Aðventfréttir - 01.12.2007, Qupperneq 2
A aðventunni
Viö búum í samfélagi sem heillast meir
og meir af hinum efnislega heimi en firrist
í æ ríkari mæli hinn andlega veruleika.
En nú nálgast jólin sem minna okkur á
innrás guðlegar afla í okkar heim. Guð
varð maður og bjó með okkur. Hve
margir í okkar samfélagi trúa þessu enn?
Hve raunverulegan megnum við að gera
þennan viðburð I tilveru okkar [ dag?
Jóhannes, postulinn sem skrifaði Opin-
berunarbókina, var í helgreipum efans á
eynni Patmos. Hann, sem var yngstur
postulanna var nú háaldraður og hinn
eini eftirlifandi úr þeirra hópi. Og enn var
Jesús ekki kominn aftur eins og þeir
höfðu vonast til. Allir höfðu postularnir
farist voveiflega, fallið fyrir hendi
morðingja. Grimmilegar ofsóknir höfðu
lagst á söfnuðina af ofurþunga og
honum, Jóhannesi, var fyrirmunað að
uppörva þá vegna fangavistarinnar.
Hvernig vegnaði söfnuðunum nú? Höfðu
þeir nú algerlega látið bugast? Var þetta
þá eintóm blekking og hugarburður þessi
boðskapur um hinn upprisna Krist? Hafði
Guð algerlega yfirgefið kirkjuna?
Þá, í sýn, opinberast Jóhannesi það sem
var honum hulið, það sem hann hafði
gleymt, það sem hafði orðið honum
óraunverulegt. Hin mikla sýn sem skráð
er I Opinberunarbókinni sannfærði hann
um að hinn lifandi Kristur væri honum
nálægur og Jóhannes sá að samband
Krists við kirkjuna var náið og sterkt. Víst
mundi vorið koma og veita líf og nýjan
kraft. Og um síðir í mætti og mikilli dýrð
myndi Jesús I dýrlegri endurkomu sinni:
„Náð sé með yður og friður frá honum,
sem er og var og kemur og frá öndunum
sjö, sem eru frammi fyrir hásæti hans og
frá Jesú Kristi, sem er votturinn trúi,
frumburður dauðra, höfðinginn yfir
konungum jarðarinnar. Hann elskar oss
og leysti oss frá syndum vorum með
blóði sínu. Og hann gjörði oss að
konungsríki og prestum, Guði sínum og
föður til handa. Hans er dýrðin og
mátturinn um aldir alda. Amen. Sjá, hann
kemur í skýjunum og hvert auga mun sjá
hann" (Opb 1.4-6).
Sannarlega hafði Jesús sigrað dauðann
og hann lifir enn og ríkir yfir öllum verald-
legum öflum, jafnvel þeim sem leitast við
að kúga kirkju hans á jörðinni! Leiðin til
Jesú Kristi er opin og greið vegna þess
að hann elskar okkur stöðugt og ávallt.
Sama hvað á dynur þá er ást hans óum-
breytanleg og syndirnar hefur hann nú
þegar afmáð. Þetta var boðskapur til
Jóhannesar og til safnaöanna á tímum
mikillar kreppu. En þetta er líka tileinkað
okkur í dag.
Sérhver synd hefur verið friðþægt fyrir
fyrir 2000 árum! Ég get vaknað á
morgnana við þá sannfæringu að Jesús
hefur leyst mig undan byrði syndarinnar.
Og þörf mín fyrir þá fullvissu er mikil!
Þannig er þessu varið með okkur öll. Ef
við skiljum ekki fagnaðarerindið á þann
hátt þá er það okkur gagnslaust, þá
höfum við misskilið það!
Á þessum árstíma verðum við á sér-
stakan hátt minnt á það hve nálægur
Jesú er okkur. Að hann kom til
jarðarinnar og varð einn af okkur, hann
tekur þátt í tilveru okkar og lætur sér annt
um örlög okkar. Á tíma aðventunnar og
jólanna upplifum við sérstaka nálægð
hans í kirkjunni og minnumst líka loforðs
hans um að koma aftur til að taka okkur
með sér inn í dýrðarríkið sem hann hefur
undirbúið börnum sínum. Hve raunveru-
lega megnum við að gera þessa
staðreynd í tilveru okkar í dag?
Mætti Drottinn stöðuglega sannfæra
okkur á ný um þetta dásamlega verk sitt.
Lofum hann og þökkum fyrir það að
hann hefur leyst okkur með blóði sínu.
„Áður en heimurinn var grundvallaður
hefur hann útvalið oss í Kristi, til þess að
vér værum heilagir og lýtalausir fyrir
honum. í kærleika sínum ákvað hann
fyrirfram að veita oss sonarrétt í Jesú
Kristi. Sá var vilji hans og velþóknun" (Ef
1.4,5).
Eric Guðmundsson
Aðventfréttir
70. ÁRG. - 10. TBL. 2007
Ú TGEFANDI
KlRKJA SJOUNDA DAGS AÐVENTISTA á ÍSLANDI
S u ð u r h I i d 3 6
10 5 R e y kj a v i k
Simi: 588-7800
Fax: 5 88-7 808
sda@adventistar.is
Ritstjóri &
Ábvrgðarmaður:
E ri c Guðmundsson
Forsíðumynd:
Sérstakar þakkir til:
• Jóns Karlssonar fyrir að prófarkalesur greina
I B L AÐIN U.
• ÁRMANNS JÓHANNSSONAR, GUÐMUNDAR BRYNJARS-
SONAR O G JÓHANNS HREGGVIÐSSONAr FYRIR MYNDIR
i B LAÐIÐ .
AÐVENTFRÉTTIR • Desember 2007