Fréttatíminn - 27.12.2013, Blaðsíða 58
Viðtöl við
ráðgjafa
SÁÁ
Vakthafandi ráðgjafi svarar
í síma 530-7600 en það er
númerið sem hringt er í
vilji fólk óska eftir viðtali
við áfengis- og vímefnaráð-
gjafa á göngudeild Áfengis-
og fjölskyldudeildar SÁÁ.
Símatími er alla virka daga
frá klukkan níu til fimm.
Ekki er nauðsynlegt að
panta tíma hjá ráðgjafa
fyrirfram heldur er hægt að
mæta í Von, Efstaleiti 7, á
opnunartíma og óska eftir
viðtali.
SÁÁ býður einnig upp á
sérstaka símaráðgjöf fyrir
unglinga og aðstandendur
þeirra. Síminn er ávallt op-
inn og er númerið 824-7666.
Efni viðtala unglinga, full-
orðinna og aðstandenda er
mismunandi og getur verið
allt frá því að einstaklingur
komi til að bera undir ráð-
gjafa eitt afmarkað atriði
og til þess að fólk komi
eftir heildstæðri ráðgjöf og
aðstoð til að gera varan-
legar breytingar á lífstíl
sínum. Allir þeir sem telja
sig eiga við vanda að stríða
vegna notkunar vímuefna,
eða eiga aðstandanda sem
á við slíkan vanda að etja,
geta leitað til göngudeildar
Áfengis- og fjölskyldudeild-
ar SÁÁ.
ÚTGEFANDI:
SÁÁ – Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann
Efstaleiti 7, 103 Reykjavík
Sími: 530 7600
ÁBYRGÐARMAÐUR:
Arnþór Jónsson
RITSTJÓRI:
Höskuldur Daði Magnússon
BLAÐAMAÐUR:
Dagný Hulda Erlendsdóttir
TENGILIÐUR:
Rúnar Freyr Gíslason
LJÓSMYNDIR:
Haraldur Jónasson
UMBROT:
Páll Svansson
Þann 28. desember næstkom-andi verða 30 ár liðin síðan Sjúkrahúsið Vogur var tekið
í notkun. Síðan þá hafa yfir 20 þús-
und einstaklingar komið í meðferð
á Vog, litla 60 rúma sjúkrahúsið
okkar með stóra hjartað. Þúsundir
Íslendinga, alkóhólistar og aðstand-
endur þeirra, standa í ævarandi
þakkarskuld við frumherjana sem
stofnuðu SÁÁ og byggðu Vog með
tvær hendur tómar.
SÁÁ hefur byggt og keypt húsnæði
undir sína starfsemi án aðkomu ríkis
og bæja og lengst af skaffað húsnæðið
alveg endurgjaldslaust fyrir kaupendur þjón-
ustunnar. Þannig eru alkóhólistar á Íslandi eini
sjúklingahópurinn sem hefur byggt sinn eigin
spítala fyrir peninga sem þeir hafa sjálfir safnað
saman.
Alkóhólistar eru einnig eini sjúklingahóp-
urinn sem hefur þróað sérstök meðferðarúr-
ræði fyrir aðstandendur sína og afkomendur
en meðferð og þjónusta SÁÁ fyrir aðstand-
endur alkóhólista er ófjármögnuð, þ.e.a.s.,
beinn kostnaður vegna fjölskyldumeðferðar
er greiddur af sjálfsaflafé samtakanna. Mikil
eftirspurn er eftir þessari þjónustu sem fer
fram á göngudeildum SÁÁ í Reykjavík
og á Akureyri og eftir samkomulagi á
öðrum stöðum.
Nú stendur yfir söfnunarátakið
Áfram Vogur, þar sem safnað er fyrir
byggingu á nýrri álmu við sjúkra-
húsið – álmu þar sem verða veikustu
sjúklingarnir í sérherbergjum auk
þess sem aðstaða vaktar og lyfjavörslu
verður endurnýjuð til að uppfylla
nútímakröfur um öryggi starfsfólks
og sjúklinga. Framkvæmdir hófust í
byrjun október og ganga vel. Húsnæðið
verður tekið í notkun í maí á næsta ári.
Að þessu sinni höfum við leitað mest
til fyrirtækja eftir stuðningi og í stuttu máli
fengið framúrskarandi undirtektir hjá litlum
og meðalstórum fyrirtækjum. Það er eftir-
tektarvert að á meðan fjölmargir lífeyrissjóðir
og stórfyrirtæki sjá hagnaðarvon í stórfelldum
fjárfestingum á sviði heilbrigðisþjónustu,
byggir SÁÁ með stuðningi almennings og
smærri fyrirtækja, „non profit“ sjúkrastofur
undir fárveika sjúklinga sem fá hvergi annars
staðar að vera.
Sjúkrahúsrekstur SÁÁ er rekinn með 170
milljóna króna halla á þessu ári og hefur sá
halli verið að aukast jafnt og þétt síðustu árin.
SÁÁ greiðir sjálft þennan halla með sjálfsaflafé
ólíkt öðrum heilbrigðisstofnunum sem sækja
árlega í aukafjárlög til að greiða niður sinn
hallarekstur. Þannig hefur SÁÁ lagt til lög-
bundins heilbrigðisreksturs yfir milljarð króna
á síðustu 10 árum og enn meira þegar horft er
yfir lengra tímabil. Það má því segja að þaðan
sem við horfum líti áðurnefnd hagnaðarvon líf-
eyrissjóðanna sérkennilega út.
Um leið og ég, fyrir hönd SÁÁ, óska lesendum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári vil ég
þakka öllum fyrirtækjum og einstaklingum sem
hafa lagt okkur lið á þessu ári.
Stuðningur ykkar er ómetanlegur fyrir sjúk-
lingana og fjölskyldurnar og starfsfólk og stjórn
SÁÁ. Hann er raunverulegt kraftaverk.
SÁÁ hefur byggt og keypt húsnæði undir sína starfsemi án
aðkomu ríkis og bæja og lengst af skaffað húsnæðið alveg
endurgjaldslaust fyrir kaupendur þjónustunnar.
frá formanni
Við stöndum í þakkarskuld við
frumherjana sem byggðu Vog
arnþór
Jónsson
skrifar
Leiðsögumaðurinn og fasteignasalinn Þorsteinn Jakobs-
son, eða Fjalla-Steini eins og hann er kallaður, ætlar að
hefja göngu á tindana sjö í byrjun næsta árs. Þá gengur
hann á hæsta tind hverrar heimsálfu og byrjar verkefnið á
Aconcagua í Argentínu sem er 6.980 metra hátt. Slíkir leið-
angrar kosta sitt og er Fjalla-Steini nú að selja allar eigur
sínar til að fjármagna ævintýrið. „Ég verð orðinn alveg
eignalaus á næsta ári og alveg örugglega hamingjusam-
asti maður í heimi. Þá þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur
af veraldlegum hlutum og á nóg af hamingju,“ segir hann
léttur í bragði.
Í febrúar og mars er stefnan svo tekin á Kilimanjaro,
hæsta tind Afríku. Ef allt gengur að óskum mun verkefnið
taka rúmlega ár. Fjalla-Steini hefur alltaf haft brennandi
áhuga á útivist og fjallgöngum og fór fyrst á fjöll átta ára
gamall þegar hann stofnaði fjallaklúbb með vini sínum,
Lárusi Ástvaldssyni, sem síðar varð jarðfræðingur. „Svo var
ég í sveit fyrir norðan á sumrin og fór þá á fjöll nær daglega.
Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir hreyfingu en tók löng hlé
þegar ég var að ala börnin mín upp.“
23 ára gamall fór Fjalla-Steini í meðferð til SÁÁ á Silunga-
poll sem hann segir hafa gert sér afar gott. „Til að byrja
með vann ég ekki mikið í minni edrúmennsku en fyrir sjö
árum tók ég mig á og fór að sinna henni betur samhliða því
að hella mér út í fjallamennskuna. Eftir að ég byrjaði aftur
af krafti í fjallamennskunni hvarf áfengislöngunin alveg.“
Hann segir mikla heilun fólgna í fjallgöngum og að þær
næri bæði líkama og sál. „Maður kemst ekki nær sjálfum
sér en að stunda útivist og hún hentar mjög vel með edrú-
mennskunni. Ég tel að margt fólk gæti verið án þunglyndis-
lyfja ef það tæki upp á því stunda útivist og klífa fjöll.“
Fjalla-Steini fer á fjöll nær alla daga ársins og á afreka-
skránni kennir ýmissa grasa. Árið 2010 gekk hann á 365
fjöll og 2011 voru þau 400. Á þessu ári hefur hann svo geng-
ið á öll bæjarfjöll landsins og ætlar að gefa út bók um þau
á næsta ári. Allur ágóði af sölu hennar rennur til Styrktar-
félags krabbameinssjúkra barna. Á árum áður gekk hann til
að vekja athygli á og safna fyrir starfsemi Ljóssins en henni
kynntist hann í gegnum vinkonu sína sem nú er látin. „Ég
var í fjögur ár að safna fyrir Ljósið en langaði svo að gera
eitthvað fyrir börnin og fór af stað með verkefnið Saman
klífum brattann og lét búa til þúsund bauka sem var dreift
um allt land. Næsta haust lýkur þessu verkefni með styrkt-
artónleikum þar sem ágóðinn mun sem fyrr renna til SKB.“
Selur allt fyrir
tindana sjö
Þorsteinn Jakobsson ætlar að ganga á tindana sjö á
næsta ári og selur nú allar veraldlegar eigur sínir til að
fjármagna leiðangurinn. Hann fer nær daglega á fjöll og
suma á daga á fleiri en eitt. Næsta vor sendir hann frá
sér bók um öll bæjarfjöll landsins og mun allur ágóðinn
renna til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.
Þorsteinn Jakobsson segir fJallgöngur næra bæði líkama og sál:
2 DESEMBER 2013