Fréttatíminn - 15.11.2013, Side 74
Stúfur
hátíðaröl nr. 21
2,26%
33 cl. 393 kr.
Mikil taðlykt. Lyktin gefur
til kynna sterkari bjór.
Hann virkar mun stærri
en 2,5 prósent bjór.
Þetta er mjög sér-
stakur bjór, öðruvísi,
það er rétt að vara fólk
við því. Þetta er bjór til
að smakka, til að deila
flösku með öðrum.
Vonbrigði. Fyrsta klikk
Borgar-manna.
Carls Jul
5,6%
33 cl. 315 kr.
Jólalegur á litinn.
Ég finn reykt
í lyktinni og
karamellu. Það
er kjötbragð af
honum. Timbur.
Hann fær stig
fyrir að vera
jólalegur en það
vantar jafnvægi í
hann.
Gæðingur jólabjór
4,6%
33 cl. 398 kr.
Flottur litur. Nokkuð
jólalegur. Tyggjó og
suðrænir ávextir í
lykt. Bragðið ekki
í samræmi við
lyktina.
74 jólabjór Helgin 15.-17. nóvember 2013
Víking Jólabjór
5%
33 cl. 309 kr.
Þessi er mun kolsýrðari
en hinir. Hann er ögn
sætari en Viking-
bjórinn en annars
mjög „plain“. Hann
vantar lit eða meiri
karamellu til að vera
jólalegur.
Jólagull
5,2%
33 cl. 349 kr.
Það er mjög skrítin lykt af
þessum. Hún minnir mig
á rjúpu sem er búin að
hanga of lengi. Ég finn
lykt af osti. Annars er
þetta bara venjulegur
lagerbjór sem minnir
svolítið á Classic.
Þetta er þambbjór.
Hann er betri en í
fyrra.
Jólabjórinn kemur frá Árskógssandi
Jólahátíðin hefst hjá mörgum í dag þegar jólabjórinn kemur í sölu í Vínbúðirnar. Fjórða árið í röð smakka félagar í
Fágun, félagi áhugamanna um gerjun, jólabjórana hér í Fréttatímanum og meta hverjir standa upp úr. Alls voru 16
bjórar smakkaðir að þessu sinni og valdi dómnefndin fimm sem þótti rétt að verðlauna. JólaKaldi, sem bruggaður
er á Árskógssandi, þykir vera besti jólabjórinn í ár.
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
2013
Nánari upplýsingar á www.noatun.is
Jólahlaðborð
Nóatúns
Veislur frá
1990 kr. pr. mann
Besti jólaBjórinn Bestur fyrir fjöldann Bestur fyrir Bjórnördinn jólalegasti Bjórinn forvitnilegasti Bjórinn
JólaKaldi
5,4%
33 cl. 395 kr.
Þarna er
lykt! Maður
finnur lykt af
appelsínu og
karamellu.
Þetta er
vinaleg
ömmulykt.
Mjög jóla-
legur bjór. Rosa
gott jafnvægi í
honum. Kemur
virkilega á
óvart. Þarna er
Kalda-bragðið
en samt fara
þau út fyrir
rammann sinn.
Við getum mælt
með þessum.
Thule
Jólabjór
5,4%
50 cl. 379 kr.
Þessi kemur
verulega á
óvart. Það
er lítil lykt af
honum, smá
maís. Hann er
mjög jólalegur.
Hann er ekki
bara líkur
Tuborg jóla-
bjórnum í útliti,
hann bragðast
svipað og er
jafnvel betri ef
eitthvað er.
Giljagaur
Barleywine
nr. 14.1
10%
33 cl. 2.290 kr. (í
gjafaöskju með glasi)
Þetta er stór bjór.
Ég er ekki frá því að
mér hafi risið hold.
Þennan vil ég fá í
gjafaöskju í jólagjöf
frá konunni minni.
Þennan ætla ég að
drekka á aðfanga-
dagskvöld. Þetta er
flókinn bjór. Skemmti-
leg eikarþroskun.
Sá gamli var betri,
humlarnir eru búnir
að dofna síðan í fyrra.
Þetta er jólalegasti
nördabjórinn.
Einstök
Icelandic
Doppelbock
6,7%
33 cl. 429 kr.
Dökkur, flottur
bjór. Þurrkaðir
ávextir í lykt,
jólalykt. Krydd-
aður. Þægilega
mjúkur, þó
hann sé sterkur.
Jólalegur stíll.
Hlýr bjór. Góður
bjór.
Steðji Jólabjór
5,3%
33 cl. 379 kr.
Lakkríslyktin er ekki
eins sterk og í fyrra.
Hann er mun betri en
í fyrra. Tyrkisk Peber
í bragðinu, mentól
eða tannkrem í
eftirbragðinu. Steðji
fær prik fyrir þessa
tilraunastarfsemi
og jólabjórinn
heppnaðist betur nú
en í fyrra. Tilraunin
er réttu megin við
strikið. Það verður
virkilega gaman
að smakka hann á
næsta ári.
Tuborg Christmas
Brew
5,6%
33 cl. 359 kr.
Þessi stendur alltaf fyrir
sínu. Það ættu allir að
prófa hann. Hann er ívið
betri en í fyrra.
Egils Malt
Jólabjór
5,6%
33 cl. 369 kr.
Þetta er ekkert eins og
bjór, þetta er bara Malt.
Rosalega sætur.
Víking Jóla Bock
6,2%
33 cl. 409 kr.
Fallega rauður. Fullt af
brauði í lyktinni. Of mikil
beiskja fyrir Bock. Vín-
andabragð, áfengishiti.
Ekki besti Bock-inn sem
þeir hafa gert. Það er
samt karakter í honum.
Þetta er fínn bjór.
Mikkeller Hoppy
Lovin' Christmas
7,8%
33 cl. 881 kr.
Það eru engin jól í
þessum bjór, bara mikið
af humlum. Ekki jólabjór
fyrir fimmaura. Þetta er
mjög fínn IPA. Hann er
aðeins of sætur. Rosa
góður bjór.
To øl Snowball Saison
8%
33 cl. 865 kr.
Ekkert jólalegt við útlit eða
lykt en hann er virkilega
bragðgóður. Hann er líka
sagður vera óhefðbundinn
jólabjór. Ég væri til í að
kaupa þennan allan ársins
hring. Fínn með jólasushi-
inu eða skelfisknum.
Ölvisholt brugghús
Jólabjór
5%
33 cl. 439 kr.
Kryddaður bjór, mikill
negull. Maður hugsar
strax um Hérastubb
bakara þegar maður
opnar þennan. Minnir á
Unterberg snafs.
rúnar ingi Hannah
43 ára úrsmiður og starfsmaður Isavia.
Bjarki Þór Hauksson
24 ára nemi.
Hrafnkell freyr Magnússon
31 árs eigandi bruggverslunarinnar Brew.is.
viðar Hrafn steingrímsson
40 ára kennari.
Höskuldur daði Magnússon
teitur jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
FYRSTA
SÆTI