Aðventfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 19
andans er ræktaður. Allt sem lifir er
viðkvæmt og hættum undirorpið.
Heilbrigði til hjálpar
Annað mikilvægt íhugunarefni er
það, að ávöxtur er aldrei takmark í
sjálfu sér. Tréð ber ekki ávöxt til
eigin upphefðar. Avextinum er ædað
að hjálpa öðrum!
Það er mannleg tilhneiging að
öðlast ávinning bindindisins í eigin
þágu (að verða heilbrigðari, ham-
ingjusamari, að afla sér aðdáunar
o.s.frv.), svo að jafnvel lofsverð
umhyggja okkar fyrir kristnum lífs-
máta sjálfra okkar gæti orðið gildra
fyrir eigingirni eða sjálfsréttlætingu.
Slík umhyggja getur orðið til þess að
menn hverfa frá leiðsögn andans til
mannlegra sjónarmiða.
Þegar um bindindi er að ræða,
verða menn að sigrast á girndum
holdsins og forðast það sem illt er,
en ástunda að gera öðrum gott. Og
þegar leitin að heilbrigðari lífsmáta
horfir framhjá markmiðum per-
sónulegrar hamingju, fegurðar eða
fullnægju, og stefnir að betri þjón-
ustu við Guð gegnum þjónustu við
mannkynið, þá nær hún sönnum
andlegum víddum. Jafnvel fyrir Jesú
virðist helgun ekki vera markmið í
sjálfu sér. Þegar hann bað til föður
síns sagðist hann helga sig fyrir
lærisveina sína (Jh 17.19).
Andinn helgar líf okkar með
bindindi nafni Guðs til dýrðar í
líkömum okkar. (lKor 6.19,20), ekki
einungis fyrir bætt heilsufar, heldur
fyrir betri þjónustu. Við viljum fram-
bera fullkomnun ávaxtar andans til
þess að aðrir fái saðningu.
„Með því að meðtaka anda Krists -
anda óeigingjarns kærleiks, og vinna
fyrir aðra - munt þú vaxa og bera
ávöxt. Dyggðir andans munu
þroskast í hugarfari þínu. Trú þín
mun styrkjast, sannfæringar þínar
dýpka, kærleikur þinn verða full-
kominn. Þú munt í æ ríkara mæli
útgeisla anda Krists" (Christ's Object
Lessons, bls 68, sbr. Selected Messages,
1. bók, bls 336-338; Testimonies, 4. bd.
bls 355). Hinn síðasti mikli ávöxtur
mundi þroskast hratt og Kristur
mundi koma til að safna saman sinni
dýrmætu uppskeru.
Að gefa Guði dýrðina
I svona sjúkri, sorgmæddri og
syndugri veröld eins og heimurinn
okkar er á okkar tímum, verður
þörfin á bindindissömu líferni til-
finnanlegri en nokkru sinni fyrr. En
bindindi má ekki stansa við að hætta
að reykja, forðast áfengi og flkniefni,
taka upp heilsusamlegt mataræði,
þjálfa líkamann nægilega og fá góða
heilsugæslu. Heilbrigði nær yfir allar
lífsvenjurnar. „Hvort sem þér því etið
eða drekkið eða hvað sem þér gjörið,
þá gjörið það allt Guði til dýrðar"
(I Kor 10.31). Bindindi er spurning
um jafnvægi. Eins og sönn menntun
er sönn bindindissemi „samræmi í
þroskun líkamlegra, andlegra og sál-
rænna krafta“ (Education, bls 13).
Mannveran - líkami, sál og andi -
er ein heild (1Þ 5.23). Með öllum
sínum undursamlega og viðkvæma
búnaði er hún óendanlega verðmæt,
vegna þess að hún var sköpuð af
Guði, endurleyst af Jesú Kristí og er
bústaður Heilags anda (lKor 6.19).
Vegna þessa ætti hið fagra tak-
mark, fullkomin heilbrigði og ful-
lkomið líf sem við getum öðlast, ekki
að spilla umhyggju okkar fyrir þeim
sem eru langt frá því að vera full-
komin í þessum efnum. Því við
verðum að muna að sérhver mann-
vera, jafnvel í sjúkleika, örkumlun
eða þjáningum, á skilið fulla virð-
ingu sem barn Guðs sem kallað er til
að læknast af Guði kærleikans.
Einhvern daginn, mjög bráðlega,
þegar Jesús kemur, munu dauðlegir
líkamir okkar - heilbrigðir eða sjúkir
- umbreytast til óforgengileika (lKor
15.51-55). Þá munum við fullkom-
lega endurspegla mynd skaparans,
eins og hann hafði upphaflega
áformað. Við munum öll verða heil-
brigð, heilög og hamingjusöm að
eilífii (Opb 21.1-4).
Spurningar
til umræðu
1. Verður mér nokkurn tíma á sú
skyssa að takmarka „bindindi“ við
heilsufarsleg efni eingöngu? Sé
svo, hvernig get ég breytt því?
2. Táknar talning Páls á bindindi
sem síðasta ávextinum á nokkurn
hátt að gildi þess sé minna?
3. Hvað táknar það fyrir þig per-
sónulega að vera bindindissamur,
að vera „sterkur hið innra?“
Roberto Badenas er kenn-
ari í gubjrœth vii) Saleve-
aðventstofmmina í
Collonges-sous Saleoe,
Frakklandi.
AðventFréttir
19