Aðventfréttir - 01.12.2007, Blaðsíða 15
469. “Það er mikil þörf fyrir hin mildu og
afgerandi áhrif kristinna kvenna í því
mikla starfi að prédika sannleikann.”
Evangelism. bls. 472. Þessar
yfirlýsingar Guðs eru mjög mikilvægar
fyrir okkur öll. Guð ÞARF á okkur öllum
að halda!
í talnaskýrslum Alheimssamtaka
Sjöunda dags aðventista frá því í
desember árið 2006 segir, að 75 %
allra meðlima safnaðarins í heiminum
séu konur. Vissir þú þetta? Þegar 75%
af vinnufæru fólki er ekki nýtt til starfa,
hlýtur eitthvað mjög alvarlegt að vera
að hjá viðkomandi stjórnsýslu. Ég trúi
því að þegar konum er gefið tækifæri til
starfa, muni þær stíga fram fyrir skjöldu
og hjálpa til við að Ijúka verkinu.
Eitt af því sem kvennastarfið gerir er að
hjálpa konum að uppgötva hæfileika
sína og möguleika til starfa. Þegar þær
hafa náð þessu marki, eru allar dyr
opnar fyrir þeim og þær koma fram
fullar af áhuga og vilja. í gegnum árin
hefi ég séð það gerast aftur og aftur.
Hér í Sydney skipulegg ég og stjórna
leiðtoganámskeiðum fyrir konur á öllum
aldri. f febrúar á þessu ári komu saman
55 konur á helgarnámskeiði þar sem
þeim var kennt að stofna "litla hópa”
söfnuðunum til að vinna að útbreiðslu-
starfi.
Á hverju ári skipuleggjum við kvenna-
mót og í ár voru 450 konur hjá okkur yfir
helgina. Dr. Lourdes Morales-
Guðmundsson, kona Reynis
Guðmundssonar, var ræðukona
mótsins. Kvennamótin eru uppáhalds
viðburðir hjá konunum og eru alltaf vel
sótt. Á hverju ári bætast fleiri í hópinn.
í ár var þetta stærsti hópur sem hefur
nokkurn tíma komið á kvennamót hér í
Sydney.
Kvennamót eru sérstaklega hentugur
vettvangur til þess að bjóða vinkonum
okkar að koma í kirkju, hvort sem þær
eru kirkjuræknar eða ekki Ég veit ekki
hvort íslenskar konur hafi haft tækifæri
til þess að sækja kvennamót, en ef ekki,
þá ráðlegg ég ykkur að skipuleggja slíka
helgi fyrir þær. Hllðardalsskóli yrði al-
veg fyrirtaks staður fyrir slíkt mót.
í fyrrahaust byrjuðum við á því að senda
kvennablaðið “Women of Spirit” til 125
kvenna sem höfðu af einhverjum
ástæðum hætt að koma í kirkju. Ég get
sagt ykkur það, að nú eftir aðeins eitt ár
sjáum við mjög jákvæðan árangur af
þessari viðleitni. Konur sem hafa ekki
stigið fæti í kirkjur okkar í 30 ár eru að
koma aftur! Er það ekki dásamlegt?
Við munum halda áfram að gefa þeim
blaðið í eitt ár í viðbót og vonum að fleiri
bætist í hópinn.
svo líka fyrir ungar
www.ucanshine.com.au
konur:
15 september s.l. höfðum við sérstakan
dag fyrir ungu konurnar okkar, frá 16
ára aldri og upp til 30 ára. Þetta var í
annað sinn sem við höfðum slíkan dag
bara fyrir ungar konur. Það var alveg
dásamlegt að sjá þær koma og taka
þátt í öllu. Þær hjálpuðu til við sönginn,
og dagskrána yfirleitt, og líka við að
predika. Og svo vilja þær nú halda
námskeið fyrir aðrar konur á þeirra
aldri.
Guð er góður og miskunnsamur. Þegar
við konurnar erum fúsar til að nota þær
gáfur sem Guð hefur gefið okkur, mun
hann hjálpa okkur og blessa starfið og
viðleitni okkar á allan hátt, á hvaða
sviði sem það kann að vera.
Kærar kveðjur,
Erna Rós
(Guðsteinsdóttir) Jo-
hnson
Við erum líka með tvö
Internetinu fyrir allar
www.qscadventist.ora.au/
women og
netföng
konur:
x'CÍW&'7-
Frábærar bækur á góðu verði
DVD: Dwight Nelson á íslandi 2007 2.500kr.
íslenskar bækur m.a.:
Þrá aldanna Deilan mikla
Vegurinn til Krists Drottinn kemur
Baráttan um borð Tekist á við sorg
Ráðleggingar varðandi ráðsmennsku
Fjársjóður anda spádómsins
Eigum mikið safn bóka Ellenar G. White:
Advent Home 1650/850 kr.
Ministry of Healing 750 kr.
Christ's Object Lessons 1650/550 kr.
Counsels on Education 990 kr.
Evangelism 1500 kr.
True Education 1490 kr.
Education 790 kr.
Mount of Blessing 1100 kr.
Sígilt fyrir börnin:
^ Trúfastir vinir
Rökkursögur
fp Hvers vegna?
m Bænir og vers
. Regnboga-
börnin 2
• Besti vinur
barnanna
Litabækur
Geisladiskar...
Morgunvökubækurnar:
To be like Jesus
Sons and Daughters of God
1.650 kr.
1.650 kr.
Gott í pakkann:
Orð Guðs til þín úr Biblíunni (margir litir) 1.890 kr.
Mannakorn 600 kr.
Sniðugt með jólakortinu eða í jólapakkann:
• Eigum mikið úrval smábæklinga á ensku
• Bjóðum upp á smábækur á islensku
• Bílabænin
Nvtt (kr.250 pakkinni
Vegleg bókamerki (á ensku) til sölu í 2
pökkum (4 í pakka) sem hafa að geyma
vers úr Biblíunni varðandi ýmis efni, s.s.
hvíldardaginn, ástand hinna látnu,
endurkomuna, frelsunina, dóminn,
helgidóminn, merki dýrsins, helgun.
1!IU!I!3 (6 Jeuun!i()|3 (8 ei|S!j z Bo gnejq s (L upfLUSQiA Bo ilpfiJM (9 o>|S 60 Buuij'nf)|>|A)|S (S
|||nB jn !duB)je)|s jeuo)| S||v (v ||!LiA)|6eJa (£ ejjietj |)|aj je 60 jeums jepjefLi ujnpjnquinjj je ujoj (z Jeuuueeje! ipraAe je ujoj (j :nu|Luoije)|>|ej>| jn u]n6uiujnds qia joas
AÐVENTFRÉTTIR • Desember 2007