Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 62

Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 62
Jakob Magnússon og Valgerður Jó-hannsdóttir opnuðu Hornið árið 1979 og voru þá fáir veitingastaðir í milli verðflokki í miðbæ Reykjavíkur. Þar voru nokkrir hamborgarastaðir og svo mjög fínir eins og Grillið og Hótel Holt. Þau hjónin hafa helgað starfsævi sína rekstri Hornsins sem þeim finnst alltaf jafn skemmtilegur. Börnin þeirra þrjú starfa þar líka. Elsti sonurinn sér um reksturinn með föður sínum, dóttirin er matreiðslumeistari og yngsti sonurinn þjónar til borðs, ásamt því að stunda tónlistarnám. Fyrir rúmlega þrjátíu árum fór Valgerður í meðferð hjá SÁÁ á Silungapoll. Á sama tíma hætti Jakob allri neyslu áfengis og kveðst Valgerður ein- staklega heppinn með manninn sinn en hún þurfti aldrei að biðja hann um að hætta. Silungapollur barn síns tíma Valgerður segir aðstöðuna á Silungapolli hafa verið allt aðra en fólk kynnist á Vogi í dag. „Þarna voru engin rúm eins og stólarnir komu héðan og þaðan. Það var einn læknir og ein hjúkrunarkona og ráðgjafarnir voru ekki menntaðir, heldur fólk sem hafði sjálft farið í meðferð og kom og hjálpaði okkur hinum,“ segir hún. Þrátt fyrir það hafi henni liðið vel þar og meðferð- in gert mikið gagn. „Maður var svo glaður að komast undir þessar hendur og fá að læra hvað maður þarf að gera til að líða vel. Ég hellti mér út í þetta og eignaðist algjörlega nýtt líf,“ segir hún. Á þessum tíma var Valgerður með yngstu konum sem farið höfðu í meðferð á Íslandi en hún var 28 ára. Flestar konurnar sem voru í meðferð á sama tíma voru mun eldri. Hún segir viðhorfið í samfélaginu hafa verið annað gagnvart alkóhólisma þá en í dag og að honum hafi oft fylgt mikil skömm. Sjálf lét Valgerður það þó ekki hafa áhrif á sig. Þegar fólk frétti að hún hefði farið í meðferð voru nokkrir sem höfðu orð á því við hana að hún hefði nú ekk- ert drukkið svo mikið. „Tengda- mamma sagði mér að gera það sem ég teldi að væri mér fyrir bestu og mér þótti mjög vænt um það,“ segir hún. Vinirnir fóru Þegar Valgerður kom úr meðferðinni hurfu vinirnir sem hún hafði neytt áfengis með og segir hún það hafa verið erfitt í fyrstu. „Ég var svolítið mikið ein en svo vandist það og ég eignaðist nýja vini innan SÁÁ. Það er yndislegt að lifa lífinu án vímugjafa og ég er SÁÁ ævinlega þakklát. Ég veit ekki hvar ég væri án alls þess sem ég hef notið hjá þeim.“ Síðan Valgerður fór fyrst í meðferð hefur hún farið á þrjú fjölskyldunámskeið hjá SÁÁ og kíkja þau hjónin reglulega á viðburði í Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti. Í fyrstu þegar Valgerður var að glíma við edrúmennskuna leið henni ekki alltaf vel þó hún væri að gera það allt sem henni var ráð- lagt. „Þá kynntist ég meðvirknisprógrammi og er búin að vera glöð síðan. Ég er mjög heppin að maðurinn minn hafi fylgt mér þessa leið og við ræðum alltaf málin þangað til við komumst til botns í þeim. Reyndar erum við nú yfirleitt sammála,“ segir hún og brosir til Jakobs. Þegar Valgerður fór í meðferð voru þau hjónin búin að eignast elsta soninn. Árin eftir meðferðina fæddust svo hin börnin tvö. „Þá varð svolítið mikill hraði á lífinu hjá okkur og það kom upp hræðslutilfinning hjá mér og mér fór að líða illa og ég ákvað því að fara í meðferð þó ég væri ekki byrjuð aftur að drekka. Ég vildi ekki hleypa hætt- unni heim.“ Í það sinn fór hún á Vog og svo á Staðarfell. „Þar náði ég úr mér skjálftanum. Ég var hrædd um að eitthvað kæmi fyrir en auðvitað kom ekkert fyrir og það hefur gengið vel hjá okkur.“ Jakob bætir við að algengt sé að fólk fari tvisvar til þrisvar sinnum í meðferð. Valgerður tekur undir það og segir að þegar líða fer frá fyrstu meðferðinni sé gott að leita sér fræðslu. „Það eru alltaf að koma nýjar kenningar og margir fróðlegir fyrir- lestrar í boði sem gagnlegt er að hlusta á.“ Camembert og sniglar alltaf vinsælir Veitingastaðir í miðbæ Reykjavíkur koma og fara en Hornið hefur fyrir löngu unnið sér fastan sess enda hefur það lítið breyst á þeim 34 árum sem liðin eru frá því það opn- aði. Valgerður og Jakob bjuggu í Danmörku þar sem hún lærði hárgreiðslu en hann vann á ítölskum veitingastað. Þau dreymdi um að opna slíkan í Reykjavík þegar þau flyttu heim og létu slag standa og eru enn að og segja reksturinn ekki aðeins vinnu heldur líka áhugamál sitt. Í gegnum árin hafa þau kynnst mikið af fólki sem snæðir reglulega á Horninu og núna er þriðja kynslóð viðskipta- vina farin að mæta. „Það eru þá barnabörn þeirra sem sótt hafa staðinn frá byrjun,“ segir Valgerður. Jakob segir fólk kunna vel að meta að það séu ekki gerðar miklar breytingar á Horn- inu og að það sé að mörgu leyti eins og í upp- hafi. „Fólki þykir gott að vita að hverju það gengur. Það eru svo hraðar breytingar alls staðar.“ Nokkrir réttir, eins og djúpsteiktur Camembert-ostur og sniglar hafa verið á matseðlinum frá upphafi og njóta alltaf mik- illa vinsælda. Reglusemi og gott starfsfólk lykillinn Þegar Hornið var opnað var ekki til peppe- róní á Íslandi og fékk Jakob kjötiðnaðar- mann í lið með sér til hanna það og fram- leiða. „Á þessum tíma var spaghettí eina pastað sem þekktist hér á landi. Við vorum með lasagne á matseðlinum og þurftum að útskýra fyrir fólki hvað það væri. Þetta var svo nýtt fyrir fólki,“ segir Jakob. Þegar sótt var um leyfi fyrir opnun Horns- ins á sínum tíma var gerð athugasemd við að ekki væru neinar gardínur fyrir gluggum og að fólk sæti ekki í sérstökum básum heldur væru borð á víð og dreif um allt gólf. Það þótti líka furðulegt að vera ekki með gólf- teppi. Allt slapp þetta þó og leyfið fékkst. Þau hjónin eru sammála um að einn lykill- inn að því að reka veitingastað svo farsæl- lega árum saman sé að hafa gott starfsfólk. „Við höfum haft margt einstaklega skemmti- legt og duglegt fólk hjá okkur. Sumir fara í burtu í langan tíma en koma svo aftur að vinna á Horninu og það þykir okkur alltaf vænt um,“ segir Jakob. Þau eru líka sam- mála um að edrú lífernið hafi hjálpað til við velgengni Hornsins. „Við værum ekki búin að eiga þennan stað í öll þessi ár ef það hefði ekki orðið breyting á okkar lífi á sínum tíma. Það er ég viss um,“ segir Valgerður. Appelsín og kók um jólin Á árum áður var alkóhól í malti og því var alkóhólistum ráðlagt að drekka það ekki. Því tóku Valgerður og Jakob upp þann sið að blanda saman kóki og appelsíni um jólin og hafa það sem jólaöl. Þó ekkert alkóhól sé í malti í dag hafa þau haldið sig við gamla siðinn. „Okkar börn eru alin upp við kók og appelsín og þekkja ekkert annað. Þetta er mjög frískandi og góður drykkur. Svona eru siðirnir misjafnir hjá fólki,“ segja þau hjónin. Kók og appelsín er jóladrykkurinn Hjónin Valgerður og Jakob eru eigendur Hornsins sem er einn elsti veitingastaðurinn í miðbæ Reykjavíkur. Valgerður fór í meðferð árið 1980 og segja þau edrú lífernið eiga stóran þátt í velgengni Hornsins. Valgerður og Jakob drekka alltaf kók og appelsín á jólunum því áður fyrr var alkóhól í malti og fólki ráðlagt að drekka það ekki eftir meðferð. Jakob og Valgerður eru afar samhent. Ljósmynd/Hari Valgerður Jóhanns- dóttir hefur rekið veitingastaðinn Hornið í 34 ár ásamt manni sínum, Jakobi Magnússyni. Börnin þeirra þrjú starfa líka á staðnum. Með Valgerði á myndinni eru tvö þeirra, Hlynur Sölvi og Ólöf. Ljósmynd/Hari 6 DESEMBER 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.