Aðventfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 25
Mánudagur
„Ávöxtur
andans
er...
friöur. “
Minnisvers
S1 4.8: „I friði leggst ég til hvíldar og
sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig
búa óhultan í náðum. “
Biblíusaga - Stormur í aösigi
I Matteusarguðspjalli 14.13-36 eru
tvær spennandi sögur. Ef þú ert
mjög hrifinn af mat, þá muntu
kunna að meta söguna um Jesú
þegar hann mettaði 5.000 manns og
hafði ekki annað til þess en nesti
drengs eins, fimm brauð og tvo fiska.
En ef þú ert ekki hrædd(ur) við að
sigla á úfnum sjó, þá muntu hafa
gaman af síðari sögunni.
Að lokinni máltíð, og þegar fólkið
var farið, sagði Jesús lærisveinunum
að stíga upp í bátinn og róa yfir vatn-
ið, en hann ætlaði að verða eftir.
Lærisveinarnir virtust ekki átta sig á
hvernig Jesús ætlaði að komast yfir ef
þeir tækju bátinn. Þeir reru því hægt
af stað og töldu að Jesús kæmi fljót-
lega. En hann kom ekki. Raunar fór
hann í öfuga átt. í staðinn fyrir að
fara niður að vatninu fór hann upp í
fjallshlíðina að biðjast fyrir.
Nú var stormur í aðsigi á vatninu.
A þessum tímum voru engin björg-
unarbelti og engin frauðplastsflot-
holt í bátunum, engar talstöðvar til
að ná sambandi við land eða senda
út neyðarkall, og engin slysavarnar-
félög með báta til að bjarga mönnum
í sjávarháska. Ekki þurfti nema að
nokkrum sinnum gæfi á bátinn,
þannig að Jóhannes og Andrés hefðu
ekki við að ausa, þá var voðinn vís.
Og ef við bættist hvassviðri sem tætti
í seglin, ræðararnir drægju ekki á
móti veðrinu til strandar á árunum
einum saman, þá var ekki annað til
ráða en að grípa fyrir nefið og halda
í sér andanum.
Allt var þetta svo sem nógu
ískyggilegt, en þá sá einn lærisvein-
anna glitta í vofukenndan bjarma
gegnum sortann og slagviðrið. Eitt er
að drukkna, en að láta einhvers-
konar vofu hræða úr sér líftóruna er
að bera í bakkafullan lækinn.
I Biblíunni stendur að þeir hafi
æpt af hræðslu, sem er að segja það
fallega að 12 fílhraustir karlmenn
voru orðnir að kjökrandi aumingjum
sem kúrðu sig niður í kjalsoginu.
Þessir hræddu menn lærðu þá
lexíu í hugrekki, þá fyrstu af mörg-
um, og að treysta Guði. Vofan sagði
við þá: „Verið hughraustir, það er
ég“ (27. vers).
Pétri fannst hann kannast við
röddina þótt hann sæi veruna óljóst,
og hann kallaði: „Ef það ert þú,
herra, þá bjóð mér að koma til þín á
vatninu“ (28. vers).
Svar Jesú var uppörvandi og ró-
andi: „Kom þú.“
Pétri tókst að komast yfir tvo eða
þrjá öldufalda, en þá uppgötvaði
hann að jafnvel sökkvandi bátur er
tryggari en að standa á æðandi
öldunum. Enn breyttist rödd hans í
barnskjökur og hann hrópaði:
„Herra, bjarga þú mér.“
Jesús tók í höndina á Pétri og
spurði: „Þú trúlitli, hví efaðist þú?“
(vers 31).
Pétur gat engu svarað, en
lærisveinarnir gerðu það. Þegar þeir
stigu saman upp í bátinn, lægði vin-
dinn, og þeir tilbáðu hann og sögðu:
„Sannarlega ert þú sonur Guðs“
(vers 33).
Sá Guð sem getur lægt storm og
róað stórsjó svo hann verður sem
lognslétt tjörn, getur vissulega gefið
stormasömu lífi mínu frið.
Uppfærsla
Við skulum finna sögu með
annarskonar friði sem Jesús gefur.
Lestu í Markúsarguðspjalli 5 söguna
um manninn með óhreina andann
sem Jesús læknaði. Notaðu þessa
frásögn sem fyrirmynd og búðu til
leikþátt um það, þegar Jesús læknaði
manninn með óhreina andann.
Lýstu þeim friði sem gagntók mann-
inn eftir að hann umbreyttist.
Helgun í verki
Flettu upp í Matteusarguðspjalli
14 og finndu öll versin sem fjalla um
frið. Utbýttu dagblöðum í hópnum
þínum og leitaðu uppi allar greinar
sem þú getur fundið um frið. Farðu
yfir þessar greinar með öðrum í
hópnum.
Hugleiðing og umræður
Hvort er auðveldara að finna
frásagnir um frið eða frásagnir um
stríð og hamfarir í dagblöðum?
Hvað geta börn og ungt kristið
fólk gert til að gera jörðina að
friðsælli verustað?
Hvað er langt síðan ég fann til
raunverulegrar friðsældar?
Ljúktu þessari setningu: Eg tel að
það sé svo lítill friður í heiminum
vegna þess að...............
Ávaxtarpróf:
Finn ég til FRIÐAR jafnvel þegar
kennarinn minn spyr mig óvænt
spurningar?
(Merktu við eitt) .......aldrei
...sjaldan.....stundum......oft.
AðventFréttir
25
Fyrir börnin