Aðventfréttir - 01.12.2007, Qupperneq 9
verið þýtt yfir á íslensku. Það mun
síðan verða sett inn á vef þegar það
er tilbúið.
6. Að útgáfustarfsemin verði endur-
vakin með því að skipa þriggja-
manna ritstjórnarnefnd Frækornsins
sem standa mun að árlegri útgáfu
smárita og stærri bóka og gefi einnig
út lítið timarit ætlað fólki innan og
utan kirkjunnar. Frækornið sjái síðan
um dreifingu og sölu síns efnis.
Ritstjóranefnd Frækornsins:
Stjórn Kirkjunnar samþykkti að
stofna ristjórnarnefnd Frækornsins
sem muni standa að árlegri útgáfu
smárita og stærri bóka ætlað fólki
innan og utan kirkjunnar. Lögð
verður áhersla á útgáfu smárita til að
byrja með. Nefnd þessa skipa Eric
Guðmundsson, Jón Hjörleifur
Stefánsson og Halldór Magnússon.
Nú þegar er nefndin komin langt á
veg með útgáfu smárita eftir Jón
Hjörleif Stefánsson.
Discover Bibleschool:
Eins og fram hefur komið í lið 5, þá
hefur efnið „Discover Bibleschool"
verið þýtt yfir á íslensku. María
Ericsdóttir hefur verið beðin að setja
efnið einnig upp á bæklingaformi svo
hægt sé einnig að nota það sem
smárit.
Ættfeður og spámenn:
Bókin Ættfeður og spámenn
(Patriarchs & Prophets) eftir Ellen G.
White hefur nú verið þýdd yfir á ís-
lensku og er verið að lesa hana yfir.
Hún mun fljótlega verða gefin út.
Spámenn og konungar:
Nú er hafin þýðing á bókinni Spá-
menn og konungar (Prophets &
Kings) eftir Ellen G. White. Áætlað
er að þýðingunni verði lokið haustið
2008.
7. Að prestar og leikmenn standi
fyrir árlegum opinberum fyrir-
lestraröðum þar sem boðskapur
englanna þriggja er fluttur innan en
einnig utan svæða safnaðanna, með
það að marki að höfða til mis-
munandi aldurshópa.
Opinberar fyrirlestraraðir:
Stjórn Kirkjunnar hefur gert þá
samþykkt að prestar og leikmenn
standi fyrir árlegum opinberum fyrir-
lestraröðum þar sem boðskapur
englanna þriggja er fluttur innan en
einnig utan svæða safnaöanna, með
það að marki að höfða til mis-
munandi aldurshópa. Beiðni um
fyrirlestra skal koma frá safnaðar-
stjórnum til prestanna, sem síðan fái
leikmenn með sér.
Það má samt einnig nefna að bæði
Hafnarfjarðarsöfnuður og Reykja-
víkursöfnuður hafa verið með áhuga-
verða fyrirlestra á síðustu tveimur
árum:
Björgvin Snorrason hefur verið með
nokkra opinbera fyrirlestra í Loftsal-
num á vegum Hafnarfjarðarsafnaðar.
Borge Schantz var með fyrirlestraröð
á vegum Reykjavíkursafnaðar í
Suðurhlíðarstofu og talaði um Islam
og kristna trú.
Guðmundur Ólafsson var með fyrir-
lestraröð á vegum Reykjavíkur-
safnaðar í Suðurhlíðarstofu þar sem
hann talaði um ísrael og kirkjuna.
8. Að bænalifið verði sýnilegra og
skipulegra innan safnaðanna, hvort
sem það er í formi bænahópa eða
bænakvölda o. þ. h.
Áhersla á mikilvægi bænarinnar:
Þetta er liður sem hver söfnuður fyrir
sig þarf að leggja áherslu á. Stjórn
Kirkjunnar samþykkti þó að lögð yrði
áhersla á mikilvægi bænarinnar í
ræðum í kirkjum og í greinum
Aðventfrétta. Að bænalíf safnaðanna
yrði sjáanlegra m.a. með því að hafa
síðu i Aðventfréttum sem leggur
áherslu á það er viðkemur bæninni
og bænalífi í söfnuðunum.
Global Rain:
í júní-júlí bauðst safnaðarmeðlimum
og söfnuðum að taka þátt í heimsá-
taki á vegum Calefornia Conference
sem var kallað “Global Rain
07.07.07”, þar sem kirkjur um allan
heim sameinuðust í bæn um út-
hellingu Heilags anda. Þar sem
þetta var yfir sumartímann var ekki
áberandi þátttaka en þó tóku ein-
hverjir þátt.
9. Að stofnað verði ungmennafélag í
hverjum söfnuði þar sem þvi verður
við komið og að formenn ungmenna-
félaganna vinni saman. Markmið
æskulýðsstarfsins verði fjórþætt:
Næring, samfélag, tilbeiósla og
þjónusta.
Stjórn Kirkjunnar samþykkti að
stofnað verði ungmennafélag í
hverjum söfnuði þar sem því verður
við komið og að formenn ungmenna-
félaganna vinni saman með Gavin
sem tengilið þeirra. Markmið
æskulýðsstarfsins verði flórþætt:
Næring, samfélag, tilbeiðsla og
þjónusta.
Enn sem komið er eru ekki starfandi
ungmennafélög í öllum söfnuðum.
Það var stofnað ungmennafélag í
Hafnarfjarðarsöfnuði og þar er verið
að vinna öflugt starf, s.s. Daníels-
bókarnámskeið sem haldið var fyrstu
helgina í nóvember í Hlíðardals-
skóla, en þar voru saman komin hátt
i 30 ungmenni. í Reykjavíkursöfnuði
eru Monette, Halldór og Elva Lind að
sjá um unglingastarfsemi með því að
vera með unglingakvöld á laugar-
dögum.
10. Að hver söfnuður leggi alúð og
rækt við barnastarfið.
Rædd var tillaga nr. 10 frá tillögu-
nefnd varðandi það að hver söfnuður
leggi alúð og rækt við barnastarfið.
Þetta er hlutur sem hver söfnuður
fyrir sig þarf að vinna að, en það
sem Kirkjan gæti gert er að styðja
foreldrana með fræðslu og þjálfun í
uppeldisfræði og andlegum mál-
efnum heimilisins. Einnig kom fram i
umræðum stjórnarinnar að það sem
Kirkjan skipuleggði þyrfti að vera
barnavænt.
í tengslum við þetta hefur Gavin
ásamt góðum hópi sjálfboðaliða sett
af stað námskeiðið Eins og Jesús -
til að hjálpa börnum, táningum og
fullorðnum að endurspegla Jesú
Krist í öllu sinu lífi.
AÐVENTFRÉTTIR • Desember 2007 |