Fréttatíminn - 27.12.2013, Qupperneq 54
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
KjúKlingamáltíð fyrir 4
Grillaður kjúklingur – heill
Franskar kartöflur – 500 g
Kjúklingasósa – heit, 150 g
Coke – 2 lítrar*
*Coca-Cola, Coke Light
eða Coke Zero
1990,-
Verð aðeins
+ 1 flaska af
2 L M ér finnst þetta eitt flottasta húsið í miðbænum þannig að mér rann eiginlega bara blóðið til skyld-
unnar og fannst við verða að gera eitthvað,“
segir Þóra Sigurðardóttir sem tók við
rekstri Hótels Borgar ásamt Völundi Snæ
Völundarsyni, eiginmanni sínum, á þessu
ári.
Þau hjónin ætla að halda glæsilegan
dansleik á Borginni á nýárskvöld þar sem
Völundur mun reiða fram þriggja rétta mál-
tíð áður en dansinn byrjar að duna.
„Okkur fannst ómögulegt að vera bara
að elda fyrir erlenda ferðamenn sem eru á
hótelinu um áramótin og ákváðum bara að
kýla á þetta,“ segir Þóra.
Tekið verður á móti gestum með for-
drykk og að loknum málsverðinum verður
kaffi borið fram með koníaki. Þótt Þóra sé
í meiralagi fótafim og alltaf hress sér hún
ekki fram á að geta dansað mikið við bónd-
ann, í það minnsta ekki fram eftir kvöldi.
„Það verða auðvitað allir sem vettlingi
geta valdið á vakt þannig að ætli ég þjóni
ekki bara til borðs á meðan Völli eldar. „Ég
er nú búin að vera að þjóna hérna á jólahlað-
borðunum og skemmta mér konunglega
við það. Gamla fékk að vera með í því og er
búin að vera alveg í essinu sínu,“ segir Þóra
og hlær sínum dillandi hlátri.
Sá mæti og reyndi skemmtikraftur Bogo-
mil Font sér um veislustjórn og leikur fyrir
dansi sem hlýtur að teljast mjög viðeigandi
þar sem Þóra segir ætlunina vera þá að
dansleikurinn verði bergmál af gullaldar-
árum Borgarinnar. „Það var frábært að fá
Bogomil í þetta vegna þess að við ákváðum
þetta með frekar stuttum fyrirvara. Hann
er mikill happafengur og var til í tuskið
eins og bara allir sem við höfum leitað til.
Það er bara gríðarleg stemning fyrir að
hafa líf og fjör á Borginni á nýárskvöld.“
Þóra segir þau hjónin ekki hafa reynslu
af því að halda nýársdansleik á Íslandi en
gerir ekki ráð fyrir öðru en það verði mikið
stuð og að flotta fólkið muni fjölmenna á
Borgina í sínu fínasta pússi. „Við höfum
hingað til bara haldið nýárspartí á Bahama-
eyjum og þau voru alltaf frábær og mjög
hress og þetta verður pottþétt eins hérna.
Bara aðeins kaldara.“
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
RetRo StefSon SíðaSti SénS
Dúndurhefð fyrir góðu stuði
Hefð hefur skapast fyrir því hjá hljómsveitinni
Retro Stefson að slá upp tónleikum sem kennd-
ir eru við Síðasta séns þann 30. desember.
Engin breyting verður á þessu í ár og sveitin
lofar miklu stuði í Valsheimilinu þetta næst
síðasta kvöld ársins.
„Við höfum haldið þetta síðan 2009,“ segir sá
vaski tónleikahaldari og umboðsmaður Retro
Stefson, Grímur Atlason. „Það er bara dúndur-
hefð fyrir því að gera þetta í Valsheimilinu
og þetta er helvíti góður dagur til þessa, 30.
desember.“
Eins og í fyrra byrjar ballið þegar Hermi-
gervill stígur á stokk, þá tekur Sísí Ey við síðan
loka Retro Stefson kvöldinu eins og þeim einum
er lagið.
„Húsið opnar klukkan níu og fjörið hefst upp
úr tíu og stendur til svona eitt, hálf tvö. Eða eitt-
hvað svoleiðis. Þetta er náttúrlega alltaf mikið
stuð og alltaf gaman að hlusta á Retro í al-
mennilegu sándi og kerfi. Þetta er bara gaman.
Þetta er líka opið öllum og það er að sjálfsögðu
allt til alls hjá okkur Völsurunum.“
Retro Stefson tók við platínumplötu í Macl-
and á Þorláksmessu en Grímur segir sveitina
fyrir löngu búna að selja yfir 10.000 eintök af
síðustu plötu sinni.“ -þþ
Retro Stefson lofar stuði í Vals-
heimilinu 30. desember.
Hótel BoRg nýáRSdanS í anda gullaldaRáRanna
Það var
frábært að
fá Bogomil
í þetta.
Bogomil Font
leikur fyrir dansi
Hjónin Þóra Sigurðardóttir og kokkurinn Völundur Snær Völundarson tóku við rekstri Hótel
Borgar á árinu. Þeim þykir ekki annað við hæfi en að halda alvöru nýársdansleik á hinu forn-
fræga hóteli þannig að þeir sem vilja lyfta sér á kreik á fyrsta kvöldi ársins 2014 geti gert það
með stæl. Þau fengu sjálfan Bogomil Font til þess að stjórna veislunni og leika fyrir dansi.
Þóra og Völli ætla að láta dansinn duna á
Borginni á nýársnótt að loknu þríréttuðu
borðhaldi að hætti Völla. Ljósmynd/Hari.
Auglýst
eftir minni
spámanni
Sá reyndi fjöl-
miðlamaður Þor-
finnur Ómarsson
er gáttaður á
þeim hæfniskröfum sem gerðar eru til
umsækjenda um stöðu útvarpsstjóra.
„Athyglisvert er hve litlar hæfiskröfur eru
gerðar til umsækjenda um stöðu útvarps-
stjóra,“ skrifar Þorfinnur á Facebook og
telur síðan upp þær kröfur sem settar eru
fram í auglýsingunni um starfið; háskóla-
menntun sem nýtist í starfi, leiðtogahæfi-
leika, stjórnunar- og rekstrarreynslu auk
reynslu af stefnumótun og innleiðingu
stefnu. „Þetta er svo opið og léttvægt,
að ætla mætti að þarna væri auglýst
eftir lágt settum millistjórnanda í möppu-
dýrastofnun, en ekki æðsta yfirmanni
ríkisfjölmiðils,“ skrifar Þorfinnur og spyr í
forundran hvort virkilega sé ekki ætlast til
þess að útvarpsstjóri hafi fjölmiðlareynslu.
Slíkt var talið Páli Magnússyni til tekna en
virðist ekki heilla stjórn RÚV ohf. lengur.
Hátíðartónleikar í
Gamla bíói
Hljómsveitirnar Moses Hightower, Ylja og
Snorri Helgason hafa í sameiningu ákveðið
að blása til hátíðartónleika í Gamla bíói
milli jóla og nýárs. Gleðin verður við völd
laugardagskvöldið 28. desember og því
tilvalin til þess að jafna sig eftir jólaösina
og til að hita sig upp fyrir nýtt ár. Hljóm-
sveitirnar munu skarta sínum skærasta í
sérstökum hátíðarbúningi og lofa einstakri
upplifun. Þess vegna verður að teljast mjög
líklegt að eitt eða tvö jólalög fái að hljóma í
meðförum sveitanna á tónleikunum.
Ármann vaknar við vondan draum
Vinjettuhöfundurinn og
fagurkerinn Ármann
Reynisson sótti á
jóladag heim hælisleit-
endur í Reykjanesbæ og
blöskraði það sem fyrir
augu bar. „Það var eins
og að lenda inni í alþjóð-
legum vandamálum og
kynnast illsku heimsins í
allri sinni nekt,“ skrifaði
Ármann á Facebook-síðu
sína eftir að hafa áttað
sig á að „við Íslendingar
erum lítið betri en aðrar
þjóðir þegar kemur að
málum hælisleitenda.“
Hann segir verald-
legar aðstæður þeirra
„þolanlegar“ en það
sem skipti höfuðmáli,
andlegu aðstæðurnar
séu hörmulegar. Ármann
vill að þjóðin vakni af
þyrnirósarsvefni sínum,
standi upp frá gnægtar-
borðunum og vinni
saman af krafti í málum
hælisleitenda á Íslandi.
54 dægurmál Helgin 27.-29. desember 2013