Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 32

Aðventfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 32
Sígildur sannleikur Sem sjöunda dags aðventistar trúum við því að við búum yfir „nútímasannleiks“ - boðskap sem er að finna í yfirlýsingu engl- anna þriggja í Opb. 14. Við beinum athyglinni sérstaklega að boðskap þriðja engilsins með varnaðarorðum hans um þá sem tilbiðja „dýrið“ and- stætt þeim sem „varðveita boð Guðs og trúna ájesú“ (Opb 14.12). Þetta eru skýr skilaboð ætluð ákveðnum tíma - raunar okkar tíma, og þess- vegna skilgreinum við þau sem „nú- tímasannleik." Þó trúi ég líka að til sé sannleikur með ævarandi gildi, sannleikur sem á við allar aldir. Fyrir næstum 2.000 árum greip Jóhannes kjarna þess sannleika í eftirfarandi fjórum vers- um: „Hann var í heiminum og heim- urinn var orðinn til fyrir hann, en heimurinn þekkti hann ekki. Hann kom til eignar sinnar, en hans eigin menn tóku ekki við honum. En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans. Þeir eru ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir“ (Jh 1.10-13). Þessi ævarandi sannleikur er auðvitað fagnaðarerindi Jesú Krists, hin ótrúlega gleðifrétt að hann sem heimurinn var skapaður fyrir, kom í raun og veru til jarðarinnar, jafnvel þótt heimurinn - jafnvel hans eigið fólk - „þekkti hann ekki.“ En þó gaf hann „öllum þeim sem tóku við honum“ í trú „rétt til að verða Guðs börn.“ Þessi „endurfæðing“ sem barn Guðs er ekki mannleg athöfn, heldur árangur af áhrifum Heilags anda í lífi okkar. Hérna er kjarninn í boðskap sjöunda dags aðventista. Hversu mik- ilvæg sem þau eru, sannindin um merki dýrsins, hvíldardaginn, ástand hinna dauðu og síðari komu Krists, þá verða þau öll að hvíla á grundvelli krossins. Menn geta orðið hólpnir án þess að vita um ástand dauðra eða merki dýrsins, en engin frelsun er hugsanleg án krossins, sama hversu mikið menn kunna af öðrum kenn- ingum Ritningarinnar. Ef við leiðum ekki sálir að krossinum og hjálp- ræðinu, erum við að sóa tíma þeirra og okkar tíma líka, því j)á mistekst okkur að inna af hendi verkið sem Drottinn fól okkur. Þess vegna verðum við ævinlega að hafa krossinn sem þungamiðju tilveru okkar sem boðenda trúarinn- ar. Ef á okkur er litið sem fólk krossins, menn sem í sannleika eru „ekki af blóði bornir, ekki að holds vild né manns vilja, heldur af Guði fæddir“ (vers 13), mundu hin skýru sannindi í boðskap englanna þriggja vinna með afli og áhrifum miklu meiri en þeim sem við þekkjum nú. Adventist Review, safnaðarrit okkar um heim allan, leitast við að leggja áherslu á þetta viku eftir viku. Færð þú það? Eg get aldrei lagt of mikla áherslu á mikilvægi þessa mál- gagns okkar fyrir einingu kirkjunnar. Sem söfnuði ber okkur að flytja hinn máttuga boðskap um endur- komu Krists. En áður en við getum upplýst fólk um síðari komu hans, verður það að þekkja hina dýrlegu sögu fyrri komu hans. Það er fyrst þegar fólk er gjörkunnugt því sem Kristur afrekaði við fyrri komu sína hér, að það er viðbúið þ\4 sem hann mun gera við síðari komu sína. Svo mjög sem við þörfnumst nú- tíma-sannleikans, þá er þörf okkar jró enn brýnni fyrir hinn ævarandi sannleik. Og þann sannleik er að finna þar sem hann hefur ætíð verið - í krossinum. Ykkar einlægur bróðir, Robert S. Folkenberg. Robert S. Folkenberg er formadur Aðalsamtaka sjöunda dags adventista. 32 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.