Fréttatíminn - 27.12.2013, Síða 12
Þ
að hefur verið mikið álag á honum að
undanförnu en mér finnst hann hafa
staðið undir því. Hann er einstaklega
traustur, heiðarlegur og ljúfur. Þetta
er það sem kemur fyrst upp í hugann.
Hann er mjög góður sonur,“ segir Sigríður G.
Sigurbjörnsdóttir, móðir Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar. Hann er yngsti forsætisráðherra Ís-
lands á lýðveldistíma, fæddur 12. mars árið 1975
og því 38 ára gamall. Sigmundur Davíð var kjörinn
formaður Framsóknarflokksins í janúar 2009 en
hann hafði aldrei starfað í flokknum og skráði sig
í hann aðeins um mánuði áður en hann bauð sig
fram til formanns. Sigmundur er elstur þriggja
systkina, Sigurbjörn bróðir hans er tveimur árum
yngri og Nanna Margrét systir hans er fædd 1978.
Hún segir að þó hann hafi framan af verið rólegur
og feiminn þá hafi það ekki komi henni svo á óvart
að hann léti til sín taka í stjórnmálum. „Hann réð
ferðinni hjá okkur systkinunum. Hann hefur alltaf
haft mikinn metnað og ákveðnar skoðanir en þó
var hann alltaf til í að rökræða skoðanir sínar. Ég
sá alltaf fyrir mér að hann myndi taka sér eitthvað
annað fyrri hendur en við hin. Ég sá hann jafnvel
fyrir mér sem prófessor uppi í háskóla.“
Kveinkar sér ekki
Nanna Margrét segir eitt það allra jákvæðasta við
Sigmund Davíð sé hversu vel hann er giftur, en
með eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur,
á hann dótturina Sigríði Elínu sem er fædd árið
2012. „Ég er rosalega þakklát fyrir konuna hans.
Þau eru bæði mjög skemmtileg. Í raun eru aldrei
leiðinlegt í kringum hann, ólíkt því sem fólk sem
sér hann bara í hlutverki stjórnmálamanns í sjón-
varpinu kann að halda. Hann er líka traustur og
samkvæmur sjálfum sér.
Helstu ókostir hans eru líka kostir. Hann leggur
sig algjörlega fram í allt sem hann tekur sér fyrir
hendur og þarf að passa sig á að ganga ekki fram
af sér í starfi forsætisráðherra. Hann tekur Ís-
lendinga fram yfir flokkinn og fram yfir sjálfan sig.
Hann er með ákveðna sýn sem hann vill fylgja. Við
höfum lítið séð af honum, fyrst eftir að hann varð
formaður og enn minna eftir að hann varð forsætis-
ráðherra. Samt tekst honum alltaf að vera léttur
og skemmtilegur. Hann er ekkert að kveinka sér
yfir álaginu. Ég held að honum finnist þetta bara
skemmtilegt. Það eru líklega allir aðrir sem hafa
áhyggjur af honum,“ segir hún.
Vigdís Hauksdóttir, samflokksþingmaður Sig-
mundar Davíðs, tekur undir að hann sé vissulega
mjög upptekinn maður. Þau kynntust eftir að
hann var kjörinn formaður flokksins fyrir fjórum
árum. „Helstu gallar Sigmundar eru hversu hann
er störfum hlaðinn og því hefur flokksstarfið setið
á hakanum en ég held að allir beri virðingu fyrir
hans störfum því þau snúast vitanlega um að vinna
landi og þjóð gagn. Sigmundur er staðfastur og
fylginn sér og hefur þann kost að hafa heildarsýn
yfir verkefnin sem hann fæst við. Hann er mjög
áhugaverður og djúpur persónuleiki,“ segir Vigdís.
Engin silfurskeið
Sigríður, móðir Sigmundar, segir oft erfitt að
fylgjast með umræðum um son sinn, sér í lagi í
bloggheimum og athugasemdakerfum netmiðl-
anna. „Mér hefur fundist ósanngjarnast þegar
talað er um að hann sé fæddur með silfurskeið í
munni eða sé hrokafullur. Ég veit að hann er allt
annað en hrokafullur og það er vart til sú mann-
eskja sem hann getur ekki látið sér þykja vænt um.
Hann er engan veginn alinn upp við allsnægtir né
heldur við foreldrar hans þó við höfum efnast eftir
að hann flutti að heiman,“ segir hún en Sigríður
og faðir Sigmundar Davíðs, Gunnlaugur M.
Sigmundsson, efnuðust mjög eftir að Gunnlaugur
seldi hlut sinn í Kögun sem stofnað var árið 1988
af Þróunarfélagi Íslands til viðhalds og þróunar
á ratsjárkerfi hersins. „Við byrjuðum með tvær
hendur tómar eins og flestir. Þetta er ekkert sem
getur hafa haft áhrif á hans æsku og uppeldi. Við
Gunnlaugur áttum ekkert þegar við kynntumst og
vorum bæði að útskrifast úr háskóla. Sigmundur
er hins vegar stundum hálfgerður prófessor í fram-
komu og getur horfið inn í sig. Þá kannski finnst
fólki hann ekki taka eftir því og upplifir hann sem
hrokafullan. Ég held að hann hafi sérstaklega gert
það á undanförnum árum því hann hefur sökkt
sér ofan í þau mikilvægu verkefni sem hann hefur
tekið sér fyrir hendur.“
Sigríður segir að í gegnum árin hafi hún myndað
ákveðna skel gegn ómaklegri umfjöllun í fjölmiðl-
um um fjölskyldu sína. „Auðvitað má gagnrýna
Sigmund. Heiðarleg og uppbyggjandi gagnrýni er
bara af hinum góða. Það er skítkastið og ósann-
indin sem mér líkar ekki,“ segir hún.
Systir hans, Nanna Margrét, segist reyna að
horfa á umfjöllun um bróðir sinn frá báðum hlið-
um. „Mér finnst umræðan vera afskaplega pólitísk
Traustur, heiðarlegur og einstaklega vel giftur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur að öðrum Íslendingum ólöstuðum verið einna mest
áberandi í þjóðmálaumræðuni á árinu. Það var því einróma niðurstaða ritstjórnar Frétta-
tímans að Sigmundur Davíð væri maður ársins 2013. Blaðið leitaði til fólks sem þekkir
Sigmund Davíð, misnáið þó, til að greina frá helstu einkennum hans, kostum og göllum.
Sigmundur Davíð, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, og Agnes M. Sigurðardóttir
biskup Íslands, ganga til messu fyrir fyrstu þingsetninguna eftir að Sigmundur varð for-
sætisráðherra. Ljósmynd/Davíð.
í stað þess að vera byggð á rökum og
frekar snúast bara um útlit hans. Fólk
þarf að taka af sér pólitísku gleraugun.
Hann á vini í öllum flokkum og getur
hlustað á allar hliðar. Hann er sjálfur
ekki með flokkspólitísk gleraugu á sér
og á bæði mjög vinstri sinnaða vini og
mjög hægri sinnaða vini. Auðvitað er
eitthvað hjá honum sem má betur gera
og þá er gott að benda á það, en það
þarf að gera með rökum,“ segir hún og
bætir við að Sigmundur geri aldrei neitt
að vanhugsuðu máli. „Hann æðir aldrei
út í neitt og ég hef aldrei áhyggjur af því
að hann verði nokkurn tímann rekinn á
gat. Þegar ég sé hann í viðtölum hef ég
aldrei áhyggjur af því að hann geti ekki
svarað fyrir sig. Það er þægilegt fyrir
þá sem eru í kringum hann að vita það.“
Viðkvæmur fyrir gagnrýni
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, kynntist Sigmundi
Davíð fyrst þegar hann varð formaður
Framsóknarflokksins og Össur þá
sjálfur utanríkisráðherra. „Mín reynsla
af honum er að það er hægt að eiga við
hann trúnaðarsamskipti. Þegar ég var
ráðherra þá komst ég að því að hann
heldur trúnað og hann hefur góðan
vilja. Hann fór af stað sem forsætisráð-
herra af veikari burðum en ég átti von á
en hefur á síðustu sex vikum rétt sig af.
Það hefur hann gert með því að koma
fram með skuldaleiðréttingarnar sem
sannarlega voru skref í rétta átt en ollu
vonbrigðum vegna þess að þær voru
töluvert langt frá loforðum. Í þeim fól-
ust hins vegar mikilvæg pólitísk kafla-
skil fyrir hann sem voru í fyrsta lagi
að hann reyndi af kröftum að standa
undir loforðum en komst ekki lengra
gagnvart íhaldinu, í öðru lagi reisti
hann sig gagnvart Sjálfstæðisflokknum
með skuldaleiðréttingunni,og í þriðja
lagi hvernig hann tók höndum saman
með stjórnarandstöðunni í að taka inn
desemberuppbót fyrir atvinnulausa,
afnema sjúklingaskattinn og færa upp
neðri mörk millitekjuskattþrepsins.
Þetta held ég að hafi skapað honum
nýja stöðu gagnvart Sjálfstæðisflokkn-
um og gefið honum það pólitíska líf sem
mér virtist hann um stundarsakir hafa
glatað.
Ef ég ætti að gefa honum einkunn
þá hefur hann algjörlega staðist prófið
sem forsætisráðherra. Þetta er auð-
vitað allt of jákvætt fyrir mann sem er
í stjórnarandstöðu en „I don´t care,“
segir Össur. Hann tekur þó fram að
Sigmundur þurfi að sýna meira sjálfs-
traust. „Hann er afskaplega viðkvæmur
fyrir gagnrýni, samanber fræga grein
um loftárásir fjölmiðla. Hann virðist
einnig sjá spunameistara í hverju horni.
Maður í hans stöðu mun alltaf sæta
mestri gagnrýni allra, hann verður að
horfast í augu við það og læra að lifa
með því ef hann ætlar að lifa af í hinu
pólitíska landi.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er yngsti forsætisráðherra Íslands á lýðveldistíma, aðeins 38
ára. Ljósmynd/Hari
Sigmundur Davíð og Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, skrifuðu undir
stjórnarsáttmálann í húsnæði gamla Héraðsskól-
ans á Laugavatni þann 22. maí. Ljósmynd/Hari
12 maður ársins Helgin 27.-29. desember 2013