Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 69

Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 69
Á meðferðarheimilinu Vík á Kjalarnesi fer fram endurhæfing sjúklinga sem koma af Vogi. Þar er boðið upp á sér- sniðna meðferð fyrir konur á öllum aldri. Einnig dvelja þar karlar, 55 ára og eldri, en þeirra meðferðarstarf er aðskilið frá kvenna- dagskránni. Að sögn Halldóru Jónasdóttur, áfengis- og vímuefnaráðgjafa og dagskrár- stjóra á Vík, koma oft upp sértæk mál sem konur þurfa að takast á við í meðferð. „Þær eru ennþá meira ábyrgar fyrir börnum sín- um og það er litið öðruvísi á drykkju þeirra en karlanna. Þær eru dæmdar harðar en þeir. Svo koma oft upp viðkvæmari mál, til dæmis í sambandi við börn og fjölskyldu og þeim fylgja sektarkennd og skömm sem þær þurfa að takast á við. Hér fá þær rými fyrir sín mál,“ segir Halldóra. Hugsa málin í næði Fólk dvelur á Vík samfleytt í 28 daga og aðeins einu sinni á því tímabili fá aðstand- endur að kíkja í heimsókn. Að sögn Hall- dóru er fólk tekið út úr sínu daglega amstri á Vík þar sem hvorki er notað sjónvarp, internet né farsímar. „Hérna dvelja 32 í einu og það er einn kortasími. Það skapar mjög góðar aðstæður svo fólk geti gefið sér tíma til að hugsa um hvað er mikilvægast fyrir það að gera í stöðunni. Úti í samfélaginu er svo margt sem fólk getur gleymt sér í. Við leggjum áherslu á að fólk fái þessa yfirsýn í næði.“ Eftir dvölina á Vík tekur svo við endurhæfing á göngudeild í Von í heilt ár. Konum sem hafa verið í með- ferð á Vík og náð þeim áfanga að vera edrú í eitt ár eða lengur gefst kostur á vikudvöl á Vík og er hún hugsuð sem nokkurs konar verðlaunavika sem þær geta veitt sér til að fagna góðum árangri og í leiðinni rifjað upp fræðin og aðferð- irnar til að hafa í fersku minni. Hall- dóra segir vikudvölina hafa verið vinsæla og fimm konur hafa nýtt sér hana á undan- förnum þremur mánuðum. „Í vikudvölinni eru þær fullir þátttakendur í dagskránni hjá okkur og fara á fyrirlestrana og fá rými fyrir sig til að sjá hversu vel gengur.“ Notalegur andi Að sögn Halldóru er notalegur andi ríkjandi á Vík og róleg stemning. Dagamunur sé á líðan fólks í meðferð og reynt að taka fullt tillit til þess. „Heilmikil dagskrá og fræðsla er á Vík yfir daginn, fyrirlestrar og hóp- fundir. En á kvöldin er setið hér og prjónað og spjallað og kenna kon- urnar hver annarri og margar fara heim með peysur, húfur og annað sem þær hafa gert hér. Við leggjum líka mikið upp úr því að fólk fari út að ganga. Hreyfingin hjálpar við að losa um streitu og spennu.“ Þykir öðruvísi að drekka ekki Sjálf ákvað Halldóra að hætta að drekka fyrir 27 árum eftir að hafa sótt fjölskyld- unámskeið hjá SÁÁ en eiginmaður hennar er alkóhólisti. Þátttakendum á námskeiðinu var ráðlagt að drekka ekki á meðan á því stæði. Eftir það tók Halldóra þá ákvörðun að hætta alfarið að drekka áfengi og fann til mikils léttis við þá ákvörðun. Ári síðar fór eiginmaðurinn svo í meðferð. Eftir að hún hætti að drekka var hún oft spurð hvort hún hefði hætt vegna eiginmannsins og hvort hún mætti nú ekki fá sér smá áfengi. „Ég fann að það var komið öðruvísi fram við mig vegna þess að ég drakk ekki. Það þótti skrítið að taka þessa ákvörðun en vera ekki alkóhólisti. Í gegnum árin hefur þetta komið upp aftur og aftur og ég stundum spurð hvort ég megi ekki drekka áfengi því ég vinni hjá SÁÁ. Ég man eftir því að frænka mín spurði mig einhvern tíma eftir skemmtun sem maðurinn minn hafði ekki komist með á, hvort að ég hefði ekki notað tækifærið og fengið mér í glas. Svolítið eins og það sé óhugsandi að einhver taki þessa ákvörðun ótilneyddur.“ Kvennameðferð á Kjalarnesi Hér fá þær rými fyrir sín mál. Á Vík dvelur fólk í 28 daga eftir meðferð á Vogi. Þar er hvorki internet, sjónvarp né farsímar og segir Halldóra Jónasdóttir, dagskrárstjóri Víkur, það skapa góðar að- stæður fyrir fólk til að gefa sér tíma til að hugsa um hvað sé mikilvægast að gera í stöðunni. Ljósmynd/Hari Á meðferðarheimilinu Vík Á kjalarnesi er í boði sérstök meðferð fyrir konur: Halldóra Jónasdóttir, dagskrárstjóri Víkur, segir ýmis sértæk mál sem þær þurfi að kljást við og að enn sé það þannig að þær beri mesta ábyrgð á börnum sínum og að þeirra áfengis- eða vímuefnavandamál séu litin öðrum augum en karla. Sjálf ákvað Halldóra að hætta að drekka eftir að hafa sótt nám- skeið fyrir aðstandendur alkóhólista. Meðferðardagskrá í Von Mánudagur 09:00 Kvennahópur 1 09:15 M-hópur 11:00 Stuðningshópur 16:00 Kvennahópur 1 17:00 Stuðningshópur aðstandenda 17:00 U-hópur 18:00 Spilahópur 18:00 Fjölskyldumeðferð 18:30 Stuðningshópur Þriðjudagur 09:15 M-hópur 11:00 Stuðningshópur 11:00 Heldrimenn 16:00 Staðarfellshópur 17:00 Víkingahópur 1 18:30 Stuðningshópur Miðvikudagur 09:15 M-hópur 10:00 Kvennahópur 2 11:00 Stuðningshópur 16:30 Kvennahópur 2 17:00 Víkingahópur 2 17:00 U-hópur 18:00 Kynningarfundur 18:30 Stuðningshópur Fimmtudagur 09:00 Kvennahópur 1 09:15 M-hópur 11:00 Stuðningshópur 16:00 Kvennahópur 1 18:00 Fjölskyldumeðferð 18:30 Stuðningshópur Föstudagur 09:15 M-hópur 11:00 Stuðningshópur 14:00 M-hópur eftirfylgni 18:30 Stuðningshópur 13 2013 DESEMBER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.