Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 4

Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 4
hann gekk um göturnar í Jerúsalem eða birtist lærisveinunum þegar þeir voru í loftsalnum og sagði: „Friður sé með yður.“ Þegar elsti sonur okkar, sem við bundum miklar vonir við og við væntum að yrði stoð okkar, og sem við höfðum hátíðlega vígt Guði, var frá okkur tekinn; þegar við höfðum lokað augum hans í dauðanum og syrgt djúpum harmi yfir missi okkar, þá kom ólýsanlegur friður yfir sál mína, friður ofar öllum skilningi. Eg gat hugsað um upprisumorguninn; ég gat hugsað um framtíðina, þegar hinn mikli lífgjafi kemur og brýtur fjötra grafarinnar og kallar fram hina réttíátu dauðu upp úr grafarduftinu; þegar hann leysir bandingjana úr prísundum sínum; að þá mun sonur okkar að nýju vera meðal lifenda. I þessu var friður, þar var gleði, þar var huggun sem engin orð fá lýst. Og hvers vegna? Vegna þess að ég fann að hönd mín var lögð í hönd Jesú Krists; að ég var hans og hann var minn, að hann elskaði mig, og að ég elskaði hann; og að þessi missir var tákn um elsku hans. Eg gat stutt mig við sterkan arm frelsarans í gegnum alla þessa þjáningu og sorg; og jafnframt fann ég að hann mundi styðja mig í hverri raun allt til enda. Hversu góðan og náðarríkan föður við eigum! Við getum lagt allan okkar þunga á liann, og hann mun létta okkur byrðina. Það er þessi blessun sem tengir okkur við Jesú; og hér hefst starfið með okkur. Kærleikstengslin Þekking á Jesú Kristi er ómetan- leg. Við ættum að gera það að okkað æðsta, okkar fýrsta og okkar síðasta markmiði. I versunum sem lesin voru í áheyrn ykkar í dag kemur fram að við eigum að eiga kærleik, og honurn tengd eru gleði, friður, langlyndi, þolinmæði. Við sjáum óeirð heimsins, óánægju hans með hlutskipti sitt. Hann vill eitthvað sem hann á ekki. Hann vill eitthvað til að halda uppi spennunni, eða eitthvað til skemmt- unar. En hjá kristnum manni er gleði, friður, langlyndi, mildi, auðmýkt, umburðarlyndi og þolin- mæði. Og fyrir þessum eiginleikum viljum við opna dyr hjartna okkar, njóta hinna himnesku dyggða Anda Guðs. Gerum við það, hvert fyrir sig? Það getur enginn gert fýrir annan. Þú getur hafist handa og öðlast dyggðir Andans; en það gagnast ekki mér. Hér gætu verið fjörutíu eða fimmtíu sem taka sig á um að rækta þessar kristnu dyggðir; en það gagn- ast ekki hinum meðal ykkar. Hver einstakur verður að vinna verkið og 4 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.