Aðventfréttir - 01.12.2007, Blaðsíða 6
Daníelsbókarnámskeið
Ungmennahelgi á Hlíðardalsskóla
Myndir Ármann Jóhannsson
Ungmennamót var haldið í Hlíðardals-
skóla fyrstu helgina í október. Skráðir
þátttakendur voru 21 en alls tóku 31
þátt í mótinu og skipulagningu þess.
Mótið var skipulagt af ungmennaráði
Hafnarfjarðar sem fékk til liðs við sig
öfluga safnaðarmeðlimi til að aðstoða
sig við framkvæmd mótsins.
Unglingarnir á mótinu komu víða að.
Gaman var að sjá krakka úr Suður-
hlíðarskóla fjölmenna og að
unglingarnir okkar sem búsettir eru út á
landi létu sig ekki vanta. Fjórir komu frá
Akureyri, tveir frá Grundarfirði og ein úr
Borgarnesi.
Þátttakendur voru áhugasamir og báðu
sumir um að önnur slík helgi yrði haldin
í bráð. Þegar að farið var á stúfana til
að finna myndir í Aðventfréttir fengum
við þau svör að lítið hefði verið tekið af
myndum í ferðinni, allir hefðu verið svo
uppteknir við lestur Daníelsbókarinnar.
Skipuleggjendur og kennarar nám-
skeiðisins eru öll á tvítugs og þrítugs
aldri
Áformað er að halda aðra slíka helgi
í janúar þar sem Opinberunarbókin
verður til umljöllunar. Ekki láta þá
helgi framhjá þérfara!
Ungmennamót í Noregi
Ungt fólk skiptirmáli er haldið á fimm ára fresti á
vegum Stór-Evrópudeildarinnar. Mótinu er ætlað
ungmennaleiðtogum. Mótið var haldið í Noregi í
ár. Þar var meðal annars kynnt skoðunarkönnun
Value Genesis, sem er nýjasta rannsóknin um
viðhorf og virkni ungs fólks í kirkjunni okkar. Þar
var m.a. tekið á ofbeldi, lærisveinaþjónustu og
fleiri málefnum. Á þessum fundum og þeim sem
fóru fram áður á fundi ungmennaleiðtoga deildar-
innar gafst mér tækifæri til að deila því sem við
höfum verið að gera á íslandi varðandi Eins og
Jesús námskeiðin.
Gavin Anthony
Silje Þorsteinsdóttir, Gyða Skúladóttir, Þorbjörg Ásta Þorbjarnardóttir, Gavin
Anthony, Guðjóna Þorbjarnardóttir, Helga Rún og Sandra Björk Ólafsdætur.
6
AÐVENTFRÉTTIR • Desember 2007