Heimilisritið - 01.09.1952, Side 13
Lifið í friði við taugarnar
Taugalœkmrvnn Walter C. Alvarez gefur fólki fgessi ráð
TIL ÞESS að geta lifað í sátt
og samlyndi við þær taugar, sem
þér nú einu sinni hafið, verðið
þér fyrst og fremst að skilja,
hvernig á því stendur, að taug-
arnar gera yður margvíslegan
grikk. Ég verð að segja áhyggju-
fullum sjúklingi alveg eins og er :
,,Það er ekkert alvarlegt að yður.
Oll sjúkdómseinkennin stafa af
því, að taugar yðar eru í ólagi".
Og sjúklingarnir spyrja þá venju-
lega : ,,En hvers vegna gera taug-
arnar mér þessa hrekki ?“
Oft er maður mest niður dreg-
inn eftir eitthvert áfall, svefn-
lausa nótt eða erfiðan dag. Kaup-
sýslumaður nokkur fór t. d. að
þjást alvarlega af hjartslætti, dag-
inn sem hann varð að fram-
kvæma það óþægilega verk að
segja gömlum starfsmanni upp
stöðu sinni. Kona nokkur vakn-
aði um miðja nótt og fannst hún
vera að kafna. En allt kvöldið áð-
ur hafði hún verið í áköfum þræt-
um við ættingja sinn út af fjár-
málum. Auðvelt er að sjá, hvers
vegna taugar þessa fólks voru
þandar til hins ýtrasta og gátu
hvenær sem var gert uppreisn.
En oft getur litið svo út, sem
óveðrið komi úr heiðskíru lofti.
Mjög taugaveikluð kona segir
mér, að hún hafi enga ástæðu til
að vera slæm á taugum. Hún á
ástríkan mann, ánægjulegt heim-
ili, vel gefin börn, engár áhyggj-
ur. Hvers vegna koma þá þessi
tímabil, þegar hún titrar, eins og
laufblað, er dauðþreytt, kvíða-
full og döpur ?
Þegar þannig stendur á, finn ég
oftast greinilega tilhneigingu til
taugaveiklunar í ættinni. Segjum
að þér hafið erft bráðlyndi föður
yðar eða hneigð móður yðar til
að vera áhyggjufull út af öllu.
Þér getið ekki losnað alveg við
þetta eðli, en þér getið lært að
stjórna því, svo að þér komizt
hjá ónauðsynlegum þjáningum.
Eg hef erft lélegar taugar móð-
ur minnar. Og er ég var ungur
maður, var mér Ijóst, að það
kynni að geta eyðilagt bæði fram-
tíð mína og heilsu. Mamma var
að mörgu leyti hyggin kona, og
hún hafði kennt mér margt nyt-
samt. En ég ákvað að læra líka
SEPTEMBER, 1952
11