Fréttatíminn - 27.12.2013, Síða 14
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300.
ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is
og Sigríður Dögg Auðuns dóttir sigridur@frettatiminn.is. Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýs-
ingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur
Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi
ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
V Væntingavísitala Gallup hækkaði milli mánaðanna nóvember og desember. Það er eins og vænta mátti í kjölfar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu á forsendubresti verðtryggðra fasteignalána sem koma mun til framkvæmda um mitt komandi ár. Greining Ís-
landsbanka bendir á að allar undirvísitölur hækka milli
mælinga í nóvember og desember en væntingarnar
tengjast boðuðu aðgerðunum enda hækka mest vænt-
ingar neytenda til ástandsins í efnahags- og atvinnu-
málum eftir 6 mánuði. Hækkar sú undir-
vísitala um 15 stig, en hún er nú 109 stig.
Er það í fyrsta sinn síðan í júlí sem þessi
undirvísitala fer yfir 100 stig en í því felst
að flestir svarendur telja að ástandið í
atvinnu- og efnahagsmálum verði betra
að hálfu ári liðnu.
Hvort það gengur eftir helgast af ýmsu
en mikilvægt innlegg í það eru nýgerðir
kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins
og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands
sem gilda í eitt ár, til gamlársdags 2014.
Að samningnum standa Starfsgreinasam-
bandið, Flóabandalagið, LÍV, VR, ESÍ, Samiðn, VM,
Matvís, Félag leiðsögumanna, Félag bókagerðarmanna
og Félag hárgreiðslusveina. Formenn nokkurra aðildar-
félaga Starfsgreinasambandsins undirrituðu ekki kjara-
samninginn en hann fer engu að síður til afgreiðslu í
viðkomandi stéttarfélögum með sama hætti og í öðrum
félögum.
Samningurinn er, eins og fram hefur komið í máli
Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, aðfararsamningur.
Auk launabreytinga nú um áramótin, með áherslu á
hækkun lægstu launa, gefur samningurinn samnings-
aðilum eitt ár til að undirbúa gerð langtímasamnings
sem á að tryggja stöðugleika í efnahagslífinu og kaup-
máttaraukningu til framtíðar. Í viðtali við Fréttatímann
segir forseti ASÍ að með samningnum fyrir jól hafi for-
sendur verið lagðar fyrir kaupmáttaraukningu sem ætti
að gera Seðlabankanum kleift að lækka vexti á fyrstu
mánuðum komandi árs. Gylfi segir allt benda til þess
að í febrúar næstkomandi fari verðbólgan niður fyrir
2,5 prósent. Það er í þágu allra að verðbólgan fari niður
fyrir verðbólgumarkmið Seðlabankans, ekki síst laun-
þega, en þorri þeirra er með verðtryggð húsnæðislán.
Forsenda þess að þessi markmið náist er að þeir
samningar sem gerðir voru fyrir jól séu uppskrift að
öðrum samningum, að því gefnu vitaskuld að félags-
menn samþykki þá samninga sem gerðir voru. Það á við
samninga annarra á hinum almenna markaði sem og
samninga við opinbera starfsmenn. Um leið er sú krafa
sett á fyrirtækin að halda aftur af launaskriði, verslanir
haldi aftur af verðhækkunum og stofnanir gæti aðhalds
í hækkun gjaldskrár. Markmið um lága verðbólgu og
aukningu kaupmáttar nást ekki nema allir vinni að
sama marki.
Markmið samningsaðila jólasamninganna er að
leggja sitt af mörkum til að stuðla að efnahagslegum
stöðugleika sem er forsenda aukins kaupmáttar og
stöðugs verðlags. Ríkisstjórnin kom enn fremur að
samningagerðinni með yfirlýsingu er lýtur meðal
annars að breytingum á tekjuskatti einstaklinga og að
gjaldskrárhækkanir ríkisins næstu tvö ár verði undir
verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Auk þess mun hún
beita sér fyrir því að fyrirtæki í ríkiseigu, þar með talin
orkufyrirtæki, gæti ýtrasta aðhalds við gjaldskrárbreyt-
ingar á næsta ári.
Takist, eins og að er stefnt, að stöðva hallarekstur
ríkissjóðs á komandi ári skapast aðstæður til að lækka
skuldir hans á næstu árum. Í þágu allra er að minnka
vaxtakostnað ríkisins og nýta það skattfé fremur í þágu
heilbrigðiskerfisins, svo dæmi sé tekið.
Meðal stærstu verkefna stjórnvalda, þegar litið er til
ársins 2014, er að aflétta lamandi gjaldeyrishöftunum
sem væntanlega gerist í áföngum, svo ekki komi til koll-
steypu. Gengi krónunnar verður að haldast stöðugt. Að
þessu gefnu eru forsendur fyrir því að þjóðin nái sér
endanlega upp úr djúpum öldudal hrunsins. Helstu út-
flutningsgreinar standa vel, sjávarútvegur, áliðnaður og
ekki síst ferðaþjónustan.
Starfsfólk Fréttatímans óskar landsmönnum öllum
gleðilegs árs og þakkar dygga samfylgd á árinu sem er
að líða.
Kjarasamningar og aðgerðir stjórnvalda
Forsendur kaupmáttaraukningar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Nei, nei. Gunnar
Bragi er með föst
tök á þessu
Það er rétt að
utanríkis-
málin eru í
talsverðum
ólestri og
hafa verið
undanfarin ár.
Brynjar Níels-
son, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, tjáði
sig um ríkisstjórnina
á Facebook og greinir
brotalamir í utanríkis-
ráðuneytinu.
Leiðinda skríll
Ég verð að
viðurkenna
að mér er
gróflega
misboðið,
ekki bara
framganga
þessara félaga
minna heldur ekki síður
hvernig fjölmiðlar hafa
hampað þessum aðilum
án þess að leita eftir
skoðunum forystumanna
þeirra 95% félagsmanna
sem ákváðu að axla
fulla ábyrgð á stöðu-
matinu með undirritun
kjarasamninganna.
Gylfi Arnbjörnsson,
forseti Alþýðusambands
Íslands, er gáttaður á
pirringi yfir nýgerðum
kjarasamningum.
Eru álfar kannski
menn?
Ég verð að
segja eins
og er að
ég hef
aldrei hitt
Íslending
sem trúir á
tilveru álfa eða
huldufólks.
Egill Helgason brást við
umfjöllun AP þar sem
baráttan fyrir verndun
Gálgahrauns var tengd
álfatrú.
Fulli kallinn alltaf
með vesen
Það er auðvitað alls
konar fólk sem er svona
meira skulum við segja
úti á lífinu, það þarf ekki
að draga dulu yfir það.
Sigríður Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari greinir
þverskurð þess fólks sem
leggur fram kæru á hendur
lögreglu.
Vikan sem Var
14 viðhorf Helgin 27.-29. desember 2013