Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 6
Halla
Harðardóttir
halla@
frettatiminn
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P I S
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
H E L G A R B L A Ð
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
Ó K E Y P
I S
ÓKEYPIS
ÓKEYPI
S
Heilsan á nýju ári
Fréttatíminn gefur út sérblað um HEILSU
föstudaginn 3.janúar 2014.
Ef þú hefur áhuga á að kynna
starfsemi þína eða kaupa
auglýsingu í þessu spennandi
blaði hafðu þá samband við
auglýsingadeild Fréttatímans
auglysingar@frettatiminn.is
eða í síma 531-3310.
kg
27
SEK
3
5
7,5
Það er magnaður stígandi í þessari.
Rauðar kúlur með hala sem springa
út í þéttar silfraðar stjörnur, stígandi
ljósagangur sem endar síðan með
miklum hávaða og látum. Ein af
þeim betri.
2
G ylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hafnar gagnrýni um að nýir kjarasamningar
hafi staðfest þá kjaraskerðingu sem
launafólk varð fyrir vegna verð-
bólgu síðustu 12 mánuði. „Þvert
á móti. Við erum að semja um
launahækkanir næsta árs en ekki
síðasta árs. Við erum leggja inn for-
sendur fyrir því að hér verði kaup-
máttaraukning,“ segir hann. Takist
það muni samningurinn leiða til 1%
kaupmáttaaukningar og gera Seðla-
bankanum kleift að lækka vexti á
fyrstu mánuðum 2014.
„Haustið 2012 féll íslenska
krónan um 10% fram til áramóta og
það kom fram sem verðbólgugusa
í janúar, febrúar og mars á þessu
ári,“ segir Gylfi. „En það bendir allt
fyrir að í febrúar á næsta ári muni
12 mánaða verðbólga fara niður
fyrir 2,5%.
Atvinnurekendur vildu 2%
launahækkanir og engar sérstakar
aðgerðir fyrir láglaunafólk. Við
erum að ná 3,15% og hluti af því fer
í að hækka lægstu laun um 5% og
þess vegna er almenna launahækk-
unin 2,8%. Síðan eru starfsaldurs-
hækkanir og framgangskerfi í
kjarasamningum þannig að ég geri
ráð fyrir að kostnaðarbreytingin
verði um 4% með starfsaldursbreyt-
ingum. Seðlabankinn hefur sagt að
ef launaskriðinu linnir þá ætti verð-
bólgan að geta verið í samræmi við
markmið Seðlabankans um 2,5%
verðbólgu. Þá erum við að tala um
1-1,5% kaupmáttaraukningu.“
„Auðvitað erum við að taka
ákveðna áhættu og þess vegna
semjum við bara til 12 mánaða. En
ef atvinnulífið hættir ekki að velta
öllu sem þeir finna út í verðlagið
þá bara tókst þetta ekki. Þá verður
annars konar umræða næst.“
Þeir eru yfirlýsingaglaðir
Formenn fimm aðildarfélaga Starfs-
greinasambandsins, með Vilhjálm
Birgisson, formann Verkalýðs-
félagsins á Akranesi, og Aðal-
stein Baldursson, formann Fram-
sýnar í Þingeyjarsýslum, í broddi
fylkingar, neituðu að undirrita
samningana og hafa gagnrýnt harð-
lega að í þeim felist ekki nægilegar
hækkanir fyrir lægstu launin.
„Þeir eru yfirlýsingaglaðir,“
segir Gylfi en segir hvorki tilefni
til að tala um djúpstæðan klofning
innan verkalýðshreyfingarinnar
né Starfsgreinasambandsins. Það
megi áreiðanlega tala um djúpa gjá
milli þessara fimm formanna og
annarra í forystu ASÍ en sú gjá nái
þó ekki til félagsmanna fimmmenn-
inganna, sem eru samtals um 5%
af þeim félagsmönnum ASÍ sem
samningarnir ná til.
Afturkölluðu samt ekki um-
boðið
Gylfi bendir á að fimmmenningarn-
ir hafi ekki afturkallað samnings-
umboðið og boðað til átaka heldur
hafi þeir gert „öðrum félögum sín-
um í samninganefnd Starfsgreina-
sambandsins að bera ábyrgðina af
því að gera samninginn fyrir þeirra
félagsmenn líka. Félagsmenn
þeirra munu greiða atkvæði um
þennan samning og ég man ekki
eftir að félagsmenn þessara félaga
hafi verið sammála formönnunum
þegar kemur til atkvæðagreiðslu
vegna þess að allir samningar hafa
þá verið samþykktir. En það kemur
í ljós í janúar hvernig félagsmenn
meta þetta.“
Hvor er að auka misskiptingu?
„Atvinnulífið bauð okkur 2% hækk-
un á launum allra. Það hefði þýtt
hækkun lægstu launa um 4.000
krónur. Það er vissulega rétt að
sumir vildu fá 20.000. Við settum
mörkin við 11.000 og náðum
10.000. Það er allavegna meira en
4.000, en er það nóg? Nei, þessu
verkefni að hækka lægstu launin er
ekki lokið og mun ekki ljúka. Þess
vegna skiptir samstaða miklu máli
og sú samstaða er mjög djúp og rík
milli verkamanna, iðnaðarmanna
og verslunarmanna. En þessi fram-
ganga þessara fimm formanna er
vísasta leiðin til að rjúfa þá sam-
stöðu vegna þess að þeir fara fram
með þeim hætti að millitekjuhjópar
hafi verið í sérstakri aðgerð gegn
lágtekjufólki. Það er ekki þannig,
millitekjuhóparnir gáfu eftir 0,35%
af sinni hækkun til að geta stutt við
bakið á lágtekjufólki.“
„Tillaga þessara formanna
var vissulega um 20.000 króna
hækkun á töxtum, sem er tvöfalt
meira en 10.000, það er alveg rétt,
en þeir voru líka með tillögu um
7% almenna hækkun. Það hefði
þrefaldað launahækkun Vilhjálms
Birgissonar og mín. Ég hefði þá
fengið tæp 90.000 og Vilhjálmur
tæp 60.000 en ég fæ 33.000 út úr
þessu og Vilhjálmur 22.000,“ segir
Gylfi. „Hvor aðilinn er þá að auka
misskiptingu?“
Pétur Gunnarsson
petur@frettatiminn.is
Kjaramál djúp Gjá milli fimmmenninGa oG forystumanna asÍ
Verðbólga undir 2,5%
í upphafi árs 2014
Gylfi Arnbjörnsson man ekki til þess að félagsmenn formannanna fimm sem neituðu að undirrita
nýjan kjarasamning hafi hingað til fylgt formönnunum að máli þegar kemur að atkvæðagreiðslu
um kjarasamninga.
Það er vissu-
lega rétt að
sumir vildu
fá 20.000.
Við settum
mörkin
við 11.000
og náðum
10.000. Það
er allavegna
meira en
4.000, en er
það nóg? Nei,
þessu verk-
efni að hækka
lægstu launin
er ekki lokið,
segir Gylfi
Arnbjörns-
son.
Jón Ingi stendur í ströngu við undirbúning flugeldasöl-
unnar. Allt að 90 prósent af rekstrarfé björgunarsveita
kemur frá flugeldasölu. Ljósmynd/Hari
fluGeldar miKið undir hjá slysavarnafélaGinu landsbjörG Í fluGeldasölu
Langstærsti hluti fjáröflunar liggur í flugeldasölu
„Það er harðsnúinn hópur sem er
tilbúinn að fara í útkall hvenær sem er
og það starfa allir í þessu af hugsjón.
Þetta er fólk sem er tilbúið að missa
úr vinnu til að bjarga fólki. Og reyndar
missum við líka fé því allt björgunar-
sveitafólk sér alfarið um sinn búnað
sjálft. Það er algengur misskilningur
að byrjir þú í björgunarsveit þá fáir þú
gefins allan búnað. En þetta eru fórnir
sem sjálfboðaliðarnir í Landsbjörg
eru tilbúnir að færa,“ segir Jón Ingi
Sigvaldason, markaðs og sölustjóri
Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
Nú er fyrir höndum stærsta fjár-
öflun Landsbjargar, sala á flugeldum.
„Hjá flestum sveitum er þetta aðalmál-
ið, 85 til 90% af rekstrarfénu kemur
frá flugeldasölunni. Þetta skiptir bara
öllu máli. Við værum ekkert ef fólkið
í landinu stæði ekki á bak við okkur.
Svo er nú rétt að minnast líka á alla
atvinnurekendur landsins sem hleypa
starfsfólki sínu úr vinnu þegar kallið
kemur. Ef það væri ekki fyrir atvinnu-
rekendur sem eru sveigjanlegir við
starfsfólk sem er í björgunarsveit þá
værum við heldur ekki til. Það má því
segja að atvinnurekendur séu einn
stærsti stuðningsaðili okkar.“
Salan hefst á morgun, 28. des-
ember, og þá er fólk búið að vera
að vinna frá jólum í undirbúningi.
„Það eru fleiri þúsund vinnustundir
sem fara í þetta. Mesta salan er
alltaf 31. desember, eftir klukkan
12, svo fólk virðist ekki mikið vera
að flýta sér. Ég mæli með því, ef
fólk vill hafa góðan tíma, að það
mæti fyrir 31. desember. En svo er
aftur á móti mikil stemning sem
felst í því að vera að versla á sjálfan
gamlársdag. Getur verið gaman að
lenda í röð og spjalla við fólk um
flugeldana og gamla árið.“
6 fréttir Helgin 27.-29. desember 2013