Fréttatíminn - 15.11.2013, Blaðsíða 56
H ugmyndin að kisukertinu kviknaði þegar ég var í námi við Royal College of
Art í London en þá fór ég að velta
fyrir mér hvernig fólk notar kerti.
Einn daginn horfði ég á kerti bráðna
sem var í laginu eins og lítill feitur
jólasveinn. Hann aflagaðist allur og
mér fannst það frekar fyndið hvað
fólk spáir lítið í því hvað þetta er í
rauninni hrollvekjandi,“ segir Þór-
unn Árnadóttir hönnuður sem í fram-
haldinu velti því fyrir sér hvort hún
gæti einhvern veginn gert þá athöfn
þegar kerti brennur upp að meiri
upplifun og er nú búin að hanna kerti
sem er eins og köttur í laginu. Inni
í kertinu er beinagrind sem kemur
smátt og smátt í ljós þegar kertið
brennur. „Beinagrindin er falin inni
í vaxinu og bíður eftir að láta sjá sig
óvænt eftir að kveikt hefur verið á
kertinu,“ segir hún.
Þórunn segir að tilvalið hafi ver-
ið að hanna kött því þeir séu ýmist
taldir táknmynd krúttlegheita og
sakleysis eða að þeir eigi sér dekkri
hlið og hafa til dæmis verið kallaðir
gæludýr kölska. „Kettir voru dýrk-
aðir sem guðir í Egyptalandi til forna
og á okkar tímum virðast þeir ráða
yfir internetinu. Svo hafa þeir níu
líf. Þeir búa greinilega yfir einhverj-
um myrkum öflum. Kisa felur í sér
báðar þessar hliðar. Hún byrjar sem
sakleysislegur og krúttlegur kett-
lingur en umbreytist í beinagrind
með hvassar tennur og eldglæringar
í augum.“
Þórunn safnaði fjármagni til að
hefja framleiðslunni á vefnum Kick-
starter og gekk vonum framar og
safnaði því sem til þurfti á aðeins
fjórum dögum. Kertin verða seld þar
í forsölu til 22. nóvember.
Kisukertanna er beðið með mik-
illi eftirvæntingu og hefur Þórunn
fengið fjölda fyrirspurna frá fólki
um allan heim. Á dögunum eftir að
hún setti nýjar myndir á heimasíð-
una sína var þeim deilt nálægt tvö
hundruð og fimmtíu þúsund sinn-
um af vefmiðlinum Tumblr! Þá hef-
ur verið fjallað um kertin á miðlum
eins og 9GAG, The Meta Picture og
ReddIt. „Svo er ég núna komin með
nálægt sjö þúsund manns á póst-
lista hjá mér en allt er þetta fólk
sem vill fá að vita hvar og hvenær
hægt verður að kaupa kertin. Svo
kisi er aldeilis búinn að fá byr undir
báða vængi áður en hann er einu
sinni tilbúinn.“
Þórunn starfar sjálfstætt sem
hönnuður og deilir vinnustofu með
nokkrum öðrum hönnuðum í Braut-
arholti og hefur unnið að ýmiss konar
verkefnum bæði hérlendis og erlend-
is og er nýbúin að stofna fyrirtækið
PyroPet Candles með Dan Koval,
vöruþróunaraðila í Bandaríkjunum.
Kertið Kisa er fyrsta dýrið en aldrei
er að vita nema fleiri bætist í hópinn
síðar. Varan mun heita Kisa bæði á
markaði hér á landi og erlendis.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
heimili Helgin 15.-17. nóvember 201356
Hönnun Kerti sem upplifun er að sjá brenna
Kisulaga kerti
Hönnuðurinn Þórunn Árnadóttir setur kisulaga kerti á markað á næstunni. Innan í kertinu er
beinagrind svo mikil upplifun er að sjá það brenna niður. Kertanna er beðið með mikilli eftir-
væntingu og hefur hönnuðurinn vart undan að svara fyrirspurnum hvaðanæva að úr heiminum.
Kertið ber vöruheitið „Kisa“ bæði hér á landi og á mörkuðum erlendis.
Kisi er aldeilis búinn
að fá byr undir báða
vængi áður en hann er
einu sinni tilbúinn!
Kisukerti Þórunnar Árnadóttur fer brátt á markað. Kertin verða seld í forsölu á
vefnum Kickstarter til 22. nóvember. Ljósmynd Hari.
Kertið er sem sakleysislegur og krúttlegur kettlingur en umbreytist í beinagrind með hvassar tennur og eldglæringar í augum
þegar það brennur. Ljósmynd/Glamour Et Cetera.
Fix Töframassinn
Hreinsar, fægir og verndar samtímis
Húsasmiðjan - Byko - Fjarðarkaup - Tengi - Melabúðin - Verkfæralagerinn - Eyjatölvur
Miðstöðin Vestmannaeyjum - Pottar og prik Akureyri - Rafsjá Sauðárkróki - Áfangar Keflavík
Skipavík Stykkishólmi - Nesbakki Neskaupsstað - Vélaleiga Húsavíkur - Verslanir Rönning
Litabúðin Ólafsvík - Tengi - Byggt og búið - SR byggingavörur Siglufirði - Núpur Ísafirði
Hentar vel til þrifa á blöndunartækjum, vöskum, ryðfríu stáli, áli, kopar,
messing, gleri, plasti, lökkuðum flötum, kristal, keramiki, postulíni o.fl.
Svampur
fylgir með
- Fitu- og kýsilleysandi
- Húðvænt
- Náttúrulegt
- Mjög drjúgt
Óskaþrif Hólmavík - Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf.