Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 22

Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 22
SKÓLANEMAR: 25% AFSLÁTTUR GEGN FRAMVÍSUN SKÍRTEINIS! MEÐ STUÐNINGI REYKJAVÍKURBORGAR & KVIKMYNDAMIÐSTÖÐVAR ÍSLANDS - MIÐASALA: 412 7711 MOOD INDIGO (12) SÝNINGARTÍMAR Á MIDI.IS GREMLINS (10) SUN: 20.00 Janúar Við unnum Icesave Ísland vann fullan sigur þegar EFTA-dómstóllinn felldi dóm í Icesave-deilunni við Breta og Hollendinga eftir deilur sem staðið höfðu frá hruni. Loksins þegar dómur féll var hafnað öllum kröfum um að gera íslenska ríkið ábyrgt fyrir því að Trygg- ingasjóður innistæðna gæti greitt öllum eigendum Icesave-reikninga ákveðna upphæð hafnað. Niður- staðan breytir þó ekki því að eign- ir þrotabús Landsbankans munu gera meira en að greiða upp allan höfuðstól skuldarinnar. Febrúar Árni Páll burstaði Guðbjart Árni Páll Árnason tók við for- mennsku í Samfylkingunni á landsfundi í febrúar af Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sem ákvað að hætta í stjórnmálum eftir kjörtímabilið. Árni Páll fékk 62,2% atkvæða en Guðbjartur Hannesson 37,8% í kosningu meðal allra skráðra flokksmanna. Katrín Júlíusdóttir bar svo sigurorð af Oddnýju G. Harðardóttur í kosn- ingu um embætti varaformanns en Dagur B. Eggertsson sóttist ekki eftir endurkjöri. Katrín tekur við af Steingrími Segja má að kynslóðaskiptin í ís- lenskum stjórnmálum hafi verið fullkomnuð þegar Katrín Jakobs- dóttir tók við formennsku í Vinstri grænum af Steingrími J. Sigfús- syni á landsfundi í febrúar. Stein- grímur tilkynnti skömmu fyrir fundinn að hann ætlaði að stíga til hliðar sem formaður en halda áfram þingmennsku. Mars Marklausar játningar í Guðmundar- og Geir- finnsmálum Það er ekkert að marka þær játningar sem sakborningar í Guðmundar- og Geirfinns- málunum gáfu á sínum tíma hjá lögreglu eftir langa gæsluvarð- haldsvist. Líklega vissu sakborn- ingarnir sex ekkert um hvarf mannanna tveggja en með dómi Hæstaréttar frá árinu 1980 voru þau dæmd í langa fangelsisvist fyrir að hafa orðið að þeim bana. Þetta var niðurstaða starfshóps sem innanríkisráðherra fól að rannsaka málið. Mörgu var ábóta- vant í rannsókninni svo virðist sem lögreglan hafi einblínt um of á sekt sakborninganna og litið svo á að hlutverk hennar væri að samræma framburð þeirra. Starfs- hópurinn lagði fram tillögur að því hvernig greiða ætti fyrir endur- upptöku málsins. Ragnar Aðal- steinsson hæstaréttarlögmaður undirbýr nú fyrir hönd eins sak- borningsins, Ellu Bolladóttur, að fá málið tekið upp að nýju. apríl Afhroð stjórnarflokka og stórsigur Framsóknar Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna galt sögulegt afhroð í alþingiskosningunum. Stjórnarflokkarnir misstu meira en helming þess stuðnings sem þeir fengu í kosningunum 2009 og fengu samtals einungis 16 þingmenn kjörna en höfðu 34 þingmenn. Framsókn vann sinn stærsta sigur í lýðveldissögunni og fékk 24,4% atkvæða og 19 þing- menn. Sá sigur var almennt skýrður með loforðum flokksins um stórfellda al- menna lækkun verðtryggðra hús- Árið sem Ómar var handtekinn og Sigmundur hitti Obama á Nike-skóm næðislána landsmanna. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk einnig 19 þingmenn og 26,7% fylgi, mest allra flokka. Samfylkingin fékk einungis 12,8% fylgi og níu þingmenn en var með um þrjátíu prósent atkvæða og 20 þingmenn eftir kosningarnar 2009. Vinstri grænir misstu um helming af sínu fylgi, fengu nú 10,6% atkvæða og sjö þingmenn í stað fjórtán. Tveir nýir flokkar unnu góða sigra; Björt framtíð fékk 8,2% atkvæða og sex þingmenn. Píratar fengu 5,1% og þrjá þingmenn. Alls tóku 27 nýir þingmenn sæti á Alþingi að loknum kosningum Maí Nýtt fólk í nýrri ríkisstjórn Ný ríkisstjórn tók við völdum 23. maí og um leið varð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson yngsti for- sætisráðherra í sögu lýðveldis- ins, 38 ára gamall. Enginn nýju ráðherranna hafði áður átt sæti í ríkisstjórn. Í ríkis- stjórn Sigmundar Davíðs sitja níu ráðherrar, fimm frá Sjálfstæðisflokki og fjórir frá flokki forsætisráðherrans, Fram- sóknarflokki. Forsætisráðherrann boðaði í september að nýr ráð- herra mundi fljótlega bætast við ríkisstjórnina en það hefur ekki enn orðið að veruleika. Júní Skýr danska Fyrsta opinbera heimsókn nýja forsætisráðherrans var til gömlu herraþjóðarinnar í Danmörku. Þar hitti Sigmundur Davíð Helle Thorning Schmidt forsætisráð- herra. Á blaðamannafundi lýsti Sigmundur Davíð ánægju með að Helle hefði talað skýra og góða dönsku sem auðvelt væri að skilja en hún lagði áherslu á að Danir vildu að Íslendingar gengju í Evr- ópusambandið. Júlí Skattkóngar og -drottningar Magnús Kristinsson, útgerðar- maður frá Vestmannaeyjum, var krýndur skattakóngur ársins. Hann fékk 189 milljónir í álagða skatta vegna ársins 2012. Útgerð- armenn röðuðu sér efst á listann yfir skattgreiðendur. Kristján V. Vilhelmsson, einn Samherjafrænd- anna á Akureyri, varð annar á listanum með 152 milljónir í skatt en Guðbjörg M. Matthíasdóttir, útgerðarkona í Vestmannaeyjum og aðaleigandi Morgunblaðsins, var í þriðja sæti með 135,6 milljóna króna skatt. Bænaskjali hafnað 35.000 manns höfðu ekki erindi sem erfiði með því að skrifa undir áskorun til forseta Íslands um að vísa lögum um veiðigjald í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Nýkjörið Alþingi hafði skömmu áður samþykkt að hætta við áform fyrri ríkisstjórnar um aukna innheimtu veiðigjalds. Forsetinn undirritaði lögin. Fleiri mál ríkisstjórnarinnar á sumar- þingi voru til marks um það að ný ríkisstjórn var tekin við völdum með stefnu sem var gjörólík þeirri fyrri. Þar má nefna afnám auð- legðarskatta og yfirlýsingar um að til stæði að afnema nýleg náttúru- verndarlög eldri ríkisstjórnar. Ágúst Tveir létust í flugslysi á Akureyri Tveir menn létust en einn komst lífs af þegar flugvél í eigu Mýflugs hlekktist á og steyptist til jarðar í aðflugi að Akureyarflugvelli um verslunarmannahelgina. Slysið varð fyrir augunum á mannfjölda sem var að fylgjast með spyrnu- keppni á kvartmílubraut bæjarins og var það talin mildi að vélin lenti ekki á áhorfendum eða nærliggj- andi húsi. Rigningarsumarið mikla „Tíð var lengst af óhagstæð um landið sunnan- og vestanvert með þrálátri úrkomu og þungbúnu veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar um veðrið í ágústmánuði og lýsing- arnar í júní, júlí og september eru í áþekkum anda. Allur þorri höfuð- borgarbúa og Sunnlendinga var enda ósáttur og talar fólk sína á milli um „Rigningasumarið mikla 2013“. Könnun sem MMR gerði leiddi líka í ljós að aðeins um 30% íbúa á Suðvesturlandi voru ánægð með veðrið í sumar. Annað var uppi á teningnum á Norðausturlandi en þar voru meira en 85% sátt með sólskinið. septeMber Skóbúnaðurinn stal senunni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tók þátt í sameiginlegum fundi forsætisráðherra Norðurlandanna með Barack Obama, Bandaríkja- forseta, í Stokkhólmi í byrjun september. Rætt var um málefni Norðurslóða, borgarastyrjöld í Sýr- landi og fleira en það var þó skó- búnaður íslenska forsætisráðherr- ans sem stal senunni. Sigmundur Davíð var í spariskó á öðrum fæti en íþróttaskó á hinum. „Það spunnust nokkrar umræð- ur um þetta og fólki var nokkuð skemmt. Obama grínaðist með þetta og hinir líka,“ sagði Sig- mundur Davíð. Skýringin var sú að ráðherrann hafði fengið sýkingu í fótinn, kom sýkta fætinum ekki í spariskóinn og brá því á þetta ráð. Björn fékk nóg og hætti Björn Zoëga, forstjóri Landspítal- ans, ákvað að segja upp störfum þegar heilbrigðisráðherra hafði kynnt honum fjárlagafrumvarp ársins 2014 þar sem ekki var tekið tillit óska stjórnenda spítalans um auknar fjárveitingar og fram- 22 úttekt Helgin 27.-29. desember 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.