætlun, en eitt af hlutverkum verkefnisstjórans er að skij*uleggja hverja ítrun innan þeirrar verkefnisáætlunar sem na*r til heildar- verkefnisins og skilgreinir J)á fjármuni og mannafla sem settur er í verkefnið. Mikilvægt er að taka el'tir að í hverri ítrun er unnið í mörgum vinnuferlum sainthnis (sjá Mynd 1). Þarfagreining, hönnun, smíði og prófanir eru Jiannig í gangi samhliða, gegnum alla ílrunina. Vinnuinagn innan livers vinnuferlis er ])ó mismunandi eftir stiiðu verksins á hverjum tíma. Vinnuferlin hal'a því á- hrif livert á annað og auka á þekkingu á viðfangsefninu meðan á ítruninni stend- ur. Leitast er við að ljúka ítrun með út- gáfu af hughúnaðinuin og jiróí'a liana með viðtakendum. Á Jiennan hátt er komið til inóts við breyttar þarfir og nýjar hugmyndir og laka J*a;r ineð í skijiulagningu á næstu ítrunum verkefn- isins. Grundvallarhugmyndin er |>ví að vinna ekki með stærri hluta af kerfinu en ha;gt er að liafa yfirsýn ylir liverju sinni. Notkunardæmi henta mjög vel til |>essarar afmörkunar. Eftir hverja ítrun er staða verkefnisins metin á skilgreind- an hátt og leitast við að sjá fyrir hvorl verkefni eigi á hættu að sprengja ])á ramina sem J*ví haf'a verið settir og bregðast við |>ví áður en miklir fjármun- ir hafa farið í súginn. RUP setur arkitektúr í fyrirrúm. Honum er lýst með UML ritum sem unn- in eru í hönnunarumhverfi eins og t.d. RationalRose frá Rational. Liigð er áhersla á að hyggja hugbúnaðinn uj)j) í kringum vel skilgreindan arkitektúr með skilgreindum tengslum milli þeirra í- liluta sem inynda hugbúnaðinn. Strax í upphafi verkefnisins er leitast við að koma uj)j) frumgerð arkítektúrsins, sem síðan er bætt utaná með ítrunuin. Ahættuþættir eru unnir fyrst til að sann- reyna livort arkitektúrinn standi undir væntingum í J)ví verkefni sem verið er að leysa. RUP stýrir verkefnum með J*ví að skilgreina alltaf næstu skrel’ verkefnis- ins. Megináhersla stjórnunar verkefna í RUP felst í að eyða áhættujtáttum eins lljótt og ha:gt er, þannig að ha:gt sé að bregðast við og jafnvel stöðva verkefni áður en í óefni er komið. Aha:ttulisti er |>ví eitt af stjórntækjum verkefna í RUP. Af öðrum stjórntækjum má nefna verk- efnaáætlunina sem skilgreinir heildar- ramma l’yrir verkefnið og ítrunaráætl- unina sem skilgreinir námkvæmlega |>að sem vinna á í viðkomandi ítrun. RUP skilgreinir aðferðir til þess að ha:gt sé að fylgjast með framgangi og gæðum verk- efna og skilgreinir hvað þurfi að vera uj)j)fyllt til að vörðu í ferlinu sé náð. RUP er ekki gæðakerfi, en skilgreinir hugbúnaðarferlið eins og gæðakerfi og tryggir skjölun, rekjanleilca og mælan- leika verkefna. RUP hentar J*ví mjög vel sein grunnur að innleiðingu og votl- unar á gæðakerfi eins og t.d. CMM eða IS09001. Innleiðing RUP RUP skilgreinir hvernig hægt er að að- laga ferhð að þörfum bæði stórra og lít- illa fyrirtækja. Innleiðing RUP í hug- búnaðarfyrirtæld felst í því að byggja svokallað fyrirtækjalag oí'an á RUP vef- inn, þar sem búið er að velja ])á Jiætti sem ætlunin er að nota og útfæra þá ú Jiann hátt sem hentar viðkomandi fyrir- tæki. Þetta er ha:gt að gera á einfaldan hátt t.d. sein Word skjal með tenglum í RUP, eða á umfangsmeiri hátt með Jiví að byggja uj)j) sérstakan vef fyrir hug- búnaðarl’erli fyrirtækisins. Þess má geta að sniðmát af fyrirtækjavef fylgir með RUP. Mælt er með Jiví að innleiðingin fari fram með forverkefni, J)ar sem valdir eru þeir ]*a:ttir í RUP sem vinna á með og þeir reyndir. Verkefnið er byggt uj)j) af ítrunum, svo ha:gt sé að breyta áherslum ef með Jtarf á skilgreindan hátt. Eftir að forverkefni lýkur, er verkefnið metið og ákveðið hvað tilheyri fyrstu útgáí'u af hugbúnaðarferli fyrirtækisins. Þáttak- endur forverkefnisins leiða síðan næstu verkefni sem hugbúnaðarferlið er notað við. Þannig byggist smám saman uj)j) |>ekking á nýju hugbúnaðarferli og þeirri hugmyndafræði sem að baki þess liggur. Samhliða innleiðingu hugbúnaðarferl- isins þarf að huga að þeim verkfærum sem notuð eru í hugbúnaðarferlinu. Rational framleiðir ýmsar vörur á Jæssu sviði. Þar má nefna: RequisitePro til skráningar á þörfum og til að tryggja rekjanleika frá kröfum til hugbúnaðar. Rationallíose til líkanagerðar og 1 iI |)ess að lýsa arkítektúr kerfa með UML. RationalClearCase til samstæðustjórnun- ar. RationalClearQuest lil breytinga- stjórnunar og RationalRobot lil sjálf- virkra prófana. 26

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.