Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 31
ham verður hryggur. Lot bróðurson-
ur hans og fjölskylda hans eiga þar
heima.
Abraham biður Guð að þyrma
borgunum þótt ekki finnist þar
nema tíu réttlátir. Guð fellst á að
þyrma þeim ef þar finnist tíu rétt-
látir. Eg býst við að segja mætti að
Abraham hafi með því að biðja borg-
unum miskunnar sýnt að hann trúði.
Fyrir það á hann skilið stig. Illu heilli
reyndist óhjákvæmilegt að tortíma
borgunum, því þar fundust ekki tíu
réttlátar manneskjur.
STIG
TRÚFESTI 4 SKORTUR Á TRÚ 5
Því miður verður Abraham aftur á
þegar hann flyst til Gerar. Aftur segir
hann mönnum að Sara sé systir hans.
Abímelek konungur tekur hana í
höllina til sín og heldur henni þar
sem konu sinni. En Guð birtist
honum í draumi og hræðir næstum
því úr honum líftóruna. Sara fer
heim með Abraham daginn eftir.
Abímelek reynir jafnvel að bæta úr
mistökunum með því að gefa þeim
fénað og silfur. En skaðinn er
skeður. Abraham hefur enn verið
ótrúr Guði.
STIG
TRÚFESTI 4 SKORTUR Á TRÚ 6
Það er farið að hallast ískyggilega
á trúfestina hjá Abraham. Hann er
tvö stig undir eftir síðustu lotu. En
Guð á eftir að leggja alvarlega
prófraun á trúfesti Abrahams. Þetta
próf gætí jafnað metin og þurrkað út
tveggja stiga muninn vantrúnni í
hag.
Hinn fyrirheitni sonur, Isak, fæðist
um síðir. Hann er allt það sem
hjónin höfðu óskað sér. Undursam-
legt að hann skyldi fæðast svo aldur-
hnignum foreldrum, og hann verður
augasteinninn þeirra.
Snemma morgun einn vekur Guð
Abraham og segir: „Tak þú einkason
þinn sem þú elskar, hann Isak, og far
þú til Móríalands og fórna honum
þar að brennifórn á einu af fjöll-
unum sem ég mun segja þér til“ (1M
22.2).
,Af og frá, Guð.“
,JÚ, Abraham."
„Ekki syni mínum sem ég hef
beðið svo lengi eftir. Hvað verður þá
um þessa miklu þjóð sem þú hefur
heitið mér?“
En Abraham hlýðir. Hann vekur
Isak og nokkra af sveinum sínum.
Þeir taka með sér klyfjar af fórnarviði
og hníf.
Abraham forðast að vekja Söru.
Sem góð móðir mundi hún reyna að
koma í veg fyrir svona grimmilega
fórnfæringu.
Eftir þrjá daga koma Abraham og
Isak til Móríafjalls, þar sem átti að
færa fórnina. Abraham lætur sam-
ferðamennina bíða við fjallsræturnar
með asnann, en fer sjálfur ásamt Isak
með brennið og hnífmn upp á fjall-
ið.
Eftir stundarkorn spyr Isak:
„Pabbi, við erum með brennifórnar-
viðinn, en hvar er fórnin?“
Abraham svarar: „Guð mun sjá
mér fyrir sauð til fórnarinnar."
Hjarta Abrahams er að bresta.
Hvernig á hann að geta sagt syni
sínum að það eigi að fórna honum?
Meðan þeir eru að hlaða steinum í
altari segir Abraham syni sínum frá
voðaverkinu sem hann er knúinn til
að fremja. Og nú skuluð þið giska!
ísak leggst sjálfviljugur ofan á viðinn
á altarinu. Abraham verður að beita
öllu viljaþreki sínu til að bregða
hnífnum og sanna þannig Guði
trúfestí sína og traust á honum.
Þegar hnífurinn fer að nálgast
fórnina, stöðvar Guð aftökuna. „Þá
kallar engill Drottins til hans af
himni: ,Abraham! Abraham!” Hann
svarar: ,Hér er ég.‘ Engillinn segir:
,Legg þú ekki hönd á sveininn og
gjör þú honum ekkert, því að nú veit
ég að þú óttast Guð þar sem þú synj-
aðir mér ekki um einkason þinn.' Þá
varð Abraham litið upp og hann sá
hrút bak við sig sem var fastur á
hornunum í hrísrunni. Og Abraham
fór og tók hrútinn og bar hann fram
að brennifórn í stað sonar síns“ (1M
22.11-13).
STIG
TRÚFESTI yfirfljótanleg
SKORTUR Á TRÚ fyrirgefin
Uppfærsla
Skrifaðu og búðu til flutnings
frásögn um eldri bróður og yngri
bróður (eða systur) sem eru í útivist
á einhverjum skemmtilegum stað.
Eldri bróðirinn hittir þar einhverja
kunningja. Kunningjarnir reyna að
fá hann til að skilja yngra systkini sitt
eftir og koma með þeim. Hvernig
bregst hann við?
Helgun í verki
Leitaðu uppi yngri bróður eða
systur eða einhvern úr söfnuði þín-
um sem þarf á vini að halda, og taktu
hann eða hana með þér til einhverra
sérstakra starfa.
Hugleiðing og umræða
Hugsaðu um tryggustu manneskju
sem þú hefur nokkurn tíma hitt.
Hvað gerði þessi persóna til að sanna
tryggð sína?
Ræðið þá biblíupersónu sem
mesta trúfesti hefur sýnt. Hvað gerði
þessi maður (eða kona) sem sannaði
trúfestí hans (hennar)?
Ljúkið þessari setningu: Hjóna-
skilnaðir eru svona algengir í heim-
inum vegna þess að.........
Ávaxtarpróf
Er ég TRÚFASTUR/TRÚFÖST í
skólastarfinu, skyldustörfum á heim-
ilinu og einkum í tilbeiðslunni á
Krist?
(merktu við eitt) ......aldrei
...sjaldan...stundum.....oft.
AðventFréttir
31
Fyrír börnin