Aðventfréttir - 01.12.2007, Side 11
þess að ég var svo viss um að Guð
væri við stjórnvölinn. Höfnunarbréfið
kom þannig algjörlega flatt upp á mig. í
nokkra daga gekk ég um eins og
dauðyfli.
Ég vissi að Guð hafði verið að
verki. Ég var viss um að Guð hafði verið
að vinna í lífi mínu til að undirbúa þessa
bók. Ég hafði fengið mörg jákvæð við-
brögð við handritinu mínu. Jafnvel
Satan hafði sýnt hvað hann ætlaði sér.
En öllu var svo sannarlega lokið.
Eftir að hafa eytt mörgum
stundum í bæn, fór ég að velta því fyrir
mér hvort að Guð hefði kannski eitthvað
annað í hyggju fyrir þetta efni. Við
höfðum nýlega verið að tala um hvíldar-
dagsskólalexíuna á fundi hjá deildinni
og ég fór að velta því fyrir mér hvort
hægt væri að draga út guðfræðilegu
innvið bókarinnar og nota sem lexíu. Eg
skrifaði tillögu og sendi hana til Heims-
kirkjunnar.
Ég fékk jákvætt svar og var
beðinn um að skrifa fyrstu lexíuna. Og
þá næstu lexíu og svo koll af kolli.
Venjulega er fólk beðið um að skrifa
lexíuna en ég bauðst sjálfur til þess. Að
lokum voru 13 lexíur tilbúnar. Þær fóru
til umljöllunuar í öllum nefndunum og
það var ákveðið að ég yrði höfundur
lexíanna 4. ársfjórðung 2007 og efnið
yrði Eldskírn (The Refiner’s Fire).
Og bókin?
Nokkrum vikum eftir að Heims-
kirkjan hafði samþykkt lexíuna, fékk ég
tölvupóst frá sama einstaklingi og hafði
sent mér höfnunarbréfið. Vildi ég vera
svo vænn að skrifa bók um efni
lexíunnar?
Ég gat ekki annað en brosað.
Guð vissi nákvæmilega hvað hann var
að gera.
Þegar að ég lít aftur, þá myndi
ég ekki breyta neinu. Frá mínu
persónulegu sjónarmiði gat ég nú
skrifað betra handrit en það fyrsta hafði
verið. Tíminn hafði liðið, og þar með
hafði tækifæri gefist fyrir persónulegan
andlegan vöxt, sem hjálpaði vonandi til
að gera bókina betri. Ég var að upp-
götva að Guð hefur drauma varðandi líf
okkar en það er best að upplifa þá sam-
kvæmt hans eigin tímasetningu.
Ég held í raun að bókin hafi
byrjað fyrir mörgum árum í huga Guðs.
Þegar ég var að vinna að lagfæringu á
fyrsta handritinu, mundi ég allt í einu
eftir bæn sem ég hafði beðið 10 árum
áður. Ég var að vinna í Albaníu rétt eftir
að kommúnisminn féll. Ég hlustaði
klukkustund eftir klukkustund á frá-
sagnir fólks af þjáningu þeirra og
hræðslu þegar að þau lifðu undir ein-
hverjum grimmúðlegustu harðstjórn í
Evrópu, einsráðisherra sem jafnvel
Stalín er sagður hafa hvatt til að fara
betur með fólk sitt.
Eftir eina heimsókn þar sem
spurningin „hvers vegna” var spurð
tárvotum augum, fór ég út vonsvikinn.
Þegar að ég gekk út um dyrnar, bað ég
hljóðleg þessa stuttu bæn „Ó Guð minn,
einhvern tímann vildi ég geta skrifað
bók sem hjálpar fólki til að skilja allt
þetta". Ég gleymdi samstundis bæn
minni. En það lítur úr fyrir að Guð hafi
ekki gert það.
Eins og ég sagði þá ætlaði ég
mér aldrei að skrifa svona lexíu eða
bók. Að vissu leiti er ekki hægt að rann-
saka þjáningu hvort sem er. Lífinu á að
lifa og það er mjög erfitt að deila með
öðrum á merkingarbæran hátt því sem
þú hefur aldrei upplifað. Annars verður
tilhneigingin sú að láta sannleikann
hljóma þreytandi, leiðinlegan, eða jafn-
vel ósennilegan. Skrif mín eru tilkomin
vegna þessa ferðalags. Næstum hvert
vers og tilvitnun sem notað er hef ég
uppgötvað að því er virðist af slysni í
gegnum lífsleiðina.
Þegar ég skrifaði bókina reyndi
ég meðvitað að vera eins opinn og
heiðarlegur eins og ég mögulega gat.
Sem kristnir einstaklingar, sérstaklega
sem kristnir leiðtogar, getum við af yfir-
sjón gefið þá mynd að við höfum ein-
hvern veginn náð fullkomnum tökum á
kristindómnum eða séum komin á
áfangastað. En við erum öll á ferðalagi,
og þetta ferðalag gengur best ef við
vinnum saman. Þetta snýst ekki um að
sigra, eða komast fyrst á leiðarenda,
heldur um það að sjá til þess að við
munum á endanum öll komast yfir
marklínuna. Þetta er sú lexia sem ég
hafði þá nýlega lært á áhrifamikinn hátt
er ég hóf nám til meistaragráðu í
stjórnun við Andrews háskólann.
Ég man eftir því að vinur minn
deildi með mér vandamáli og ég svaraði
með því að deila því hvernig ég átti í
erfiðleikum á sama sviði. Hann varð svo
hissa að hann missti strax út úr sér:
„Ha! Ert þú ekki prestur? Ég hélt að þú
væri með þetta allt á hreinu! “
Það er létt að sitja og rökræða
djúpstæða guðfræði og finna alls konar
góð svör, en það er allt annað að nota
það sem við höfum lært. Stundum tekst
okkur það, en oft mistekst okkur og við
verðum að byrja upp á nýtt.
Eins og vinur minn, get ég
horft á kristna leiðtoga og aðra í
kirkjunni úr flarlægð og fundist þeir,
vegna þess að þeir líta út fyrir að vera
svo nálægir Guði, hljóti að vera lausir
við þau vandmál sem ég glími við.
Freistningin er sú að álykta að ég eigi
einn í erfiðleikum. En það er ekki rétt.
Við eigum öll erfitt með eitthvað, vegna
þess að við öll erum á göngu -sumir
eiga bara auðveldara með að fela sárs-
auka en aðrir. Kannski ef við væru eilítið
heiðarlegri varðandi þann sársauka sem
við upplifum og erfiðleikann sem við
höfum við að hagnýta kenningar Guðs í
lífum okkar, yrðum við öll sterkari fyrir
vikið.
Það sem ég skrifaði á ekki að
vera það síðasta sem sagt verður um
tilgang þjáningar. Að sjálfsögðu ekki,
vegna þess að það eru margir frábærir
kristnir einstaklingar sem skrifað hafa
enn betur og af dýpri innsýn en ég hef.
Ég vildi samt sem áður, eins og ég
sagði í byrjun, reyna að deila því inn-
sæi og þeim lærdómi sem Guð hefur
kennt mér. Þessi lærdómur hefur
hjálpað mér mikið til að finna leið til að
skilja lífið og erfiðleikana sem ég mæti.
Á leið minni hef ég fengið mikla upp-
örvun. Það sem skiptir mig mestu máli
núna er að veita öðrum þá hvatningu
sem ég hef fengið.
Þannig að mér líður mjög líkt
og Páll er hann skrifaði „Lofaður sé
Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists,
faðir miskunnsemdanna og Guð allrar
huggunar, sem huggar oss í sérhverri
þrenging vorri, svo að vér getum hugg-
að alla aðra í þrengingum þeirra með
þeirri huggun, sem vér höfum sjálfir af
Guði hlotið “ (2Kor 1:3-4).
Það er von mín að við
mættum öll verða „forðabúr" huggunar
Guðs. Svo að þegar að þeir sem í
kringum okkur eru hrasa eða íhuga að
gefast upp, þá er skammt í hug-
hreystinguna,
Gavin Anthony
Reykjavík, 2007
AÐVENTFRÉTTIR • Desember 2007