Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 38

Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 38
Helgin 27.-29. desember 201338 tíska - Tískuförðun grunnnámskeið 3 vikur Engin próf - metnaðarfull verkefni. Tilvalið fyrir hárgreiðslufólk, leikara, dansara og ljósmyndara. Einstaklingsmiðuð kennsla, hámark 8 nemendur. - Smokeynámskeið - Almenn förðun - Endurmenntun fyrir fagfólk Kennarar: Kristín Stefánsdóttir, snyrti- og förðunarmeistari höfundur bókarinnar Förðun, skref fyrir skref Ástrós Erla Benediktsdóttir, förðunarmeistari, skólastjóri Innritun hafin! Upplýsingar: skoli@nnmakeupschool.is www.nnmakeupschool.is f./nnmakeupschool Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi Nýr og ferskur förðunarskóli Fö rð un : H elm a Þ or ste ins dó ttir Ljó sm .: R ag nh eið ur A rn gr ím sd ótt ir Fö rð un : H ild igu nn ur E rn a G ísl ad ótt ir Ljó sm .: R ag nh eið ur A rn gr ím sd ótt ir Fö rð un : S tei nu nn Ó sk B ryn jar sd ótt ir Ljó sm .: R ag nh eið ur A rn gr ím sd ótt ir Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 11-16 Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á síðuna okkar Kjóll á 15.900 kr. Stærð 36 - 46 KYNNING Andlit: Top Secrets BB krem er notað sem undirfarði, með því móti sparast farðinn. Nýjasti farði YSL, Youth liberator serumfarðinn, er borinn á með farðapensli yfir BB kremið. Farðinn vinnur á 6 einkennum öldrunar, gefur fallegan ljóma og fyllir vel upp í opnar húðholur og línur. Farðann má byggja upp, þ.e. hægt er að hafa hann léttan og náttúru- legan, einnig má setja meira og fá mikla, flotta þekju. Touche éclat töfrapenninn er settur í kringum augu og unninn út á kinnbeinin. Til að draga úr línum í andliti og skerpa varir má einnig nota töfrapennann og vinna hann vel saman við farðann. Að lokum er matt sólarpúður nr. 30 sett undir kinnbein og kjálkabein til að móta vel andlitsdrætti og kremkinna- litur nr. 8 settur á kinnar. Augu: Touche éclat myndar góðan farðagrunn fyrir augnskugga og því sérstaklega gott að nota hann á augnlokin. Fimm skugga palletta nr. 11 er notuð á augun, skuggarnir eru í djúpum og dökkum litum með glimmeri til að auka á glamúrinn. Fyrst er svartur augnblýantur notaður yfir allt neðra augnlok, hann unninn og augnskuggar settir yfir. Ljósasti liturinn er notaður yfir allt augnlok alveg upp að augabrúnum. Dökkgræni liturinn er settur yfir augnblýantinn á neðra augnlok og unninn aðeins upp til þess að mýkja línuna, dekksti liturinn er að lokum notaður á augnlok við ytri augnkróka, þá fæst mikil og flott skygging. Dökkfjólublái liturinn er settur í kringum augu og Shocking eyeliner settur við augnhár á efri augnlok og tekinn vel upp við ytri augnkrók. Að lokum er Mascara Effet faux Cils noir radical maskari settur á augnhár sem er mjög þykkjandi, lengjandi og gefur dramatískt augnaráð. Varir: Touche éclat myndar góðan grunn fyrir varaliti og því upplagt að nota hann yfir varirnar og í kringum þær. Varablýantur nr. 21 er notaður til þess að skerpa og skyggja varirnar, hann er settur í varalínuna og síðan unninn inn á varirnar. Rouge Pur Couture dökkfjólublár varalitur nr. 54 er að lokum borinn á varir til þess að fullkomna dramatíska áramótaförðunina. Áramótaförðun YSL 2013 Eigum að leyfa okkur að vera prinsessur Í desember er það gull, silfur, brons, pallíettur, fjaðrir og „gatsby“ stemning sem gildir og allir leyfa sér að vera fínir,“ segir Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, höfundur Tískubókarinnar, sem kom út fyrir þessi jól. „Ég ætlaði upprunalega að læra ljósmyndun þegar ég fór til Bandaríkjanna árið 1992 en svo endaði með að ég fór í tískunám. Það er svo gaman að hjálpa konum og sjá þær fara glaðar úr búðinni en ég hef verið að vinna í tískubransanum frá því að ég var unglingur. Við megum alveg leyfa okkur að vera prinsessur og þó ég sé alveg fylgjandi „less is more“ þá gildir „more is better“ í desember,“ segir Eva Dögg. „Ég vil hvetja konur til að vera þær sjálfar en nýta sér tískuna til að vera besta útgáfan af sér,“ segir Eva Dögg. „Ég var oft beðin um ráð og ég ákvað að safna ráðunum mínum í eina bók og byrjaði á því í fyrravor,“ segir Eva Dögg. Hún segir að heilmikil vinna hafi verið bak við bókina og ákveðin áskorun að fara í markaðssetningu á sjálfum sér. Hún segist hafi verið með mikið efni og hafi þurft að velja úr í bókina. „Ég vil ekki breyta fólki en vil hjálpa konum að ná að þekkja sinn stíl. Ég held að konur geti nýtt betur þau föt sem þær eiga með því að klæða þau upp eða niður og vil gefa þeim hug- myndir um hvað er hægt að gera. Ef kona er örugg og veit að hún á föt sem klæða hana og kann að setja hluti saman þá kemur sjálfstraustið. Alveg sama hvort að hún hefur átt flíkina í tíu ár eða ekki og alveg sama í hvaða búð hún hefur keypt það,“ segir Eva Dögg. Segir hún að íslenskar konur standi sig almennt vel með tilliti til klæðaburðar en henni finnst yngri kynslóðin sérstaklega örugg með sig. „Ungar konur eru mjög meðvit- aðar um hvað þær vilja,“ segir Eva Dögg sem hefur alla tíð haft ánægju af því að gleðja fólk og sérstaklega konur frá því að hún vann í tískubúð- um. „Það er svo gaman að hjálpa og sjá konur fara glaðar þegar þær hafa fundið föt eða samsetningu sem fer þeim sérstaklega vel,“ segir Eva. Desembermánuður er sérstaklega í uppáhaldi hjá Evu Dögg en þá er það glamúr og glæsileiki sem ríkir. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Eva Dögg Sigurgeirsdóttir segir að í desember eigi konur að leyfa sér að vera í gulli, silfri, bronsi, pallíettum og jafnvel fjöðrum og orðatiltækið „less is more“ gildi ekki.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.