Fréttatíminn - 15.11.2013, Side 27
Öflugi sportjeppinn
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3-
28
75
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi
Þú finnur „Mercedes-Benz Ísland“
á Facebook
Mercedes-Benz GLK 220 CDI með 7 þrepa 7 G-TRONIC PLUS sjálfskiptingu.
Verð frá 7.590.000 kr.
Mercedes-Benz GLK er ríkulega búinn og einstaklega öflugur sportjeppi. Hann er búinn hinu háþróaða
4MATIC aldrifskerfi sem tryggir framúrskarandi aksturseiginleika og aukinn stöðugleika, jafnt á
bundnu sem óbundnu slitlagi. 4MATIC er ávallt virkt og bregst strax við breyttum akstursaðstæðum,
t.d. mikilli úrkomu, ísingu eða snjó. Dráttargetan er heil 2.400 kg og hann eyðir aðeins 6,1 l/100 km
í blönduðum akstri. Hjá Öskju á Krókhálsi 11 bíður þín glæsilegur GLK til sýnis og reynsluaksturs.
Kertaljósamatur á laugar-
dögum
Á Vinasetrinu gengur helgin eins
og hún myndi gera hjá hefðbund-
inni stórfjölskyldu. „Á föstudögum
búa öll börnin til eigin pizzu. Á
laugardagskvöldum erum við með
kertaljósakvöldverð. Þá reynum við
að gera fínan mat. Þau hafa beðið
um að við eldum lambalæri en það
sem þau eru hrifnust af eru hakk
og spaghettí sem okkur finnst
meira svona mánudagsmatur,“
segir Silja. Krökkunum finnst mjög
gaman að taka þátt í matargerðinni.
Þau baka líka og koma jafnvel með
uppskriftir af uppáhaldskökunni
sinni. „Sumum finnst mjög merki-
legt að fá að brjóta egg því við erum
ekkert að stressa okkur á hvort
það kemur smá skurn með. Við
plokkum hana þá bara úr,“ segir
Silja. Allir ákveða saman hvað er
gert yfir daginn, oft er farið í sund,
á Víkingasafnið, í Skessuhelli eða
einfaldlega bara út á leikvöll. „Þjóð-
leikhúsið bauð okkur á sýningu á
Dýrunum í Hálsaskógi og það var
mjög gaman. Í þeirri ferð var 12
ára drengur sem hafði aldrei farið
í leikhús. Hann var í fyrstu mjög
stressaður og við þurftum að út-
skýra fyrir honum hvað leikhús
var. Fyrir mörg þessara barna er
mikil upplifun að fara í leikhús, bíó
eða á skyndibitastað því á þeirra
heimili eru ekki til peningar til að
gera svona lagað, sérstaklega ekki
þegar það eru mörg börn á heim-
ilinu,“ segir Díana.
Meðal þess sem þær hafa unnið
með á Vinasetrinu er ótti sumra
barna við karlmenn. „Þetta eru
börn sem hafa upplifað heimilisof-
beldi eða að karlmenn hafa verið
mjög fjarlægir í þeirra lífi. Þau sjá
karlmenn sem ákveðna ógn og
tengja ekkert gott við þá, líta hrein-
lega á þá sem vondar verur,“ segir
Hildur. Silja bendir á að þarna hafi
einnig verið drengur sem óttaðist
konur. „Það var mikil áskorun fyrir
okkur að sýna þeim dreng okkar
allra bestu hliðar. Hann leit á kon-
ur sem hræðilegar og vondar, og
fannst mæður alveg skelfilegar.
Síðan er líka eitt barn sem vill ekki
vera nálægt ömmum. Þessi börn
koma hingað með stóra bakþoka
fulla af reynslu,“ segir hún. Um
næstu helgi hefur fyrsti karl-
maðurinn störf hjá Vinasetrinu og
verður því til tækifæri til að vinna
með ótta þeirra barna sem hræðast
karlmenn. „Börn þurfa að upplifa
að karlmaður geti verið skemmti-
legur og sé til staðar þegar þau
mæta hingað. Þau þurfa að fá sem
réttasta mynd af veröldinni og fari
út í lífið vitandi að það er hægt að
stóla á fullorðna einstaklinga hvort
sem þeir eru karlmenn eða konur,“
segir Hildur.
Hreinsuðu geymslur hjá vin-
unum
Þær fóru í gegn um þykkan bunka
starfsumsókna og völdu vandlega
úr enda gera þær miklar kröfur til
starfsfólks. Auk þess er það mikil
skuldbinding að vera í Vinasetrinu
heila helgi þar sem engin vakta-
skipti eru. Það er samt hluti af
því að líkja eftir hefðbundnu fjöl-
skyldulífi. „Um daginn vaknaði
einn strákurinn snemma og ég fór
líka á fætur og borðaði með honum
morgunmat. Hann var mjög hissa
á því að ég kæmi með honum. Þau
eru ekki öll vön því að fullorðnir
sýni áhuga á því að vera með þeim,
borða með þeim morgunmat og
horfa með þeim á barnatímann,“
segir Silja. „Sum þessara barna eru
nánast sjálfala. Það eru krakkar allt
niður í 7 ára sem pakka sjálfir niður
áður en þau eyða helginni hér. Svo
eru líka börn sem hafa farið í fóstur
og það getur verið erfitt fyrir þau
og foreldra þeirra að venjast þessu.
Foreldrar óttast að barnið verði
tekið og barnið á erfitt með að venj-
ast nýjum stað. Við vinnum þá með
þeim í aðskilnaðarkvíða. Sum börn-
in eiga ekki vini og kunna ekki að
nálgast jafnaldra sína. Þau eignast
sum vini hér og mynda tengsl sem
er þeim dýrmætt,“ segir hún.
Vinasetrið á sér enga fyrir-
mynd, hvorki hér á landi né
erlendis svo þær viti til. Það er
fjármagnað með samningum
við félagsþjónustuna og barna-
verndarnefndir og er ekki rekið
í gróðaskyni. Þeim hefur reynst
erfitt að sækja um styrki, bæði því
þessi tegund af nýsköpun passar
illa inn í skilgreinda flokka og svo
því að fyrirtæki veigra sér við að
styrkja félag sem ekki getur aug-
lýst styrkveitingarnar. Vinasetrið
hefur þó fengið bakpoka frá Sím-
anum, mynddiska frá Myndformi
og kynningarbæklinga frá Odda.
„Annars höfum við bara hreinsað
út úr geymslum hjá vinum og
ættingjum. Ég held að fólk hætti
bráðum að svara okkur,“ segir
Hildur hlæjandi en meðal þess
sem þau hafa fengið frá vinum eru
ýmisskonar spil og leiktæki.
Fyrst og fremst er áherslan lögð
á að vinna náið með fjölskyldunni
og félagsþjónustunni. „Þetta hefur
gengið mjög vel og okkur hefur
tekist að mynda traust. Við sjáum að
það er þörf fyrir Vinasetur annars
staðar á landinu og einnig fyrir börn
sem eru eldri en 13 ára. Vonandi
verður hægt að veita þá þjónustu
þegar fram í sækir,“ segir Hildur.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Á dýnugólfinu eru allir í sömu hæð. Þar
má hoppa, rúlla sér eða bara slaka á.
úttekt 27 Helgin 15.-17. nóvember 2013