Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 32
Stjörnurnar
á himni
ársins 2013
Fólk skein misskært á árinu sem er að líða og eins og vera ber
skyggja alltaf einhverjir á aðra á stjörnuhimninum. Leikarinn
Ólafur Darri Ólafsson, hljómsveitin Of Monsters and Men,
Baltasar Kormákur, Jón Gnarr og forseti vor, Ólafur Ragnar
Grímsson slepptu ekki taki sínu á himnafestingunni og eru orðin
sannkallaðar fastastjörnur í íslenska stjörnukerfinu þar sem
er þó alltaf pláss fyrir nýstirni eins og til dæmis Þorstein B.
Friðriksson hjá Plain Vanilla og hina spretthörðu Anítu Hinriks-
dóttur sem hljóp sig inn í hug og hjörtu landsmanna á árinu.
Bragi
Valdimar
og Brynja
Þorgeirsdóttir
Baggalúturinn Bragi Valdimar
Skúlason og sjónvarpskonan Brynja
Þorgeirsdóttir slógu í gegn undir lok
ársins með sjónvarpsþættinum
Orðbragð. Fólk heldur vart vatni
af hrifningu yfir skemmtilegri
og líflegri nálgun þeirra á
okkar ástkæra ylhýra og
íslenskan er skyndilega orðin
mál málanna á ný.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Forsætisráðherrann ungi
kom, sá og sigraði á árinu með
stórkarlalegum loforðum í
kosningabaráttunni
um að hamfletta
hrægamma íslenskri
millistétt til heilla. Þetta
skilaði sér í stórum
kosningasigri Fram-
sóknarflokksins og
fleytti formanninum í for-
sætisráðuneytið. Fylgið dalaði
á seinni hluta ársins þegar lítið
fór fyrir efndum stóra loforðsins en
Sigmundur Davíð bjargaði í horn með
veglegri glærusýningu í Hörpu þar sem
hann kynnti áform um skuldaniðurfell-
ingar. Engum gömmum var þó lógað við
það tækifæri.
Lars Lagerbäck
Löngu niðurlægingartímabili í sögu
íslenska karlalandsliðsins í
knattspyrnu lauk eftir að sá
sænski Lars Lagerbäck tók við
þjálfun liðsins. Liðið
náði þeim sögulega
áfanga að komast í
umspil um keppnisrétt á
HM í Brasilíu 2014. Þjóðin
stóð á öndinni yfir
beinum útsendingum
frá umspilsleikjunum við Króatana.
Eftir 0 – 0 jafntefli hér heima varð
spennan nánast óbærileg en Króat-
arnir lögðu strákana okkar á heimavelli
sínum. Draumurinn var því úti og þrátt
fyrir ramakvein gat fólk ekki annað en
glaðst yfir þessum ótrúlega árangri.
Lars er orðinn einn af helstu ættleiddu
sonum landsins og hefur verið ráðinn til
þess að stýra liðinu tvö ár til viðbótar.
Þorstein B.
Friðriksson
Eftir alls kyns mót-
læti, skakkaföll
og vantrú íslenskra
fjárfesta lagði Þor-
steinn og Plain Vanilla
heiminn að fótum sér með
spurningaleikn-
um QuizUp sem
hefur ratað í ótal snjallsíma um
allan heim.
Steinar
Baldursson
Tónlistarmaðurinn
Steinar Baldursson, eða
Steinar eins og hann kallar
sig. Átján ára drengur úr
Grafarvoginum sem
kom sá og sigraði
með laginu Up.
Benedikt
Erlingsson
Benedikt þreytti frumraun
sína sem kvikmyndaleik-
stjóri með Hross í oss.
Myndin hefur gert
mikla lukku á kvik-
myndahátíðum erlendis
og á kvikmyndahá-
tíðinni í San
Sebastian á Spáni
var Benedikt verðlaunaður
sem besti nýi leikstjórinn.
Ragnar Kjartansson
Listamaðurinn fjölhæfi sýndi
úrtöluliðinu, sem talar
um listafólk sem latté-
lepjandi landeyður,
heldur betur fingurinn
þegar hann seldi öll
sex eintökin af verki
sínu The Vistiors fyrir hátt
í 90 milljónir króna.
Aníta Hinriksdóttir
Aníta Hinriksdóttir varð í heimsmeistari
í 800 metra hlaupi á heims-
meistaramóti 17 ára og yngri
á árinu og er fyrsti Íslendingur-
inn sem verður heimsmeistari í
frjálsum íþróttum. Aníta hefur að
vonum vakið athygli og aðdáun
víða fyrir afrek sín á hlaupa-
brautinni og er rétt að byrja.
Kaleo
Strákarnir og
Mosfellingarnir
Jökull Júlíusson,
Daníel Ægir Kristjáns-
son, Davíð Antonsson
og Rubin Pollock,
í hljómsveitinni Kaleo tóku
tónlistarsumarið með trompi
með sinni útgáfu af hinu fornfræga
dægurlagi Vor í Vaglaskógi. Vinsæld-
unum fylgdu þeir svo eftir með sinni
fyrstu breiðskífu.
Ólafur Þór
Hauksson
Saksóknarinn
sérstaki, Ólafur
Þór, hefur átt
undir högg að sækja.
Fjárframlög til
embættis hans
hafa verið skert og reiður
almenningur hefur amast við
því að lítill árangur hafi sést af
störfum hans. Almenningsálitið snar-
snerist honum í vil undir lok ársins
þegar hann fékk Kaupþingsmennina
fyrrverandi, Hreiðar Má Sigurðsson,
Sigurð Einarsson, Magnús Guðmunds-
son og Ólaf Ólafsson, dæmda fyrir
markaðsmisnotkun og umboðssvik í
Al-Thani málinu.
Gísli Marteinn
Baldursson
Gísli Marteinn hefur
vaxið mjög af störfum
sínum í borgar-
stjórn. Svo mjög
að þegar hann ákvað að
hætta, þrátt fyrir
almennar vin-
sældir, lýstu meira að
segja pólitískir andstæðingar hans
því yfir að þeir sæu eftir honum.
Gísli er nú kominn aftur á sinn gamla
stað hjá RÚV og stýrir morgunþætti
á sunnudögum. Ódeigur og kátur að
vanda.
Birgitta
Jónsdóttir
Píratinn Birgitta skipaði veiga-
mikinn sess í Hollywood-
myndinni The Fifth Estate
sem fjallar um stofnun WikiLeaks.
Hún gaf ráð við handritsgerðina og
persóna hennar fékk veigamikinn
sess í sögunni sem
Julian Assagne
segir að sé þvæla.
Myndin floppaði
en Birgitta okkar
hefur óneitanlega
náð lengst íslenskra þingmanna í
kvikmyndabransanum.
Guðni Ágústsson
Gæslumaður íslenska rjómans situr
á friðarstóli eftir að
hann hætti í stjórnmál-
um. Hann gaf út bókina
Guðni – Léttur í lund fyrir
jólin og skaust á topp
einhverra sölulista
með gamansögum
sínum. Ráðherrarnir fyrr-
verandi, Steingrímur J. Sigfús-
son og Össur Skarphéðins- son,
komust ekki með tærnar þar sem
Guðni var með hælanna með pólitískum
uppgjörsbókum sínum. Og eins og
Guðni sjálfur segir, þá skildi hann þá
eftir í rykmekki þegar hann spólaði upp
sölulistana.
Darri Ingólfsson
Vegur Darra Ingólfs-
sonar leikara fer heldur betur
vaxandi en á árinu
lék hann í síðustu
þáttaröðinni um
raðmorðingjann Dexter.
Skilaði þar snældubil-
uðum morðingja og
erkifjanda Dexters
í þessari umferð með miklum
stæl.
Jón Gnarr
Borgarstjórinn hélt áfram að heilla
alþjóð og ná athygli út fyrir landsteinana
með ákafri og einlægri mannréttinda-
baráttu sinni. Hann ákvað svo að hætta
á toppnum og uppskar mikið lof fyrir
að halda sínu striki og láta ekki
valdið spilla sér. Sjálfsagt er það
einsdæmi að borgarstjóri
ákveði að gefa ekki
kost á sér
áfram þegar
fylgi flokks
hans mælist í
sögulegu
há-
marki.
Framhald á næstu opnu
32 stjörnukort Helgin 27.-29. desember 2013