Aðventfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 26

Aðventfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 26
Fyrir bömin Þriðjudagur „Ávöxtur andans er... þolinmæði." Minnisvers F1 4.11: „Ekki segi ég þetta vegna þess ad ég hafi libib skort, því að ég heflœrt að láta mér nœgja það sem fyrir hendi er. “ Biblíusaga - Saga um stóríisk Sagan um Jónas er um mann sem var hvorki þolinmóður né ánægður með starfið sem Guð ætlaði honum. Biblían segir okkur ekki hvers- vegna Jónas hljópst frá verkinu sem Guð fól honum að vinna. Kannski var hann hræddur við að fara til þes- sarar ranglátu borgar, þar sem fólkið kynni að drepa hann. Kannski óttaðist hann að Nínívebúar mundu hæðast að viðvörunum hans. Kannski trúði hann ekki að Guð ætlaði að gera alvöru úr því að tortíma borg- inni. Hver sem ástæðan var, þá sigldi Jónas í aðra átt. Og hvílíkt veður! Þetta var enn verra veður en það sem við fjölluð- um um í gær. Hvernig veit ég það? Reyndar veit ég það ekki fyrir víst. En ég geri ráð fyrir að það þurfi miklu verra veður til að hvolfa stóru skipi eins og skipi Jónasar, en litlum fiskibát eins og þeim sem læri- sveinarnir áttu. Auk þess ýfa stormar, sem geta orðið sannkallað fárviðri, oft Miðjarðarhafið. Því hvassar sem blés, þeim mun hræddari varð skipshöfnin. Hún varpaði dýrmætum farmi fyrir borð. „Það verður að hafa það þótt við verðum gjaldþrota, líf okkar liggur við,“ hrópuðu þeir. Þar sem þeir voru hræddir, áköll- uðu þeir guði sína. Sennilega hafa sumir ákallað Baal, aðrir Astarte. Aðrir kunna að hafa beðið sól- og tunglguði sína að bjarga sér, en án árangurs. Og þá rakst skipstjórinn á Jónas. Spámaðurinn hlýtur að hafa verið dauðþreyttur. Þótt ég ætti lífið að leysa gæti ég aldrei sofnað neðan- þilja í skipi í fárviðri. Skipstjórinn var í öngum sínum og skipaði honum að vakna og biðj- ast fyrir. í örvæntingu sinni vildi skip- stjórinn fá guðina til að bjarga skip- inu. Hin hjátrúarfulla skipshöfn álykt- aði að guðirnir hlytu að vera að refsa einhverjum um borð og ákváðu að finna hver það væri með því að varpa hlutkesti. Sennilega gerðu þeir þetta þannig að þeir létu einhvern halda á stráum, einu fyrir hvern þeirra sem um borð voru. Oll stráin voru jafn- löng, nema eitt. Hver sá sem drægi stutta stráið hlyti vissulega að vera sá sem átti sök á fárviðrinu. Jónas vissi að fárviðrið var hans vegna, en hann játaði ekki synd sína fyrr en hann hafði dregið stutta stráið. „Þá sögðu þeir við hann: ,Seg oss, hver er atvinna þín og hvaðan kemur þú? Hvert er föðurland þitt, og hverrar þjóðar ertu?' Hann sagði við þá: ,Eg er Hebrei og dýrka Drottin, Guð himinsins, þann er gjört hefur hafið og þurrlendið'.“ (Jn 1.8, 9). Þessir sjómenn voru langt frá því að vera glaðlynd skipshöfn, svo ekki sé meira sagt. Spurningar þeirra voru: „Hvernig gastu gert þetta?" og „Hvað getum við gert til að lægja hafrótið?“ Hann svaraði: „Eg flúði frá Guði.“ Þegar hann sagði þeim að varpa sér í hafið, neituðu þeir, kannski vegna þess að þeir vildu ekki láta sækja sig til saka fyrir morð, eða kannski óttuðust þeir að Guð kynni að refsa þeim fyrir að vinna spá- manni hans mein. En tíminn leið, og hvernig sem þeir reru komust þeir ekkert áfram. I örvæntingu sinni vörpuðu þeir Jón- asi fyrir borð. Storminn lægði sam- stundis. Aður en skipshöfnin gæti dregið Jónas holdvotan um borð aft- ur, kom stórfiskur og gleypti hann. Eg hef ævinlega velt því fyrir mér hvers konar fiskur gerði þetta. Eg hallast helst að því að það hafi verið beinhákarl, en þeir eru að því leyti ólíkir gráðugum frændum sínum að þeir eru tiltölulega meinlausir og sama sem tannlausir. Fólk er ævinlega að vorkenna Jón- asi aumingjanum að vera að flækjast um í fiskinum í þrjá sólarhringa, skvampandi í meldngarvökva og óþef af rotnandi fiskaleifum. Eg vorkenni stórfiskinum. Bein- hákarl lifir aðallega á smágerðu plöntu- og dýrasvifi. Jónas hlýtur að hafa valdið honum alvarlegri maga- pínu! Um svipað leyti og Jónas lét undan Guði hætti stórfiskurinn að þola óþægindin í maganum og spúði Jónasi upp í fjöru. Ekki veit ég hvort fjaran var nálægt Níníve eða ekki. En hvað sem því líður, jjá hlýddi Jónas nú Guði. Geturðu ímyndað þér hvað fókið hefur sett upp stór augu þegar ])að sá hann svona til fara og með húðbruna eftir meltingarsafa fisksins? Geturðu ímyndað jaér hvernig lyktin af honum hefur verið jiangað til hann hafði fengið sér bað sem honum veitti sannarlega ekki af? Ojbara, úldinn fiskur! Nú prédikaði Jónas. Þetta var stór- borg með að minnsta kosti 150.000 íbúa. Dag eftir dag hrópaði hann: „Að fjörutíu dögum liðnum skal Níníve verða eyðilögð!" (Jn 3.4). Trúði borgarfólkið Jónasi? Þú mátt reiða þig á það gerði fólkið. Það klæddist hærusekk og ösku og fastaði og bað að Drottinn þyrmdi lífi þess. Guð heyrði bænirnar og þyrmdi íbúunum og borginni þeirra. Veistu hvað ég held? Eg held að Jónas hefði getað komist hjá miklum vandræðum ef hann hefði hlýtt boði Guðs umsvifalaust. Við eigum líka að vera þolinmóð og hlusta eftir áformum Guðs með líf okkar. Uppfærsla Skrifaðu og leiktu sögu um lítinn bróður eða systur sem sífellt er að fikta í dótinu þínu. Sýndu hvernig jiú mundir finna lausn á vandanum í samvinnu við fjölskyldu þína. Helgun í verki Skrifaðu og undirritaðu bréf til Guðs sem segir honum að þú viljir að hann leiði þig í öllum atriðum sem þú kýst þér í lífinu. Undirritaðu bréfið sem heit. Láttu fjölskyldu þína geyma bréfið og lesa það fyrir þig á hverjum afmælisdegi þínum. Hugleiðingar og umræður Hvernig veit ég hvort Guð er leiðbeinandi lífs míns? Hvernig veit ég að það sé Guð en ekki Satan sem opnar dyr og lokar þeim? Ljúktu við Jjessa setningu: Það er erfitt að vera þolinmóð(ur) þegar Ávaxtarpróf Er ég ÞOLINMÓÐ(UR) jafnvel við litla krakka í skólanum? (merktu við eitt) .....aldrei ..sjaldan...stundum.....oft. 26 AðventFréttir

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.