Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 14

Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 14
„ Ver eigi brábur vegna illvirkjanna, öfunda eigi þá er ranglœti fremja. “ (vers 1). Síðar, eftir að Davíð söng: „Lát af reiði og slepp heiftinni," heldur hann áfram og syngur um það hvernig losna megi við neikvæðar kenndir, og segir: „ Ver eigi of brádur, þab leibir til ills eins“ (8. vers). Davíð losnaði við reiðina úr huga sínum með því að segja Drottni frá henni. Það er heillaráð! Olía og vatn blandast ekki, og heldur ekki jákvæðar og neikvæðar kenndir. Fylltu líf þitt með jákvæðum atriðum, og þá kemur þolinmæðin á eftir. Ef þú íyllir líf þitt neikvæðum kenndum, þá máttu eiga von á bræðisköstum! Hin fullkomna stundaskrá Guðs Kannski er stærsta sönnunin fyrir hinni fullkomnu tímasetningu Guðs tengd útkomu nokkurra bóka minna. Atvikin höguðu því svo ein- staklega heppilega að ég fann umboðsmann sem hafði áhuga á að selja útgefanda handrit mitt, Teaching Your Own Preschool Children (Að kenna sínum eigin börnum á forskólaaldri). Þegar ég spurði hversu langan tíma það mundi taka, sagðist hún aldrei taka við handriti án þess að vera viss um að geta selt það innan tveggja ára. Tveggja ára? I mínum eyrum hljóm- aði það eins og eilífð, enda fannst mér ég hafa samið bók sem ætti eftir að breyta heiminum. Tvö ár? Hvernig gæti ég beðið svo lengi? Eitt ár leið, síðan tvö. Eg byrjaði á öðrum verkefnum, og bækur sem ég hafði skrifað fyrir lesendur úr hópi aðventista voru gefnar út hver á fætur annarri. Fimm árum síðar hringdi umboðsmaðurinn í mig. „Eg seldi Doubleday, stóru forlagi í New York, handritið þitt! “ Þegar bókin birtist í öllum meiri háttar bókaverslunum landsins var á saurblaðinu skrá um allar bækur sem ég hafði samið og fáanlegar voru í bókamiðstöðvum aðvendsta. Ef þessi bók hefði verið gefin út þegar ég vildi, þá hefðu hinar bækurnar ekki fengið svona frábæra auglýsingu. Tímasetning Guðs var fullkomin! Hvemig Guð byggir upp hugarfarið Þó er stundum svo erfitt að bíða, að við reynum að hjálpa Guði. Abraham gerði það, og hugsið ykkur bara þau vandræði sem hann bakaði sér og Söru með því að taka sér Hagar fyrir konu og eignast Ismael! Og svo gat Jakob, sem vissi að frum- burðarrétturinn átti að falla sér í skaut, ekki beðið eftir Guði, og blekkti föður sinn til að gefa sér hann. Hann varð að flýja að heiman svo bróðir hans dræpi hann ekki. Við reynum svo oft að reka á eftir hlutunum. Við hagræðum gjarnan hlutum - og fólki. I öllum asanum gerumst við „reddarar“ og tökumst á hendur ábyrgð sem tilheyrir öðrum og hnekkjum Jrar með eðlilegum þroskaferli þeirra. Chrisdne Wyrtzen lýsti Jrví svo fallega í þessari ljóðsögu: „ Gamli gráhærbi bóndinn leit út um eld- húsdymar og sá þá fibrildi ab kyrrlátu starfi. Púþuhýbib hélt þvíföstu, og þab var ab reyna ab losna. Baráttan harbnabi, og maburinn tók ab hugleiba, hvemig hann gœti frelsab fibrildib svo þab gœti flogib burt. Meb hníf í hendi risti hann hýbib varlega sundur og losabi litla fibrildib, sem féll tiljarbar og dó. Þab þuifti tíma til ab styrkjast og þola álagib, til ab öblast mýkt og leikni, svo þab stœbist hib stranga þróf lífsins. “ Christine lýkur ljóði sínu með þessum boðskap: „ Og þótt mig skorti sýn til ab sjá út fyrir kvöl mína, get ég hvílst í náb sem dugar í hita örvœntingar minnar. Hann vill skaþa þolgœbi meb þrautunum sem stebja ab, og móta mig í manneskju sem vill hugga og leibbeina. Jakob segir það svona: „AHtið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni er þér ratið í ýmis konar raunir. Þér vitið að trúarstaðfesta yðar vekur þol- gæði, en þolgæðið á að birtast í full- komnu verki, til þess að þér séuð fullkomnir og algjörir“Jk 1.2-4. Eg vil hafa sterka skapgerð, full- komna og algjöra. En þú? Við getum það ef við opum hjörtu okkar þegar Jesús ber þolinmóður að dyrum og segir: „Verði þinn vilji.“ Eg get ekki lofað góðum byr, en ég veit að hans vegur er bestur og tímasetning hans er fullkomin. Og að lokum munum við geta sungið með Davíð: „Eg hef sett alla von mína á Drottin, og hann laut nibur ab mér og heyrbi kvein mitt. Hann dró mig uþþ úr glötunargröfinni, uþþ úr hinni botnlausu lébju, og veitti mérfótfestu á kletti, gjörbi mig slyrkan í gangi. Hann lagbi mér ný Ijób í munn, lofsöng um Gub vom. Margir sjá þab og óttast og treysta Drottni. “ S1 40.2-4. Það er ekki auðvelt að vera þolin- móður, en það er fýrsti og mikilvæg- asti eiginleiki kærleikans! Spurningar tilumræðu 1. Er þolinmæði gagnverkandi eða framverkandi? Ertu sammála staðhæfmgu höfundarins ,Að vera þolinmóður er að gera ekkert“? 2. Attu mótefni við kvíða? Ef ekki, hver af ábendingum höfundarins finnst þér líklegust til árangurs? 3. Er langlundargeð auðveldara ein- hverri sérstakri manngerð en öðrum? Ættu kristnir menn fýlltir andanum að vera þolinmóðir í heild sinni? * Ur Christine Wyrtzen: For Those Who Hurt. Notað með leyfi Loveland Communications, 1982, CWM Inc. Kay Kuzma er forseti „Family Matters“ sem er stofnun um Jjölskyldu- málefni ogfjölskyldu- rábgjöf méb abalstöbvar í Cleoeland, Tennessee. 14 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.