Fréttatíminn - 27.12.2013, Qupperneq 4
Laugavegi 178
Sími 551-3366
www.misty.is
OPIÐ:
Mán. - fös. 10 - 18,
Laugardaga 10 - 14
ÁRAMÓTADRESSIÐ !
Teg Deco - saumlaus,
létt fylltur og ottur í
D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 9.980,-
buxurnar við
á kr. 3.990,-
Fótboltastelpur mæta handboltastelpum
Ú tlendingastofnun hefur fyrir hönd innanríkis-ráðuneytisins undirritað samning við Reykja-víkurborg um þjónustu við hælisleitendur
meðan mál þeirra eru til meðferðar hjá stjórnvöldum.
Jón Gnarr borgarstjóri og Kristín Völundardóttir, for-
stjóri Útlendingastofnunar, undirrituðu samninginn á
dögunum. Hann felur í sér móttöku á 50 hælisleitend-
um til Reykjavíkur en í honum er þar að auki tilgreint
að auk húsnæðis skuli þjónustan vera fólgin í fram-
færslu, heilbrigðisþjónustu, túlkaþjónustu, ráðgjöf og
tómstundum.
Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavík-
urborgar, fagnar samningum en hún segir ferlið hafa
verið í farvatninu síðan í júní 2011 þegar Jón Gnarr
borgarstjóri óskaði eftir því að gera samning við innan-
ríkisráðuneytið. „Ég hef síðan verið í samningum við
ráðuneytið, kannski ekki mjög reglulega, en síðan þá.
Svo var tekin ákvörðun í Reykjanesbæ síðastliðið vor
um að hætta að taka við svona mörgum þar sem aukn-
ingin hafði verið svo mikil. Þá fór ráðuneytið aftur af
stað og við höfum verið að vinna í að gera sambæri-
legan samning og Reykjanesbær hefur verið með.“
Útlendingastofnun ber ábyrgð á að framfærsla
hælisleitenda sé tryggð og gerði hún samning við
félagsþjónustu Reykjanesbæjar árið 2004 um að annast
umönnun þeirra meðan mál þeirra væru til meðferðar
hjá stjórnvöldum. Hingað til hafa því allir beðið með-
ferðar í Reykjanesbæ sem hefur gert samning við tvö
gistiheimili sem sjá fólkinu fyrir húsnæði og fæði auk
þess að vera með nokkrar íbúðir á leigu. Nú þegar
eru 40 hælisleitendur í Reykjavík á vegum Reykjanes-
bæjar en Anna segir Reykjanesbæ hafa leigt húsnæði í
bæði Reykjavík og Kópavogi því bærinn hafi ekki haft
bolmagn til að hýsa alla sem koma til landsins.
„Þannig að frá og með áramótum á að taka við
50 manns. En það eru nú þegar 40 hælisleitendur í
Reykjavík sem eru í húsnæði sem Reykjanesbær leigir
hér í Reykjavík en öll þjónustan kemur þaðan. Það
liggur í hlutarins eðli að við byrjum á því að taka við
þeim, við viljum ekki að menn séu að þjónusta yfir
sveitarfélagamörk en Reykjanesbær hefur bara hrein-
lega ekki getað hýst alla. Við viljum að sjálfsögðu sjá
um þessa 40 sem eru hér og svo bætum við 10 manns
við á nýju ári.“ Anna segir hugmyndina ekki vera þá
að bjóða upp á húsaskjól á einum stað. „Nei, það er
ekki meiningin að hýsa marga á einum stað. Það munu
vera leigðar hér nokkrar íbúðir og fólk kemur til með
að deila þeim og þessar íbúðir verða leigðar á frjálsum
markaði.
Það er þannig í dag að þeir sem eru hér núna þeir
dvelja í íbúðum á nokkrum svæðum í höfuðborginni.
Venjan er sú að nokkrir eru saman í íbúð og það er
reynt að velja fólk saman eftir tungumáli. Fyrsta árið
munum við aðeins taka við 18 ára og eldri, svona með-
an við áttum okkur á því hvernig þetta gengur fyrir
sig. Þetta er ólíkt öðrum verkefnum sem velferðarsvið
hefur verið að fást við. Þetta eru reyndar í flestum til-
fellum karlar en ekki margar fjölskyldur. Umfangið
verður að sjálfsögðu meira þegar börn eru líka, svo við
byrjum á þessu.“ Anna telur eðlilegt að Reykjavík taki
við hluta hælisleitenda og vonast til að umsóknarferlið
verði stytt. „Það er ekkert nema eðlilegt að höfuð-
borgin taki hluta fólksins því aukningin er mikil. Það
eru milli 150 og 200 einstaklingar sem eru í þessum
sporum. Það eru auðvitað sumir sem dvelja skemur en
aðrir og Útlendingastofnun er að reyna að hraða þessu
ferli en umsóknarferlið er að meðaltali 11 mánuðir.
Þetta er mjög langur tími og það er unnið að því að
stytta hann niður í 3 til 6 mánuði.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Félagsþjónusta nýr samningur ÚtlendingastoFnunar og borgarinnar
Reykjavík tekur við 50
nýjum hælisleitendum
Borgarstjóri og forstjóri Útlendingastofnunar hafa gengið frá samningi um að Reykjavíkurborg
taki á móti 50 hælisleitendum. Unnið að því að stytta umsóknarferlið niður í þrjá til sex mánuði.
Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, og Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, undirrituðu samninginn á dögunum.
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Hríð og skaFrenningur nV og
n-til eFtir miðjan daginn.
HöFuðborgarsVæðið: LéttsKýJað,
en smáéL síðdeGis.
na gjóla. bjart og Frost syðra,
en él um landið n-Vert.
HöFuðborgarsVæðið: BJaRt, fRemUR
hæGUR VindUR oG fRost.
roFar til n- og a-lands. snjókoma
syðra og Versnandi um kVöldið.
HöFuðborgarsVæðið: LíKLeGa snJóR
Um miðJan daGinn, en sLydda Um síðiR.
rólegra veður í bili
með bakka úr norðri, hríð og stormi norð-
vestantil eftir miðjan dag á morgun, má
segja að þessum óveðurskafla sem hófst
á Þorláksmessu sé lokið. á laugardag
lítur út fyrir fremur hægan vind á landinu.
Vissulega enn él norðantil hér
og þar, en sunnantil verður létt-
skýjað og nokkurt frost inn til
landsins. eins hæglætisveður
og frost norðan- og austan-
lands framan af sunnudeg-
inum. Þá versnar syðst með
snjókomu og síðar hvössum
vindi, vægri hláku og slyddu.
-1
-3 -4
-1
-4
-4
-4 -4 -3
-8
-4
-5 -9 -10
-5
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Kvennalandsliðin í knattspyrnu og handbolta
munu etja kappi í góðgerðarleik í Vodafonehöll-
inni í dag, föstudag, klukkan 17.30. stelpurnar
keppa bæði í handbolta og fótbolta. allur
ágóðinn af leiknum rennur til Barnaspítala
hringsins. miðaverð er 500 krónur en fólki er
frjálst að borga meira og rennur upphæðin að
sjálfsögðu til Barnaspítalans.
margrét Lára Viðarsdóttir, fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu er spennt fyrir
leiknum. „Við stelpurnar í kvennalandsliðinu í
fótbolta höfum átt okkur þann draum í langan
tíma að spila við kvennalandsliðið í handbolta
bæði í handbolta og fótbolta. Við teljum okkur rosalega góðar í handbolta og viljum
því auðvitað skora á þær bestu. Við ákváðum því að slá tvær flugur í einu höggi og at-
huga hvort almenningur væri ekki til í að taka þátt í þessu með okkur og láta gott af
okkur leiða á jólunum með því að styrkja Barnaspítala hringsins. Við vonum að sem
flestir séi sér fært að mæta á þennan stórleik og styðja auðvitað rétt lið til sigurs.“
Vetrarhæfileikarnir
haldnir í fyrsta sinn
Réttindavakt velferðarráðuneytisins ásamt
Geðhjálp, Landssamtökunum Þroskahjálp
og Öryrkjabandalagi íslands standa fyrir
ímyndarátaki sem ætlað er að auka vitund
almennings um styrkleika fatlaðs fólks. átak-
inu verður hleypt af stokkunum í anddyri
Borgarleikhússins í dag, föstudag, klukkan
11. teknar hafa verið upp auglýsingar þar
sem fatlaðir einstaklingar sýna styrk sinn
og sjónum er beint að þeim hæfileikum sem
fólk býr almennt yfir. Verða auglýsingarnar
sýndar í sjónvarpi og netmiðlum. Þá verða
Vetrarhæfileikarnir haldnir í fyrsta skipti
en þar munu hæfileikaríkir einstaklingar,
fatlaðir sem ófatlaðir, sýna hæfileika sína
og verða gefnar einkunnir með nýstárlegum
hætti. meðal þeirra sem koma fram eru
mamikó dís Ragnarsdóttir tónlistarkona,
Bergvin oddsson uppistandari, steinar
Baldursson tónlistarmaður og RWs vegg-
listahópurinn. dómnefnd skipa eygló
harðardóttir, steinunn ása Þorvaldsdóttir og
anna svava Knútsdóttir.
anna svava Knútsdóttir leikkona er í
dómnefnd á Vetrarhæfileikunum. Ljós-
mynd/Hari
4 fréttir helgin 27.-29. desember 2013