Fréttatíminn - 27.12.2013, Síða 24
kvæmdir við nýtt hátæknisjúkrahús. Fljót-
lega var nýr framkvæmdastjóri kominn til
starfa, Páll Matthíasson. Í nóvember fréttist
að Björn Zoëga væri búinn að ráða sig sem
forstjóra fyrirtækisins Nextcode eftir að
Hannes Smárason þurfti að víkja úr því starfi
vegna ákæru frá sérstökum saksóknara.
Nefndin send heim
Utanríkisráðuneytið leysti formlega upp
samninganefnd Íslands vegna aðildarvið-
ræðna við Evrópusambandið í september og
lýsti því yfir að viðræðum yrði ekki haldið
áfram nema að undangenginni þjóðarat-
kvæðagreiðslu í samræmi við stefnu nýrrar
ríkisstjórnar. Hins vegar virtist það koma
Gunnari Braga Sveinssyni utanríkisráðherra
í opna skjöldu þegar fram kom í desember að
ESB hefði ákveðið að hætta við að greiða út
svokallaða IPA-styrki, sem veittir höfðu verið
til þess að undirbúa stjórnkerfi og stofnanir
landsins fyrir aðild að Evrópusambandinu.
Reykjavíkurflugvöllur á 69.000 vini
69.000 manns tóku þátt í undirskriftar-
söfnun til stuðnings Reykjavíkurflugvelli
í Vatnsmýrinni en undirskriftirnar voru
afhentar borgarstjóra. Aðstandendur
söfnunarinnar lýstu áhyggjum af því að
innanlandsflug mundi leggjast af ef skipu-
lagsáform borgaryfirvalda um að flytja
flugvöllinn úr Vatnsmýrinni mundu ná fram
að ganga. Margir töldu einnig að vegna
hagsmuna sjúkraflugs af landsbyggðinni
ætti nálægðin við Landspítalann að ráða úr-
slitum um staðarval flugvallarins. Í október
undirrituðu borgaryfirvöld og innanríkis-
ráðherra samkomulag þar sem áformum
um að leggja niður norður-suðurbraut flug-
vallarins árið 2016 var slegið á frest til 2022.
Október
Jón Gnarr ætlar að leita að gleðinni
Jón Gnarr borgarstjóri ætlar að hætta í
pólitík og verður ekki í framboði í sveitar-
stjórnarkosningunum í maí 2014. „Ég ætla
að fara að leita að gleðinni,“ sagði Jón þegar
hann tilkynnti þessa ákvörðun sína í beinni
útsendingu í endurvöktum Tvíhöfða á Rás2.
„Mér finnst minn tími búinn á þessu sviði.
Ef ég ætlaði að endurtaka þetta yrði ég að
verða stjórnmálamaður sem ég er ekki. Ég
er einfaldlega ekki stjórnmálamaður – ég
er grínisti.“ Um leið var tilkynnt að Besti
flokkurinn yrði lagður niður. Björt framtíð
mundi bjóða fram í stað Besta flokksins í
sveitarstjórnarkosningunum í vor og verður
S. Björn Blöndal borgarstjóraefni listans en
hann hefur verið aðstoðarmaður Jóns Gnarr
borgarstjóra. Fleiri borgarfulltrúar Besta
flokksins ætla að hætta, þeirra á meðal
söngvararnir Einar Örn Benediktsson og
Karl Sigurðsson.
Ómar handtekinn
Miðaldra fólk og ellilífeyrisþegar voru áber-
andi í óvenjulegum mótmælaaðgerðum sem
blásið var til í Gálgahrauni á Álftanesi til
þess að mótmæla vegarlagningu. Lögreglu
var beitt til að verktakar gætu unnið verkið
sem þeir höfðu samið um við Vegagerðina.
Allmargir mótmælendur voru handteknir
og færðir á brott, þeirra á meðal Ómar
Ragnarsson, sjónvarpsmaður og þekktasti
baráttumaður landsins fyrir náttúruvernd.
Fimmti hver hefur
lent á atvinnuleysisskrá
Greint var frá því í október að frá hruni
hefur næstum því fimmta hvert mannsbarn
á landinu, eða 62.000 einstaklingar alls, lent
á atvinnuleysisskrá um lengri eða skemmri
tíma. Samtals hafa verið greiddar út 120
milljarðar króna í atvinnuleysisbætur á
þessu tímabili.
Nóvember
Afskriftir kynntar í Hörpu
Ríkisstjórnin blés til fundar í Hörpu síðdegis
á laugardegi og kynnti þar áætlun um að
fella niður allt að 4 milljónir af höfuðstóli
allra verðtryggðra fasteignalána í landinu.
Þetta á að gera á áföngum á næstu fjórum
árum og mun kosta samtals 80 milljarða
króna, sem aflað verður með skatti á banka
og fjármálafyrirtæki, þar á meðal þrotabú
bankanna. Skuldarar geta einnig valið að
lækka lánin sín ennþá meira með því að
greiða séreignarsparnað inn á höfuðstólinn.
Skömmu áður en tillögurnar voru kynntar
lýsti forsætisráðherra því yfir að í vændum
væri heimsmet í skuldaleiðréttingu og í að-
draganda kosninganna hafði Framsóknar-
flokkurinn gefið yfirlýsingar um að svigrúm
til skuldalækkana væri allt að 300 milljarðar
króna. Margir fögnuðu þessari áætlun stjór-
nvalda en aðrir gagnrýndu að fyrirætlan-
24 úttekt Helgin 27.-29. desember 2013