Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 65
Föstudaginn 27. desember kl 15:00
Aðgangseyrir fyrir fullorðna kr 1.000,-
Frítt fyrir börn.
Solla kynntist Ella fyrst á þessum árum þó
þau hafi ekki orðið par strax og segist hún
hafa séð gríðarlegan mun á honum eftir að
hann fór að vinna í andlegu hliðinni. „Það
urðu miklar breytingar og ég sá hann bók-
staflega byrja að blómstra,“ segir Solla og
viðurkennir að þá hafi hún fyrst orðið skotin
í honum.
Sjálfur segist Elli varla þekkja þann mann
sem hann var áður og ekki ná neinni teng-
ingu við það líf sem hann lifði þá. „Í dag lifi
ég allt öðru lífi og er tilbúinn að taka ábyrgð
á öllu sem gerist í mínu lífi, líka því sem mér
finnst ég ekki eiga skilið en gerist samt sem
áður. Við getum tekið afleiðingar hrunsins
sem dæmi en það var mikið undir hjá okkur
og við töpuðum miklu. Við tókum bara
höggið og fórum svo af stað aftur en biðum
aldrei eftir að ríkið kæmi með einhverjar
lausnir. Við bara tókum stöðuna þá og unnum
út frá henni. Ég tengi það sterklega við edrú-
mennskuna – að vera tilbúinn að taka ábyrgð
á lífinu eins og það er en ekki eins og ég vil
að það sé.“
Litla-Hrauns hringekjan
Þegar Elli var í neyslu taldi hann sjálfum
sér trú um að hún væri tiltölulega lítil. Eftir
því sem árin líða segist hann sjá betur og
betur hvað hann var í mikilli neyslu. „Það fléttast ofan
af afneituninni með hverju árinu. Ég var heppinn að
lenda ekki á Litla-Hrauns hringekjunni,“ segir Elli og
bætir við til útskýringar að algengt sé að menn í sömu
stöðu og hann var í þá fremji glæpi, fari í fangelsi og
kynnist þar fleiri glæpamönnum og þeir ali hver annan
upp og haldi áfram saman á glæpabrautinni. „Það er um
70 prósent endurkomutíðni á Litla-Hraun. Í dag er ég
óendanlega þakklátur fyrir að hafa ekki náð þangað inn.
Ég var mjög nálægt því og þetta var bara tímaspursmál.
Sem betur fer hætti ég áður. Það var gríðarlega mikið
gæfuspor að hafa stigið út úr neyslunni áður.“
Hráfæðis heimshornaflakk
Í ár og í fyrra var Solla valin besti hráfæðiskokkur
í heimi og ferðast því töluvert til Bandaríkjanna þar
sem hún er með sýnikennslu og fræðslu. Í þeim ferð-
um hafa þau hjónin kynnst mikið af fólki sem neytir
eingöngu hollustumataræðis og drekkur þess vegna
ekki áfengi. „Þetta fólk hugsar gríðarlega mikið um
næringuna og drekkur ekki áfengi því það er svo
óhollt. Það bústar sig frekar upp af rosa næringar-
ríkum og stundum skrítnum hráefnum. Þetta eru
stórskemmtilegir nördar sem finna til dæmis eitthvað
rosa heilsusamlegt duft í Amazon-frumskóginum sem
gerir mann skýrari og skemmtilegri. Þetta er svona
harðkjarnalið og ákveður að sleppa áfengi vegna lífs-
stílsins en ekki alkóhólisma,“ segir Solla.
Þau kunna vel við að í partíum í Bandaríkjunum
með þessum hópi fólks sé enginn að spá í því hvort
þau drekki áfengi eða ekki. „Fólki finnst bara eðlilegt
að við látum áfengi vera af því við ástundum þennan
lífsstíl og þetta þykir bara sjálfsagt. Fólk í þessum
hópi er búið að átta sig á því að áfengi skaðar heilsuna
og ýtir undir ýmsa sjúkdóma. Við föllum eins og flís
við rass þarna. Það er virkilega gaman að hafa dregist
inn í svona skemmtilegan félagsskap vegna þess heil-
brigða lífsstíls sem við ástundum í okkar vinnu,“ segir
Solla.
Tæland næsta haust
Elli og Solla eru alltaf með mörg járn í eldinum og
ætla næsta haust að bjóða upp á ferð til Tælands á
vegum Bændaferða. Í ferðunum geta ferðalangar
valið um að vera í detox-heilsumeðferð og borða
einungis næringarríka þeytinga eða að einbeita sér
að heilsufæði og nuddi. Þeir sem það vilja geta svo
leyft sér steik og slökun á hverjum degi, allt eftir
því hvað hentar hverjum og einum. „Það góða við
Tæland er að allur matur er svo ferskur þar og því
auðvelt að halda sér í hollustunni. Hitinn dregur úr
manni sykurlöngunina og tælenskur matur kallar að
sama skapi ekki eins mikið á sykur,“ segir Elli. Þau
eru nýkomin frá Tælandi þar sem Elli var í þríþraut-
aræfingabúðum og dvaldi á hóteli sem sérhæfir sig í
þríþrautarþjálfun og Solla kíkti í heimsókn í lok dval-
arinnar. Solla er þó ekki á því að skella sér í þríþraut,
heldur ætlar hún að halda sig við það að standa á
haus. „Ég finn að maður stirðnar með aldrinum en
ég var mikið íþróttum þegar ég var ung. Það hjálpar
mér mikið að fara í jóga til að halda liðleikanum og
orkunni. Ég hef aðeins verið að daðra við ræktina en
finn að mér líður best í jóga.“
Rólegheit í Kjós
Solla og Elli vinna mikið og þykir gott að fara úr
borginni um helgar og dvelja þá í húsinu sínu í Kjós.
Þar hefur myndast skemmtilegt samfélag og ríkir
þar góður andi meðal nágrannanna. Elli segir þau
fá mikið út úr því að slaka á í sveitinni. Þau vinni
stundum lítillega í tölvunni en taki það annars
rólega. „Það er voða stutt að fara þangað og svolítið
eins og að vera í úthverfi. Við bjuggum einu sinni í
Grafarholti og þetta er ekkert mikið lengra í burtu
frá miðborginni.“
Það urðu
miklar
breytingar
og ég sá
hann bók-
staflega
byrja að
blómstra.
Það er um 70 prósent endurkomutíðni á Litla-Hraun. Í dag er
ég óendanlega þakklátur fyrir að hafa ekki náð þangað inn.
Gló veitingastaðirnir eru nú
orðnir þrír talsins og telja
Solla og Elli mikla vakningu
varðandi hollustu á Íslandi
þessa dagana og segja
hörðustu bjúgnavígin vera
að falla. Þau ferðast mikið
til Bandaríkjanna þar sem
þau hafa kynnst skemmti-
legum hópi fólks sem neytir
eingöngu hollustu og sleppir
því alfarið áfengi. „Við
föllum eins og flís við rass
þarna.“ Ljósmynd/Hari
9 2013 DESEMBER