Aðventfréttir - 01.12.2007, Qupperneq 8
Arsfundur Kirkjunnar
Loftsalum 10. nóvember
Ársfundur Kirkjunnar var haldinn í
Loftsalnum 10. nóvember síðastliðinn.
Þar voru áform hvers safnaðar fyrir
næsta starfsár rætt. M.a. er stefnt að
þvi að halda opinberar samkomur í
Hafnarfirði í byrjun febrúar. Þá munu
Anna Margrét og Melanie fara til Vest-
mannaeyja eftir áramót og halda
matreiðslunámskeið og Reykvíkingar
munu halda áfram að vera með sér-
stakar fjölskylduguðþjónustur fyrsta
hvíldardag hvers mánaðar.
Sandra Mar skýrði frá því hvað hefur
verið gert til að fylgja á eftir þeim
tillögum sem samþykktar voru á
síðasta aðalfundi. Hér til hliðar kemur
nánar fram hvað Kirkjan hefur gert
varðandi þessartillögur.
Mæting á fundinn var góð og að
honum loknum var Gavin Anthony
með stutta hugvekju og sólarlagsbæn.
Við fengum að heyra Gavin spila á
þverflautu og hann talaði um nauðsyn
þess að við lékum öll sama lagiö, þótt
að hljóðfæri okkar séu mismunandi.
Megi Guð gefa okkur gæfu til þess.
Breytingar á mótum
Kirkjunnar
Stjórn Kirkjunnar hefur ákveðið að
gera eftirfarandi breytingará
mótum Kirkjunnar:
Sumarmót Kirkjunnar verður haldið
27.-29. júní á næsta ári.
Æskulýðsmót verður haldið um
Verslunarmannahelgina.
Haustfagnaður/uppskeruhátíð verður í
októbermánuði og verður það gert að
árlegum viðburði.
Tillögur frá Tillögunefnd sem
samþykktar voru á aðalfundi
Umbreyting innávið - Boðun útávið
1. Að boðskapur kirkjunnar verði
fluttur öllum þegnum þessa lands á
einfaldan og áhrifaríkan hátt með þvi
að allar deildir og söfnuðir setji
boóun í algeran forgang. Að Laódí-
keuboðskapurinn verði fluttur og
útskýrður fyrir kirkjunni svo að
fagnaðarerindið verði lifandi hið
innra með safnaðarmeðlimum og
seinna regnið megi falla yfir kirkjuna.
Opinberir fyrirlestrar með Dwight
Nelson:
Dagana 19.-23. mars 2007 voru
haldnir opinberir fyrirlestrar 4 daga í
röð í Víkingasal hótel Loftleiða.
Dwight Nelson var fyrirlesari og var
yfirskrift þessarar fyrirlestrarraðar
„Orðrómur úr austri“ þar sem skyggst
var inn í spádóma Daníels- og Opin-
berunarbókarinnar og fengist við það
hvernig sá boðskapur snerti líf okkar
í dag. Þessir fyrirlestrar voru teknir
upp á DVD og hægt er nálgast þá hjá
Frækorninu.
Útbreiðsluprédikari:
Á haustdögum 2007 leitaðist stjórn
Kirkjunnar eftir að fá Adam Ramdin
sem útbreiðsluprédikara á islandi.
Hugmyndin var að fá hann til reynslu
I 1 ár og að hann myndi einbeita sér
að vexti safnaðarins og vinna að
boðun hér á landi. Því miður gekk
þetta ekki eftir, þar sem hann hafði
verið beðinn um að starfa hjá
aðventkirkjunni í Bretlandi og tók því
kalli.
2. Að almannatengslaritari sé virkur i
því að styrkja opinbera imynd
kirkjunnar með því að taka þátt i
þjóðfélagsumræðunni og vera
sýnilegur á opinberum vettvangi.
Ný nefnd, Málefna- og siðfræðis-
ráð:
Stjórn Kirkjunnar hefur samþykkt
stofn nýrrar nefndar sem skal bera
heitiö Málefna- og siðfræðiráð, með
það í huga að starfshópurinn gefi frá
sér yfirlýsingar um hin ýmsu málefni
sem snerta daglegt líf okkar og mál
sem eru í brennidepli I þjóðfélaginu.
Yfirlýsingar frá starfshópnum munu
birtast á heimasíðu Kirkjunnar auk
birtinga í Aðventfréttum. Ráðið skipa
Skúli Torfason og Björgvin Snorra-
son.
3. Að heilsuboðskapurinn verði
áfram virkur hluti af boðun
kirkjunnar.
Á síöasta starfstímabili Kirkjunnar
var Unnur Halldórsdóttir deildarstjóri
og var heilmikið starf unnið í því að
kynna fyrir fólki hvernig hægt sé að
hafa betri heilsu. í tengslum við það
var haldin heilsusýning í Suðurhlíðar-
skóla. Þá var einnig stofnað félagið
„Heilsa og forvarnir" sem sá um að
vera með heilsusýningar, m.a. í
Kringlunni og í Kjarnanum, Mosfells-
bæ. Einnig var haldin heilsusýning í
Vestmannaeyjum og á Glerártorgi,
Akureyri, í samstarfi við aðvent-
söfnuðina á þeim stöðum. Því miður
sá Unnur sér ekki fært að halda
áfram sem deildarstjóri á nýju tíma-
bili og enn sem komið er hefur
stjórnin ekki fengið neinn til að taka
að sér heilsu- og bindindisdeild
Kirkjunnar.
4. Að heimasíða Kirkjunnar verði
gagnvirk og lifandi, þar sem
boðskapur kirkjunnar birtist i
greinum eftir presta og leikmenn.
Nú er ný og betri heimasíða
Kirkjunnar komin í gagnið á netinu.
Hún var gerð með það í huga að
vera gagnvirkari og meira lifandi, og
þar er hægt niðurhala allt nýtt efni
sem kemur út af Kirkjunni og sett er
á netið. T.d. er hægt að fá aðvent-
fréttir á pdf formi, hljóðupptökur af
fyrirlestrum s.s. frá sumarmótum og
myndir af hinum ýmsu viðburðum
safnaða og Kirkju.
5. Að Biblíubréfaskólinn verði settur
á laggirnar og gerður öllum aðgengi-
legur á netinu fyrir lok þessa árs.
Björgvin Snorrason er að vinna í því
að búa til efni fyrir biblíubréfa-
skólann. Einnig hefur stjórnin fengið
Lilju Ármannsdóttur til að taka að sér
að vera með biblíubréfaskóla á
vefnum. í því samhengi er María
Ericsdóttir að setja upp efnið
„Discover Bibleschool” sem nú hefur
AÐVENTFRÉTTIR • Desember 2007