Heimilisritið - 01.09.1952, Síða 20

Heimilisritið - 01.09.1952, Síða 20
hliðina á símanum í setustof- unni." Þegar læknirinn kom aftur, var hann næstum hlakkandi á svip- inn. ,,Hún hefur líka inflúensu!“ sagði hann. ,,Það hafa flestir nú.“ Bill stundi. ,,Hvað eigum við að gera ? £g gæti hringt til Ethel — en hún á von á barni eftir nokkrar vikur." ,,Frú Brown lofaði að senda einhverja hingað," sagði læknir- inn. ,,Ég veit ekki hverja — ég skildi ekki eitt orð af því, sem hún tautaði — sennilega gamla maddömu, eins og hún er sjálf. Ég kem eftir hálftíma og segi, hvað hún eigi að gera. Ég skil dyrnar eftir ólæstar, svo hún komist inn.“ BILL var of veikur til að and- mæla, en tíu mínútum seinna ósk- aði hann innilega, að hann hefði gert það. Endertonmæðgurnar komu sem sé siglandi inn gegn- um ólæstar dyrnar og létu samúð sína í ljós með skrækum röddum og ópum. Þær höfðu séð lækn- inn koma og fara og höfðu strax getið sér til, að eitthvað væri að, en þær skyldu vissulega hjúkra þeim. Vildu þeir ekki láta búa betur um rúmin ? Og hvernig þætti þeim að fá gott og sterkt te ? Næsta tímann fannst Bill sem væri hann í vitlausraspítala. Kaldir bakstrar voru lagðir við ennið á honum — sjóðheitur hita- poki settur við fæturna á honum, hendurnar núnar með spritti og hellt ofan í hann heitu te. Að lok- um rétti frú Enderton honum glas af ísköldum appelsínusafa. Lára Enderton hló hátt og skrækt. ,,Ég hef ekki enn heyrt getið um neinn, sem ekki þótti góður appelsínusafi. Drekktu það nú. Guð minn góður, hvað karl- menn eru erfiðir !“ ,,Það þýðir ekki að ætla að neyða því ofan í mig,“ orgaði Mc Dangal. Hún reyndi það þó auðsjáan- lega — það heyrðist skvamp og brothljóð, og Lára kom æpandi inn í svefnherbergi Bills og hélt frá sér pilsinu. Það var rennblautt af appelsínusafa. ,,Mamma, sjáðu hvað strák- skömmin hefur gert! Sjáðu bara ! Og þetta er í fyrsta sinn, sem ég fer í þennan kjól!“ Þrátt fyrir hitasótt og höfuð- verk, var Bill hreykinn af syni sínum. Hann óskaði, að hann hefði gert hið sama við sinn app- elsínusafa. ,,Kærðu þig ekkert um það,“ sagði frúin sefandi. ,,Aumingja 18 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.