Fréttatíminn - 15.11.2013, Qupperneq 76
76 skák og bridge Helgin 15.-17. nóvember 2013
Skák Ný Skákbók á íSleNSku fyrir börN og byrjeNdur
Loksins, loksins!
f agnaðarefni: Í dag kemur út hjá Bókabeitunni bókin „Lærum að tefla“. Þetta er bók fyrir byrjendur
í skák sem útskýrir mannganginn á
einfaldan og þægilegan hátt með líflegum
skýringarmyndum og auðskiljanlegum
dæmum. Bókin var upphaflega gefin út
af barnabókaútgáfunni Usborne. Þetta
virta breska forlag var tilnefnt barna-
bókaútgefandi ársins árið 2012-2013 fyrir
einstaklega vandaðar bækur og áherslu á
fróðleik í bland við skemmtun.
Það var því ekki að ástæðulausu að
Bókabeitan leitaði til Usborne þegar leit
stóð yfir að vandaðri kennslubók í skák.
Hugmyndin kom reyndar frá ágætum
bóksala, einsog segir í tölvupósti til um-
sjónarmanns skákdálksins, og þótti það
góð að umsvifalaust var farið af stað að
finna réttu bókina. Gefum Bókabeitunni
orðið: „Það var reyndar þannig að við
höfðum samband við nokkra útgefendur
og blöðuðum gegnum ansi margar bækur
þar til við fundum þá réttu. Eftir á að
hyggja hefur sú staðreynd að enginn
starfsmanna Bókabeitunnar hefur mikla
þekkingu á skák, utan að kunna mann-
ganginn, líklega hjálpað við að finna bók
sem útskýrir málið á auðskiljanlegan
hátt.“
Fyrir börn og byrjendur
Bókin er aðgengileg fyrir byrjendur í skák
og hentar vel börnum. Hún skýrir mann-
ganginn vel en fjallar einnig um algengar
skákfléttur og hugsunarhátt sem gott er
að tileinka sér þegar maður teflir. Bókin er
skreytt líflegum myndum af taflmönnum
og teikningum til skýringa og þótt verið sé
að kenna tungumál skákarinnar þá er það
gert á léttan og auðskilinn hátt.
Lærum að tefla er skemmtileg og að-
gengileg handbók fyrir skákkennslu. Upp-
setning er afar skýr þannig að þeir sem
kunna að tefla geta notað bókina til kennslu
og börn geta einnig skoðað hana sjálf og
kennt þannig sjálfum sér. Hér og þar um
bókina eru þrautir sem tengjast efninu og
lausnirnar aftast.
Full ástæða er til að fagna frumkvæði
Bókabeitunnar. Skákbækur hafa verið
sjaldséðir gripir á Íslandi, síðan hinn mikli
skákfrömuður Jóhann Þórir Jónsson lést.
Hann gaf í áratugi út tímaritið Skák, og
puðraði út skákbókmenntum fyrir háa og
lága. Jóhann Þórir var ein allra merkileg-
asta persóna íslenskrar skáksögu, og ein-
staklega gleðilegt að merki hans skuli nú
hafið á loft á nýjan leik.
Og það er mikil þörf fyrir þessa nýju bók.
Þúsundir ungra – og eldri – skákunnenda
hafa beðið í ofvæni eftir bók sem útskýrir
grundvallarlögmál skákíþróttarinnar.
Skák er nú kennd í tugum grunnskóla í
Reykjavík, þökk sé Skákakademíunni, og
fjölmörgum skólum utan höfuðborgar-
svæðisins. Nýja bókin nýtist ekki einasta
byrjendum, heldur jafnframt kennurum,
foreldrum, öfum og ömmum, og öllum
þeim sem leiðbeina byrjendum um fyrstu
stig skákarinnar. Við í þessum dálki til-
nefnum „Lærum að tefla“ sem eina af
bókum ársins!
Spennan magnast í Chennai
Magnus Carlsen og Vishy Anand hafa nú
teflt fjórar skákir í heimsmeistaraeinvíg-
inu á Indlandi. Þeim hefur öllum lokið
með jafntefli, en spennan magnast með
hverri skák. Anand heimsmeistari mætir
greinilega vel undirbúinn til leiks gegn
norska undrabarninu, og ætlar ekki að
láta krúnuna af hendi án baráttu. Fimmta
skák einvígisins verður tefld í dag,
föstudag, og hér skal því spáð að hrein
úrslit fáist í fyrsta sinn. Allir veðbankar
heims spá Carlsen sigri í einvíginu – og að
hann verði þar með fyrsti heimsmeistari
Norðurlanda í skák – en enginn skyldi af-
skrifa Anand; hann er einn af risum skák-
sögunnar, hokinn af reynslu og brimandi
af snilld. Hægt er að fylgjast með á chess-
bomb.com og fréttum á skak.is. Góða
skákhelgi!
f jöldi Íslendinga hefur undanfarin ár tekið þátt í bridgehátíð á hinni fallegu eyju Madeira sem er fyrir norðan
Kanaríeyjar fyrir utan vesturströnd Afríku.
Keppnisform er þannig að byrjað er á upp-
hitunartvímenningi, síðan kemur þriggja
daga tvímenningur og síðan þriggja daga
sveitakeppni. Fjölmargir sterkir spilarar,
bæði íslenskir og erlendir hafa verið þátttak-
endur þarna um árabil og fjarri því auðvelt
að hafa sigur í einhverri þessara keppna.
Á Madeira bridgehátíðinni, sem lauk um
síðustu helgi, hafði sveit sem hét Stone
Cutters sigur í sveitakeppninni að þessu
sinni. Hún var skipuð Íslendingunum Sveini
Rúnari Eiríkssyni og Þresti Ingimarssyni
auk Þjóðverjanna Jascha Garre og Matthias
Schueller. Sveit sem bar nafnið Don Julio
hafnaði í fjórða sæti en hún var skipuð Júl-
íusi Sigurjónssyni og Rúnari Einarssyni auk
hins sænska Peter Fredins og Gary Gott-
lieb. Lokastaða 5 efstu sveita varð þannig:
1. Stone Cutters .................................................. 161,33
2. Sigdonneman ................................................. 156,95
3. Palma .............................................................. 156,10
4. Don Julio......................................................... 149,97
5. Buchlev ........................................................... 148,77
Sveit Stone Cutters mætti enskri sveit
(Stanford) í 6. umferð og þar hafði sveit
Stone Cutters betur. Á borðinu þar sem
Sveinn Rúnar og Þröstur sátu NS vakti
Sveinn Rúnar í annarri hönd á einum tígli
í norður, austur kom inn á einu hjarta,
Þröstur (suður) sagði tvö hjörtu til að sýna
stuðning í tígli og áskorun eða betri spil.
Vestur doblaði (lofaði ekki endilega háspili
í hjarta, heldur fyrst og fremst stuðningi við
hjartalitinn. Sveinn sýndi lauflit sinn með 3
laufum, Þröstur krafði aftur með 3 hjörtum
og Sveinn sagði 4 lauf sem lofaði 5+ tíglum
og 5 laufum. Þröstur valdi 4 hjörtu til að
krefja spilið og Sveinn bauð upp á 5 tígla.
Metnaður Þrastar var meiri svo hann sagði
5 grönd og Sveinn endaði sagnir með því
að segja 6 tígla. Allt spilið var svona, Vestur
gjafari og allir á hættu:
Sveinn fékk út hjartaþrist frá austri og
Sveinn varð að finna niðurkast fyrir tapslag
í spaða. Hann ákvað að treysta ekki á hjarta-
svíningu og hafði það sem aukamöguleika
að hann gæti gert sér mat úr laufinu. Hann
drap á hjartaás og spilaði laufás og aftur
laufi sem vestur trompaði. En þessi vörn
gerði Sveini mögulegt að standa slemm-
una. Vestur skipti yfir í spaða sem Sveinn
drap á ás í blindum. Hann tók tvisvar tígul,
trompaði hjarta heim, trompaði lauf og
trompaði aftur hjarta og hjartakóngur vest-
urs féll. Enn voru tvö tromp í blindum, svo
Sveinn Rúnar gat trompað tvö síðustu laufin
og hent spaðatapslag í hjartadrottningu.
Á hinu borðinu opnaði vestur á veikum
tveimur spöðum og NS sögðu sig einnig upp
í tígulslemmu. Spaðaútspil í byrjun neyddi
sagnhafa til að treysta á hjartasvíningu sem
gekk ekki. Stone Cutters græddi 17 impa á
þessu spili.
Parasveitakeppni í nóvember 2013
Íslandsmótið í parasveitakeppni verður
haldið helgina 16-17.nóvember. Hægt er að
skrá sveitir á síðu Bridgesambands Íslands
(bridge.is ) og í síma 587 9360. Íslands-
meistarar 2012 er sveit PwC.
Jón og Sigurbjörn í forystu í BR
Þriðjudagskvöldið 5. nóvember hófst
þriggja kvölda butler tvímenningur hjá
Bridgefélagi Reykjavíkur sem ber heitið
Sushi Samba tvímenningur. Það kemur
ekki á óvart að spilafélagarnir Jón Baldurs-
son og Sigurbjörn Haraldsson skoruðu
mest á fyrsta kvöldinu. Staða efstu para er
þannig:
1. Sigurbjörn Haraldsson – Jón Baldursson ................. 59,0
2. Friðjón Þórhallsson – Hrólfur Hjaltason ................. 51,1
3. Kjartan Ásmundsson – Stefán Jóhannsson .............. 46,0
4. Björn Eysteinsson – Guðmundur Sv. Hermannsson .. 41,0
5. Helgi Sigurðsson – Haukur Ingason ........................ 31,0
bridge SveiNN rúNar eiríkSSoN og ÞröStur iNgimarSSoN efStir
Sigur Íslendinga á Madeira
Fyrsta bókin í divergent þríleiknum er komin út
í þýðingu Magneu J. Matthíasdóttur sem þýddi Hungurleikana
97% af 420.000 notendum
á Goodreads líkar Afbrigði Divergent
... þarf að segja eitthvað meira?
www.bjortutgafa.is Sími 588 6609
4.4 stjörnur af 5 mögulegum skv. notendum Goodreads
„This book is simply a must read“ - The Guardian
Mest selda rafbók Harper Collins frá upphafi
FRUMSÝND Í MARS 2014
KVIKMYNDIN
afbrigðidiver
ge
nt
BÓKAÚTGÁFA
♠ G9
♥ 2
♦ ÁKD52
♣ D8642
♠ Á6
♥ ÁD65
♦ G9864
♣ Á5
♠ D108752
♥ K94
♦ 1073
♣ 7
♠ K43
♥ G10873
♦ -
♣ KG1093
N
S
V A
Sveinn Rúnar Eiríksson og Þröstur Ingimarsson
náðu fyrsta sæti í sveitakeppni á bridgehátíð á
eyjunni Madeira undan vesturströnd Afríku.
Lærum að tefla. Kærkomin bók fyrir börn og
byrjendur á öllum aldri.
Lærum að tefla er skemmtileg
og aðgengileg handbók fyrir
skákkennslu.