Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 59

Fréttatíminn - 27.12.2013, Side 59
Kveðja frá forseta Íslands, Ólafi ragnari grÍmssyni: Vogur: Tákn vonar og betra lífs Við Íslendingar eigum margar stofnanir og njótum fjölbreyttrar starfsemi en fáir staðir ná þeim sessi að verða í hugum þjóðarinnar tákn nýrrar vonar, fyrirheit um betra líf; einstaklingum og fjölskyldum aflvaki sigra í erfiðri glímu. Vogur er slíkur staður í hugum okkar og hjörtum; samheiti á starfsemi sem í senn hefur rutt brautir og vakið athygli víða um heim; en umfram allt sönnun þess að áfengissýki og neysla eiturlyfja þarf ekki að vera ævarandi böl. Það eru til aðrar leiðir, aðferðir sem skila árangri og gefa körlum og konum, ungum og eldri trú á að lækningin takist, að hægt sé að losna úr fjötrum fíknarinnar og færa fjölskyldu sinni og vinum lífs- gleði á ný. Nú fagnar Vogur merkum áfanga og þá ber okkur að þakka fyrir framlag lækna og starfsfólks alls, að- standendum og stuðningsliði sem eflt hefur árangur- inn jafnt og þétt. Vogur er ekki aðeins stofnun, heldur líka vitnisburð- ur um samtakamátt þúsundanna sem lagt hafa lið hug- sjónastarfi í þágu heilbrigðis og hollra lífshátta. Á þessum tímamótum þakkar íslenska þjóðin af heilum huga hið góða starf. Ég átti alltaf leið til baka SÁÁ eru fyrir mér eins og ósýnilegt öryggisnet, rétt eins og foreldrar manns. Maður þarf ekki alltaf á þeim að halda en það er öryggi fólgið í því að vita af þeim,“ segir sjónvarpskonan Hilda Jana Gísladóttir. Hilda Jana er landsmönnum að góðu kunn en hún hefur starfað bæði sem fréttamaður á RÚV og Stöð 2 en síðustu ár hefur hún tekið þátt í að byggja upp sjónvarpsstöðina N4. Sú stöð hefur smám saman náð góðri fótfestu fyrir norðan en um leið laðað að sér forvitna áhorfendur um allt land. „Við höfum reynt að gera venjulegt sjónvarp fyrir venjulegt fólk. Það má alveg líka,“ segir Hilda Jana, hógværðin uppmáluð. Hilda Jana var ein þeirra sem rasaði út snemma á lífsleiðinni og kann hún SÁÁ miklar þakkir fyrir þá hjálp sem henni var veitt til að koma sér á beinu brautina. „Ég fór hratt upp og hratt niður aftur. Ég þurfti mikið á SÁÁ að halda á þeim tíma og fór inn og út úr meðferð í eitt ár. Ég var á Vogi og á Vík og gerðst meira að segja svo fræg að vera í síðasta hollinu á Vífils- stöðum. Það hefur oft verið gagnrýnt að fólk geti komist aftur og aftur í meðferð en það var afar mikilvægt fyrir mig að geta gert það. Ég átti alltaf leið til baka.“ Hún kveðst telja að það hafi unnið með sér hversu ung hún var. „Af því ég var ung var auðvelt að koma strax til baka. Ég fattaði það ekki þá en tíminn var algert lykilatriði. Fólkið sem var með manni í rugli, því lengur sem það var í ruglinu, þeim mun meira skaðaðist það. Þeir sem hafa náð sér upp voru þeir sem gátu hætt sem allra fyrst. Og því fyrr, því betra. Þetta snýst ekki um hvað þú gerir heldur hversu ungur þú kemst út úr því aftur.“ Hilda Jana segir ennfremur að þetta sé algjört lykilatriði í meðferðarstarfi. „Ef einhver fókus ætti að vera þá er það að ná krökkum strax. Þá eiga þau séns.“ Aðspurð segist Hilda Jana ekki vera virk í starfi SÁÁ í dag en myndi þó ekki hika við að nýta sér starf samtakanna ef á þyrfti að halda. Hún segir að afar mikilvægt sé að SÁÁ hafi aðstöðu á Akureyri en starfið mætti vera meira úti á landi. Nálægðin skipti nefnilega máli. Fyrstu árin eftir meðferð var hún þó mjög virk. „Já, endalaust. Lífið snerist um að vera edrú fyrstu árin. Ég þurfti að gera það þannig. Þetta var bara eins og allar byltingar eru, svo finnur maður jafnvægi og rólegheit. Þá var ég fyrst og fremst óvirk. Í dag er það ákveðin for- senda fyrir því sem ég er en vegna þess að ég hætti hef ég tækifæri til að vera fullt annað. Það er leið sem ég hef valið og ég fylgi henni ennþá. Lífið er gott.“ Hilda Jana Gísladóttir sjónvarpskona hefur vakið athygli fyrir störf sín á sjón- varpsstöðinni N4. Hún rasaði út snemma á lífsleiðinni en náði tökum á lífi sínu með hjálp SÁÁ. Hún segir mikilvægt að ná sem fyrst til krakka sem eru í neyslu – því lengur sem fólk sé í rugli, þeim mun meira skaðist það. Þetta snýst ekki um hvað þú gerir heldur hversu ungur þú kemst út úr því aftur. Meðferð fyrir að- stand- endur Í fjögurra vikna meðferð fyrir aðstandendur er leitast við að auka þekkingu þátttakenda á fíknisjúkdómnum, einkennum hans, hvernig hann birtist og hvaða áhrif hann hefur á alla þá sem búa í návígi við hann. Þá er reynt að aðstoða þátttakendur til að hrinda af stað breytingum til bóta innan fjölskyldunnar. Meðferðin er á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 18-20 og kostar 8.000 kr. Fræðsluerindin í meðferð- inni eru eftirfarandi: • Áfengissýki og önnur vímuefnafíkn • Meðvirkni og hvernig hún breytir fjölskyldunni • Meðvirkni og hvernig hún breytir einstaklingnum • Stuðningur sem gerir ástandið verra • Sjálfsvirðing • Þróun batans – aðstandandi vs fíkill – gestir velkomnir • Sameiginlegur bati allra í fjölskyldunni • Síðasta kvöldið er Al-anon kynning • Stuðningshópur fyrir aðstandendur eru í boði í framhaldi af 4 vikna meðferðinni. Nánari upplýsingar fást hjá ráð- gjöfum SÁÁ í síma 530-7600. 3 2013 DESEMBER

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.