Fréttatíminn - 15.11.2013, Page 64
64 bílar Helgin 15.-17. nóvember 2013
Bílar Chevrolet trax hönnun Yfirhönnuður Kia verðlaunaður
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUM HÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erum með órar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
Fallegur, fjórhjóladrifinn
„jepplingalingur“
v á, þetta er eins og geim-skip!“ sagði vinkona mín þegar hún settist inn í bíl
hjá mér í vikunni þegar ég var að
prófa nýjan Chevrolet Trax. Það
eru orð að sönnu, því hann er, líkt
og flestir nýir bílar nútildags, með
mjög framúrstefnulegt mælaborð
þar sem stór litaskjár fyrir miðju
er mest áberandi.
Chevrolet Trax er stór smábíll eða
lítill jepplingur (ætti því kannski að
kallast „jepplingalingur“), allt eftir
því hvernig á það er litið. Hann er
nettur og fallegur en er þeim kost-
um búinn að hann er álíka hár og
jepplingur og því situr maður hátt
og auðvelt er að stíga inn og út úr
honum. Hins vegar er hann lítill um
sig sem getur verið kostur fyrir þá
sem þurfa að fara mikið um í borg-
arumferðinni en þurfa ekki pláss
fyrir mörg börn í aftursætinu. Því
hann er ekki eins rúmur að innan
og sýnist að utan. Ég myndi mæla
með honum fyrir fólk með stálpuð
börn (eða barnlaust fólk eða fólk
með uppkomin börn) en leggja til að
barnafólkið tæki stærri týpu á borð
við Orlando eða Captiva, ætli það á
annað borð að velja Chevrolet, því
ég átti erfitt með að spenna börnin í
barnastólana sem eru reyndar óþol-
andi breiðir.
Traxinn er hlaðinn aukabúnaði
og mjög fallega hannaður, jafnt
að utan sem innan. Hann er nokk-
uð sparneytinn og búinn þeim
kostum að hann drepur á sér á
ljósum til þess að draga úr elds-
neytiseyðslu. Hann er með bakk-
myndavél og fjarlægðarskynjara
auk þess sem hann er með fínustu
hljómflutningsgræjur sem stýrt er
í gegnum stóran skjá sem tengja
má við síma í gegnum Bluetooth
svo hann virkar sem framlenging
á snjallsíma.
Mér fannst sannarlega kostur að
sitja svona hátt. Hins vegar hefði
ég persónulega viljað hafa meira
rými milli framsætanna, eða hand-
bremsuna staðsetta betur fyrir
miðju svo hún þvælist ekki fyrir
beltisfestingunni þegar maður
spennir bílbeltið með handbrems-
una á. Ég fann reyndar að það
vandist með tímanum.
Bíllinn sem ég prófaði var með
1,7 lítra dísilvél og beinskiptur og
reyndist vel í akstri. Það er þægi-
legt að taka u-beygjur á honum,
ekki síst vegna fjarlægðarskynj-
aranna sem láta vita ef bíllinn er
kominn of nálægt öðrum bíl eða
annarri fyrirstöðu. Hann er fjór-
hjóladrifinn sem hentar vel í ís-
lenska vetrinum.
Hann er mjög öruggur og hlaut
hæstu einkunn í öryggisprófi Euro
NCAP.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Chevrolet Trax er fallegur, lítill
jepplingur, sem hentar vel fólki
sem þarf ekki að troða barna-
stólum í aftursætið. Hann er
vel búinn aukabúnaði og mæla-
borðið er eins og á geimskipi.
Plúsar
Fallegur
Hár
Gott útsýni
Góð stærð á skotti
Ekki fyrir fólk með
barnastóla
Eiginleikar
Eldsneytisnotkun 4,9 lítrar*
Co2 losun (gr/km) 120
Hámarkshraði (km/klst) bsk
200
Verð frá 4.890.000 kr
*Eldsneytisnotkun lítrar/km í
blönduðum akstri
Aðrir bílar í sama flokki
Kia Sportage kr. 4.990.777
Mazda CX-5 kr. 5.490.000
Nissan Qashqai kr.
4.990.000
Ford Kuga kr. 5.790.000
Subaru Forester kr.
5.790.000
Chevrolet Trax er hlaðinn búnaði og fallega hannaður. Ljósmynd/Hari
Þýski bílahönnuðurinn Peter
Schreyer, yfirhönnuður hjá Kia
Motors, hlaut Gullna stýrið fyrir
afburða árangur í hönnun í bíla-
iðnaðinum. Schreyer hefur hannað
alla hina nýju línu bílaflota Kia Mot-
ors sem þykir ákaflega vel heppn-
uð. Það eru þýsku bílaritin Bild
am Sonntag og AutoBild sem veita
verðlaunin sem þykja mjög eftirsótt,
að því er fram kemur í tilkynningu
Öskju, umboðsaðila Kia.
„Ég er ákaflega stoltur að hljóta
þessi mikilvægu verðlaun. Þetta er
mikil viðurkenning fyrir mig pers-
ónulega en einnig hönnunarteymi
Kia um heim allan sem hafa skilað
frábærri vinnu,“ segir Schreyer en
hann er einungis annar hönnuður-
inn sem hlýtur Gullna stýrið frá
upphafi en Giogdetto Giugiaro hlaut
verðlaunin árið 1995.
„Kia Motors gaf mér hið einstaka
tækifæri að endurhanna heila línu
af vönduðum bílum frá grunni og
gefa þeim nýtt andlit og nýjan kar-
akter. Þetta hefur verið mikil en
skemmtileg áskorun og ég vil þakka
fyrir það mikla traust sem mér var
sýnt,“ segir Schreyer.
Schreyer var á síðasta ári ráðinn
sem einn af forstjórum Kia Motors
og fyrsti Evrópubúinn sem gegnir
starfinu. Schreyer hefur starfað
sem yfirhönnuður Kia undanfarin
átta ár og átt stærstan þátt í mikilli
velgengni Kia bíla á hönnunarsvið-
inu. Schreyer hefur, ásamt hönnun-
arteymi Kia, endurhannað bílaflota
suður-kóreska bílaframleiðandans
sem unnið hefur til fjölda hönnunar-
verðlauna um allan heim á undan-
förnum árum. Má þar nefna bílanna
Sportage, Optima, Rio, Picanto,
cee‘d og pro cee‘d. Síðasta verkefni
Schreyer sem yfirhönnuður fyrir-
tækisins var að hanna hinn nýja 7
manna fjölnotabíl Kia Carens sem
kom á markað á þessu ári.
Hann var áður hönnuður hjá
þýsku bílaframleiðendunum Audi
og Volkswagen og hannaði m.a.
endurnýjuðu VW Bjölluna og Audi
TT sportbílinn.
Peter Schreyer hlýtur Gullna stýrið
Peter Schreyer, yfirhönnuður og forstjóri Kia Motors.